Helgafell - 01.04.1942, Page 45

Helgafell - 01.04.1942, Page 45
SAGAN AF SANDA-GERÐI 81 skini, þegar allt greri og angaði.... Þá v£ir nú svolítið annað að líta á hana í réttunum, en ekki var hún síður myndarleg, þar sem hún svamlaði inn- an um féð með sjóhatt á höfði, í gljá- andi vatnskápu og með rosabullur á fótunum. Þarna dró hún eins og sver- asti karlmaður, og það held ég hún sypi á brennivíni, ef henni var boðið það af almennilegum manni. Meðai yngra fólksins átti hún enga félaga, en aftur á móti hafði sumt af eldra fólkinu mætur á henni, skynsemdarhúsfreyj- ur og myndar- og greindarbændur, og ég held hún hafi beinlínis verið trún- aðarmanneskja sumra, þótt ung væri. Ungu stúlkurnar fordæmdu hana, þar sem þær þorðu það, voru flestar fullar af beizkju og úlfúð í hennar garð, og piltarnir, sem ætluðu að gleypa hana með augunum, hvenær sem þeir héldu, að ekki væri eftir þeim tekið, skutu fram grófum skensyrðum henni viðvíkjandi. Ég hugsa, að þeir hafi nú beinlínis haft hálfgerðan beyg af henni, en hvort þeir hefðu viljað.... — O, bölvaðir aumingjarnir ! — Tja, þú getur nú sagt svo... . En það er nú svona og svona, vera smeykur um, að maður kynni að reyn- ast of léttvægur, þó að manni aldrei oema gæfist kostur — og .... vita svo ekki nema maður yrði lúbarinn og rek- inn burt eins og flökkuhundur, get- andi ekki sett sig á háan hest í krafti sinnar karlmennsku ! — O, þetta er kannske satt. Það sit- ur ekki á mér. — Ja, þú varst nú lúmskur skratti. — Jæja, áfram með söguna! — Nú, svo kom þá Helgi okkar til skjalanna. Þú manst nú, hvernig hann var í Flensborg, alltaf í áflogum, alltaf í stelpusnatti, án þess að taka þó fyrir nokkra sérstaka — alltaf í einhverjum ævintýrum og sláandi um sig með pen- ingum.... Heima í sveitinni var það þannig, að allt var í háa lofti, stelpur og strákar, karlar og kerlingar, hvar sem hann kom. — Hann var víst ríkur, faðir Helga ? — Hann Þórður á Núpi! Já, hann var ríkur, áreiðanlega ríkari en Hannes — og annar stórbokkinn frá, bara ekki eins mikill ribbaldi.... Nú, heima fyrir var Helgi duglegur, þegar hann gekk að vinnu, en annars var hann nokkuð laus við, sinnti mikið stóðinu, tamdi hesta, var oft á ferð og flugi. Og það var eins heima og í Flensborg með það, að hann var ekki orðaður við neina sérstaka stúlku. Hann tók þær víst fyrir snöggvast, eins og honum datt í hug þá og þá stundina, og svo þurrkaði hann þær bara út, líkt og krakki þurrkar út mynd af reiknings- spjaldi. Svo var það þá einu sinni, að hann fór með tveimur öðrum ungum og hraustum mönnum í eftirleit fram á af- rétt, og þetta fór hann bara af ævin- týralöngun. Félagar hans hétu Geir og Sigurður. Það gekk í versta veður, og eitt kvöldið var barið harkalega á Söndum, sem eru efst í sveitinni. Þar var Helgi á Núpi kominn, hestlaus og einn síns liðs. Hann sagði, að Geir væri steindauður og stirðnaður inni á afrétt, en Sigurður lægi fyrir — svo sem hálftímagang frá bænum. Hest- ana hefðu þeir orðið að skilja eftir, og þeir væru náttúrlega frá, en nú yrði að gera út menn til þess að bjarga Sig- urði. — En þið verðið að hafa mig afsak- aðan, sagði hann. Nú, Hannes rauk af stað, bræðurnir allir fjórir og tveir vinnumenn, en kon- an bauð Helga að hátta í gestarúmið. — A, ég held ég fái mér nú ein-

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.