Helgafell - 01.04.1942, Qupperneq 47

Helgafell - 01.04.1942, Qupperneq 47
SAGAN AF SANDA-GERÐI 83 frá þér, þangað til að lokinni vertíð, en nú fyndist sér hann ekki geta beð- ið, og svo bað hann mig þá að skreppa upp eftir, meðan hann byggist til far- ar. Hann vill vita, hvort þú munir vilja við sér líta og flytja heim að Núpi á næsta hausti. Gerður hafði handleikið flétturnar, sem lágu fram yfir öxlina. Nú fleygði hún þeim aftur á bakið : — Seg þú honum, að kostur muni vera á þessu, að öllu óbreyttu, en biddu hann að koma sjálfan, næst þegar hann eigi við mig erindi. Svo vatt hún sér við og gekk inn í bæinn. Á miðri vertíð kom Helgi að Sönd- um. Hann hafði hringa meðferðis, og hann lét sér ekki liggja á. Hann fór ekki út til Eyja fyrr en eftir viku, og þá höfðu aðrir róið þrjá daga og aflað vel. Það var sagt frá Söndum, að fáir hefðu séð nokkuð til þeirra, Helga og Gerð- ar, þann tíma, sem hann dvaldi á Söndum. Þau höfðu sjaldan komið út úr herberginu, sem hann hafði legið í um veturinn. Um vorið veiktist Gerður skyndi- lega, en annars hafði henni aldrei orð- ið misdægurt, nema hvað hún hafði fengið kíghósta, þegar hún var barn. Læknir var sóttur, og hann sagði, að sjúkdómurinn væri lungnabólga. Svo fór læknirinn heim og með honum maður, sem síðan kom með lyf handa Gerði. Gerður missti ekki ráð eða rænu, en hitinn var mjög hár, og það var auð- séð, að hún var þjáð. Hún baðst þess nú, að sent væri eftir Helga. Einn af bræðrum hennar reið af stað, og hann var fljótur í förum. Hann óð beint inn að rúmi systur sinnar: — Sæl. Helgi bað að heilsa. Hann óskar þér góðs bata, en getur ekki komið. Hann er á leið vestur yfir heiði með hrossarekstur. Mér datt í hug að berja helvítið, en hann bauð mér brennivín, og svo lét ég hann eiga sig, enda vissi ég ekki, hvort þú kærðir þig um það, að ég gæfi honum á hann. Gerður sagði ekki neitt, en faðir hennar hafði hlustað á, og hann mælti: — Ætli Hannes á Söndum skreppi ekki sjálfur, og svo sjáum við til I — Þú ferð ekki fet. Eins og maður- inn þurfi ekki að sinna sínum verkum, sagði Gerður. Þar með var þetta útrætt mál. Faðir hennar rauk fram og mun hafa verið reiður, en hann fór ekki neitt — lét vilja Gerðar gilda. Svo sagði hún þá við Onnu, systur mína, sem var ein- mitt þetta ár vinnukona á Söndum og stundaði Gerði í legunni: — Réttu mér þarna koníaksflösk- una, Anna mín. Anna gerði eins og fyrir hana var lagt, og Gerður setti á munn sér flösk- una, sem hún var búin að taka úr nokkrar matskeiðar, og saup niður að miða. — Þetta yljar, sagði hún — og var dálítið skjálfrödduð, sem von var, fár- veik manneskjan. Svo bældi hún sig niður og sofnaði eftir skamma stund. Ur þessu fór henni að batna, og ekki varð annað séð en að hún kæmist til fullrar heilsu. En hún var eins og dá- lítið hæglátari í fasi en áður. Hún fór ekkert út af heimilinu og sat mest við sauma og prjónaskap. Nokkru eftir að hún var komin á fætur, kom Helgi að Söndum. Hann var hýr af víni og mikill á förunum. Hann kyssti Gerði í allra augsýn og sagði síðan: — Ég vissi það alltaf, Gerður mín, — já, ég sagði rétt svona við þá, kunn- ingja mína í Reykjavík: Látið hana
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66

x

Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.