Helgafell - 01.04.1942, Side 51

Helgafell - 01.04.1942, Side 51
SAGAN AF SANDA-GERÐI 87 svoleiðis, og þú færð ekki meira en fimm og tíu krónur í einu út næsta mánuð. Gvendur skrugga sneri sér við. Hann gaut augunum til félaga sinna: — Sagði ég ykkur ekki! Svo vék hann sér að Gerði. — Ég tek tíkallinn. — Gerðu svo vel, en hafðu það nú heldur koges en glussa. — Hérna er höndin. Og þau tókust í hendur. — Já, ég treysti þér til þess, Gvend- ur, að láta nú ekki koma til neins. — Bless, mútter! Síðan fór hann til hinna, og þeir stóðu upp og settu á sig höfuðfötin. — Bless, my queen, sagði Hinrik áttundi. — Gleðilegan trinitates, sagði Jón nolli. Svo gengu þeir út, hæglátir og prúð- ir eins og börn, sem hafa fengið leyfi til að fara í bíó og lofað því að haga sér sómasamlega í einu og öllu. Þeir litu ekki við okkur Einari Höskuldi, frekar en þeir vissu ekki, að við vær- um þarna nærstaddir. Ég hélt áfram með dánarfregnina í blaðinu. Bíðum nú við, hvar var ég ? ....fjöldi sjómanna, hingað og þangað af landinu, sótti veitingahús hennar og naut þar bezta beina . . Jú, einmitt — og svo framhaldið: ..Gerður lét eftir sig mikið fé á okkar mæli- kvarða, kundrað og fimmtíu þúsund krónur — eða rúmlega það. Hún lagði svo fyrir í erfðaskrá, að af fé þessu verði stofnaður sjóður, sem beri nafnið Verðlaunasjóður ógiftra eldri mæðra í Vallasveit og Suðureyjum. Fénu skal varið, eins og það er orðað í erfðaskránni, ,,til að verðlauna stúlkur í Vallasveit og Suðureyjum, 32 ára og eldri, sem barn eignast, enda hafi þær ekki áður átt barn, sem sé á lífi". Þó að svona einkenni- lega sé til orða tekið í erfðaskránni, að sjóður- inn eigi að heita „verðlaunasjóður", þá verður þetta auðvitað einungis styrktarsjóður, og ..." Ég fleygði frá mér blaðsneplinum og bölvaði greinarhöfundinum, en bless- aði Gerði og bað guð að gefa mönnum vit og víðsýni til að skilja hana rétt og framkvæma hennar síðasta vilja af samvizkusemi, hispursleysi og dreng- ®kaP- Guðm. G. Hagalín. FRÁ RITSTJÓRNINNI f næsta hefti birtast margir einstakir ritdómar, sem ekki komust að í þetta sinn, sökum rúmleysis. Þar er og væntanleg grein eftir Arna Jónsson jrá Múla um heildarútgáfu þá, sem nú er hafin á ritum Gunnars Gunnarssonar. í sama hefti birtist einnig ýtarleg rit- gerð eftir dr. Einar 01. Sveinsson um Sveinbjörn Egilsson rektor. Ennfremur upphaf nýrrar, óprentaðrar skáldsögu eftir Kristmann GuSmundsson. Þá verður þjóðhátíðardags Norðmanna, 17. maí, minnzt með því, að frú Theresia GuSmundsson segir í Umhorfum tíðindi af frelsis- og menningarbaráttu þeirra um þessar mundir. Einnig skrifar Stefán Jóh. Stefánsson fyrir tímaritið grein um mikilsvert nýmæli, sem varð- ar afstöðu vor íslendinga til norsku þjóðarinnar. Þýðing á nýju löngu kvæði eftir Nordahl Grieg, sem nú mun orðinn vinsælasta skáld Norðmanna, birtist og í þessu hefti, undir fyrirsögninni BréfiS heim. Þriðja ritgerð BarSa GuSmundssonar í greinaflokkinum Uppruni lilenzkrar skáldmenntar, kemur út í sumarhefti Helgafell*.

x

Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.