Morgunblaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.08.2012, Blaðsíða 14
SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Enn er óvíst um skólavist fyrir um 800 ungmenni sem sóttu um í fram- haldsskólum landsins. Katrín Jak- obsdóttir, mennta- og menningar- málaráðherra, segir að staðan í framhaldsskólunum sé víða þung. Skólastarf hefst víða eftir tvær vikur. „Við kláruðum í vor að innrita alla sem voru að koma úr tíunda bekk. Forgangurinn hjá okkur eru þeir krakkar sem eru yngri en 18 ára, þau sem eru ólögráða. Við erum nánast búin að ganga frá málum allra sem eru 16 og 17 ára,“ segir Katrín. Innritun nemenda í framhalds- skóla er samstarfsverkefni ráðu- neytisins og skólanna sjálfra. Starfs- fólk skólanna er nú að koma aftur til starfa eftir sumarfrí. „Einhverjir þeirra hafa laus pláss og svo er alltaf þó nokkur hópur sem hefur fengið skólavist, en hættir síð- an við. Við sjáum það til dæmis hjá hópnum sem er 16-17 ára, en um það bil helmingur þeirra sem ekki hafa fengið skólavist hefur tilkynnt að hafa hætt við að fara í skóla í bili. Það geta ýmsar ástæður verið þar að baki. En þetta ætti allt að liggja skýrt fyrir um það leyti sem skólarnir byrja.“ Óvíst með eldri en 18 ára Samkvæmt lögum ber framhalds- skólunum að tryggja öllum umsækj- endum sem eru 18 ára og yngri skólavist og segist Katrín sjá fram á að það gangi eftir. - En áttu von á að allir umsækj- endur fái skólavist? „Það komast örugglega ekki allir eldri en 18 ára inn.“ Katrín segir að framhaldsskólun- um sé þröngur stakkur sniðinn og hún hefur kynnt stöðuna fyrir ríkis- stjórninni. „Staðan er mismunandi eftir skólum. Þó að framhaldsskól- arnir hafi fengið einna minnstan nið- urskurð í þessu ráðuneyti (mennta- og menningarmálaráðuneytinu) þá var búið að skera svo mikið niður á framhaldsskólastiginu fyrir kreppu. Það var ekki eins og þar væri feitan gölt að flá og staðan í sumum skólum er orðin mjög þröng,“ segir hún og bætir við að staðan sé einna verst í þeim skólum þar sem kennt er sam- kvæmt bekkjarkerfi. „Þeir eru með ódýra nemendur, en lítinn sveigjan- leika til að hagræða. En það er ljóst að staðan er þung víða. Við höfum reynt að gera okkar besta til að jafna stöðu skólanna. Í upphafi árs nýttum við þá fjármuni sem við áttum hér í ráðuneytinu á svokölluðum safnlið- um til að gera skólunum sem best kleift að mæta árinu. En þrátt fyrir það sjáum við fram á vandamál í nokkrum skólum.“ Enn á eftir að koma 800 ung- mennum í skóla  Staða framhaldsskóla er víða slæm Morgunblaðið/Eyþór Framhaldsskólar Enn er óvíst með skólavist um 800 ungmenna. Hundruð bíða enn svars » Kennsla hefst í flestum skól- um eftir tvær vikur. » Enn bíða 134 ungmenni, yngri en 18 ára, eftir svari um skólavist í framhaldsskóla. » Flestir þeirra sem ekki hafa fengið skólavist eru á aldrinum 18-24. Þau eru 440 talsins. » 229 umsækjendur, eldri en 25 ára, bíða enn svars. FRÉTTASKÝRING Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Það styttist óðum í að skólastarf hefjist að nýju eftir sumarfrí, á öll- um skólastigum og um allt land, en í Reykjavík taka grunnskólarnir aftur til starfa 22. ágúst næstkomandi. Þá hefja 1.493 nemendur nám í 1. bekk en alls verða grunnskólanemendur í Reykjavík 13.952 talsins í 42 skól- um; almennum skólum, sérskólum og sjálfstætt starfandi skólum. Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á skólakerfinu í Reykjavík á síðustu misserum en þar ber helst að nefna sameiningar skóla, bæði á leik- og grunnskólastiginu. Ein þeirra kemur til framkvæmda í haust, það er sameining unglinga- deilda Hamraskóla og Húsaskóla við unglingadeild Foldaskóla í Graf- arvogi. Um 90% foreldra þeirra barna sem flytjast yfir skrifuðu undir mót- mæli gegn áformunum sem afhent voru borgaryfirvöldum en Eggert Teitsson, einn forvígismanna for- eldra barna í Hamraskóla, segir ekki útlit fyrir annað en að af sam- einingu verði, þrátt fyrir að enn sé beðið svara frá innanríkisráðuneyt- inu um málið. „Nú þegar þetta er orðið ljóst verður maður bara að taka því sem að höndum ber og styðja við börnin þannig að samein- ingin gangi þá bara sem best,“ segir Eggert. „Þetta er eiginlega bara orðið þannig, þótt við viljum nátt- úrlega að innanríkisráðuneytið af- greiði erindi okkar; hvort svona framkoma og svona aðferðir séu bara í lagi,“ segir hann. Eggert segist ekki vita til þess að foreldrar hafi ákveðið að flytja börn sín í aðra skóla í mótmælaskyni en segir engu að síður enn mikla óánægju ríkja meðal þeirra. „Við er- um t.d. óánægð með hversu lítið af kennurum og starfsfólki unglinga- deildar Hamraskóla og tómstunda- starfsins hefur verið ráðið yfir í Foldaskóla,“ segir hann. Eggert segir flutninginn leggjast misvel í börnin. „Krakkar eru fljótir að aðlagast en það er samt sem áður auðheyrt að það er skrekkur í mörg- um varðandi þetta, að vera að koma inn sem gestir í nýjan skóla þar sem fyrir er starf. Við foreldrarnir þurf- um náttúrlega bara að fylgja því eft- ir að þetta verði vel gert.“ Foreldrar í Grafar- vogi bíða enn svara  Grunnskólar borgarinnar taka til starfa 22. ágúst Morgunblaðið/Styrmir Kári Skólastarf Nú styttist í að grunnskólar landsins taki til starfa og réttara að fara að huga að skólavörunum. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2012 Fjölvítamín pakkinn Fyrir alla sem hugsa um heilsuna Spektro Fjölvítamín ein með öllu - Vegna einstakra gæða nýtur Solaray virðingar og trausts um allan heim Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum Baby me now Fjölvítamín fyrir barnshafandi konur og konur með börn á brjósti Barne multi Fjölvítamín fyrir börn frá 3 ára aldri Spektro án k-vítamíns og járns Fjölvítamín fyrir þá sem eru á blóðþynningar lyfjum Athugasemdir foreldra barna í Hamraskóla og Húsaskóla voru af ýmsum meiði. Þeir bentu m.a. á að samgöngum milli hverfa væri ábótavant, að ávinningurinn af sameiningunni væri takmarkaður, að aðgerð- irnar myndu rýra fasteignaverð í hverfunum og að flutningurinn gæti haft neikvæð áhrif á nem- endur í Hamrasetri, deild fyrir einhverfa í Hamraskóla. Foreldrarnir fengu engu að síður þau svör hjá Jóni Gnarr borgarstjóra að engin rök hefðu komið fram sem réttlættu að borgin hætti við áform sín. For- eldrarnir kærðu málið til innan- ríkisráðuneytisins, sem hefur stjórnsýslueftirlit með starf- semi grunnskólanna, en bíða enn niðurstöðu. Hafa ýmsar efasemdir SAMEININGAR Ólafsdalshátíð verður haldin í Ólafs- dal í Dölum næstkomandi sunnudag. Hátíðardagskrá hefst klukkan 13. Að morgni sunnudags verður gönguferð í Skálina í Ólafsdal og spáð í örnefni, byggingar og stað- hætti með hliðsjón af ljósmyndum sem teknar voru um 1900. Markaður með grænmeti, handverk, osta, Erpsstaðaís, krækling, ber og fleira hefst klukkan 12. Guðbjartur Hannesson velferðar- ráðherra verður meðal ræðumanna í hátíðardagskrá. Ávörp verða flutt og skemmtiatriði. Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari fer með gaman- mál og hljómsveitin Moses High- tower leikur. Þorgeir Ástvaldsson flytur erindi um minningar frænda síns frá Ólafsdal 1906 til 1916. Við lok dagskrár verður kynnt verkefnið Eyðibýli á Íslandi, áhugaverð hús á Vesturlandi. Ólafsdalshá- tíð í Dölum  Markaður og ráð- herra ræðumaður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.