Morgunblaðið - 01.09.2012, Qupperneq 2
FRÉTTASKÝRING
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Nú er gengið þannig frá sölunni á Bergi-Hugin að skipin
og aflaheimildirnar eru ekki seldar sérstaklega, heldur
hlutafélagið og við viljum láta reyna á það fyrir dóm-
stólum hvort forkaupsrétturinn eigi ekki við þegar hluta-
félagið á nánast eingöngu bátana og kvótann, þannig að
bæði verðmætin og skuldirnar í félaginu eru tilkomnar
vegna þeirra,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vest-
mannaeyja, um kaup Síldarvinnslunnar á útgerðarfélag-
inu Bergi-Hugin í Vestmannaeyjum.
Bæjarráð Vestamannaeyja sendi frá sér fréttatilkynn-
ingu í gær og kallaði eftir forkaupsréttartilboði frá Síld-
arvinnslunni og Bergi-Hugin þar sem söluverð og aðrir
skilmálar yrðu tilgreindir. Verði ekki orðið við því muni
bærinn undirbúa málsókn til að ógilda söluna og tryggja
að hún verði stöðvuð þar til niðurstaða dómstóla liggur
fyrir.
Elliði bendir á að í fyrstu grein laga um stjórn fiskveiða
segi að markið laganna sé að efla byggð í landinu, vernda
fiskistofna og stuðla að öflugri atvinnustarfsemi. „Í tólftu
greininni er kveðið á um að þegar skip eða aflaheimildir
eru seldar burt úr sveitarfélaginu beri að tilkynna sveitar-
félaginu það skriflega og sveitarfélagið hefur tök á að
neyta forkaupsréttar. Þannig að vilji löggjafans er greini-
lega alveg skýr,“ segir Elliði. Þetta sé gert til að draga úr
óörygginu sem fylgir útgerð þar sem hægt sé „að leysa
landfestar og sigla burt með atvinnuna“.
Segir allar þessar tölur liggja fyrir
Í fréttatilkynningu Vestmannaeyjabæjar segir að eftir
kaup Síldarvinnslunnar hf. á Bergi-Hugin ehf. þurfi að
kanna hvort aflaheimildir Samherja og tengdra félaga fari
yfir lögbundið hámark. Gunnþór Ingvason, framkvæmda-
stjóri Síldarvinnslunnar, vildi ekki ræða málið við Morg-
unblaðið í gær. Samherji er stór hluthafi Síldarvinnsl-
unnar. „Allar þessar tölur liggja fyrir og þær eru opnar
fyrir öllum og það er hlutverk Fiskistofu að fylgjast með
þessum hlutum, sem hún gerir,“ segir Þorsteinn Már
Baldvinsson, forstjóri Samherja. „Við viljum að sjálfsögðu
fara eftir lögum og reglum og gerum það hvað þetta varð-
ar, þannig að ég hef ekkert annað að segja um þetta á
þessu stigi málsins,“ bætir Þorsteinn Már við.
Í fréttatilkynningu bæjarráðs Vestmannaeyja segir
m.a. að fyrir liggi að félögin Samherji, Útgerðarfélag Ak-
ureyringa, Síldarvinnslan hf. og ef til vill fleiri félög séu
tengd eignarböndum. Því sé rétt að láta á það reyna hvort
tengslin geri það að verkum að eignarhaldið sé komið yfir
þau mörk sem sett eru í 13. gr. laga um stjórn fiskveiða.
Miðað við upplýsingar frá Fiskistofu um úthlutað afla-
mark eftir fyrirtækjum í upphafi fiskveiðiársins 2012/2013
fengu útgerðarfélögin Samherji, Útgerðarfélag Akureyr-
inga, Síldarvinnslan og Bergur-Huginn samtals úthlutað
rúmum 19.698 tonnum af þorski eða því sem nemur um
12,5 prósentum af heildaraflanum í þorski. Samkvæmt
ákvæðum 13. gr. laga um stjórn fiskveiða er hámarksafla-
hlutdeild í þorski hinsvegar 12%. Þegar hefur komið fram
að til standi að selja eitt skip í hagræðingarskyni, í kjölfar
kaupa Síldarvinnslunnar á Bergi-Hugin.
„Við erum stöðugt að kanna hámarkshlutdeildarmálin
og það er eðlilegt ef fyrirtæki renna saman að þá sé skoð-
að hvar þau standa, þetta er engin sérstök rannsókn, við
tökum svona þessar stærstu útgerðir og gerum þetta með
reglubundnum hætti,“ segir Eyþór Björnsson fiskistofu-
stjóri. Tilefni sé til að skoða hvaða staða sé nú komin upp.
„Það verður skoðað,“ segir hann.
Hóta lögsókn vegna
kaupa á Bergi-Hugin
Skoða hvort Samherji sé kominn yfir hámarksaflahlutdeild
Skip Bergey VE, annað tveggja skipa Bergs-Hugins.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Íslenskir leikvellir eru einsleitir og
oftar en ekki alls ekki nógu ögrandi
fyrir börnin. „Góður leikskólagarður
hefur gildi fyrir námsgetu og heil-
ann,“ segir Kristín Dýrfjörð, leik-
skólakennari, fyrrverandi leik-
skólastjóri og núverandi lektor við
Háskólann á Akureyri, í viðtali í
Sunnudagsmogganum um helgina.
Hún er viss um að nú sé vakning
gagnvart útileiksvæðum og op-
inberu rými og sér mikil tækifæri í
því að bæta leikskólagarðana.
„Mér finnst að miðað við hve
margt hefur þróast í leikskólunum
hafi leikskólagarðarnir ekki þróast í
takt við annað. Þetta er samt að ger-
ast, þeir eru að byrja að breytast og
fólk er að opna augun fyrir fjöl-
breytileikanum,“ segir Kristín og
segir að bættum görðum fylgi betri
heilsa.
„Rannsóknir sýna að börn sem
leika sér mikið úti eru heilbrigðari
en hin börnin. Þau eru minna veik,
sjaldnar frá vegna veikinda í leik-
skólanum sínum heldur en börn í
sambærilegum leikskólum sem eru
með minni útiveru. En garðurinn
verður að vera þannig að börnin fái
tækifæri til að klifra, hlaupa og
hoppa. Ef þau fá þessi tækifæri til að
reyna alhliða á líkamann þróa þau
með sér betra jafnvægi og samhæf-
ingu hreyfinga og sjón þeirra verður
betri því þau hafa meira dýpt-
arskyn,“ segir Kristín og útskýrir
nánar.
„Ef það er ekkert úti í garði sem
er spennandi færðu börn sem væla
yfir því að fara út. Ég vil að það sé
eitthvað um að vera í garðinum, og
þá er ég ekki að tala um skipulagða
leiki starfsfólks heldur að það sé nóg
af ögrandi verkefnum í garðinum.
Það er mín ósk um leikskólagarða
framtíðarinnar.“
Í viðtalinu í Sunnudagsmogganum
ræðir hún ennfremur um þátt for-
elda.
„Við höfum rosalegar áhyggjur af
því að börnin okkar slasist. Fólkið í
leikskólanum vill ekki vera ábyrgt.
Ef eitthvað kemur fyrir í svona garði
er farið að tala um eftirlit, ábyrgð
starfsfólksins og að það sé ekki
nægjanlega vel á verði.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Eins Dæmigerður íslenskur leikvöllur. Þeim svipar gjarnan saman.
Einsleitir íslenskir leikvellir
Ögrandi verkefni en ekki skipulagðir leikir Bætt heilsa fylgir betri görðum
Morgunblaðið/Inga Rún
Fjör Leikvöllur í Berlín, þar eru engir tveir eins og áskoranirnar fjölmargar.
Talsverðar breyt-
ingar hafa verið
kynntar á frétta-
stofu Ríkis-
útvarpsins um
mánaðamótin.
Magnúsi Hlyni
Hreiðarssyni,
fréttamanni RÚV
á Selfossi, er sagt
upp en hann hef-
ur starfað sem
verktaki. Fækkað er um einn í
morgunþáttum útvarpsins, Landinn
verður látinn tengjast betur frétta-
stofunni.
Að sögn Páls Magnússonar út-
varpsstjóra er fyrst og fremst um að
ræða tilfæringar í hagræðingar-
skyni. „Spegillinn verður nú frétta-
tengdari og hann verður meira part-
ur af kvöldfréttatíma útvarpsins,“
segir Páll. Spurður um Magnús
Hlyn benti hann á að á Suðurlandi
yrði eftir sem áður fréttamaður í
Vestmannaeyjum áfram við störf og
myndi hann geta sinnt öðrum hlut-
um landshlutans.
„Óðinn Jónsson fréttastjóri sagði
mér bara í dag að nýtt rekstrarár
væri að hefjast, það yrði hagræðing
og ég látinn fjúka, það gerist núna á
miðnætti,“ sagði Magnús Hlynur.
„Ég skil ekki alveg hagræðinguna
við að senda RÚV-bíl með frétta-
mann og tökumann hingað austur til
að ná í fréttir.“ kjon@mbl.is
Hagrætt á
fréttastofu
RÚV
Magnús Hlynur á
Selfossi missir starfið
Páll
Magnússon
Hitametið fyrir ágúst féll ekki að
þessu sinni, kuldakaflinn síðustu
daga sá til þess. Nýliðinn ágústmán-
uður er engu að síður meðal þeirra
tíu hlýjustu sem vitað er um um land
allt, að sögn Trausta Jónssonar veð-
urfræðings.
Úrkoma var í meðallagi í Reykja-
vík, en annars víðast hvar talsvert
undir meðallagi. Sumarið, þ.e. júní
til ágúst, var einnig mjög hlýtt, sér-
staklega suðvestanlands. Þar telst
tímabilið meðal þeirra fimm hlýjustu
frá upphafi mælinga, að sögn
Trausta.
Ágústmánuður
fer fyrst og
fremst í annála
fyrir þá sök að 19
daga í röð mæld-
ust 20 stig eða
meira á landinu.
Tuttugu stiga
syrpan hófst í júlí
og stóð yfir í 23
daga samfleytt.
Litlu munaði að
metið yrði lengra því 20. ágúst fór
hitinn í 19,9 stig – á Brúsastöðum í
Vatnsdal . sisi@mbl.is
Hitametið féll ekki
vegna kuldakafla
Trausti
Jónsson
Kári Eyþórsson MPNLP
• Er sjálfstraustið í ólagi?
• Viltu betri líðan?
• Skilja þig fáir?
• Viltu vinna bug á einhverju í fari þínu?
• Gengur öðrum betur í lífinu en þér?
• Gengur illa að klára verkefni?
• Er erfitt að höndla gagnrýni?
Með breyttu hugarfari getur þú
öðlast það líf sem þú óskar þér.
NLP er notað af fólki um allan heim sem hefur
náð frábærum árangri í lífinu.
NLP er öflugasta sjálfstyrking sem völ er á.
Námskeið í NLP tækni verður haldið
21. - 23. sept. og 28. - 30. sept. 2012.
www.karieythors.is; karieythors@gmail.com: 894-1492
„Hugurinn ber
þig alla leið“
© Kári
NLP Pracitioner