Morgunblaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2012 ✝ Erlendur Han-sen fram- kvæmdastjóri fæddist á Sauð- árkróki 26. ágúst 1924. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks 26. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Friðrik Hansen, kennari, vegavinnuverk- stjóri, oddviti og ljóðskáld, f. 17.1. 1891, frá Sauðá við Sauð- árkrók, d. 27.3. 1952, og Jós- efína Erlendsdóttir Hansen, saumakona og klæðskeri, f. 2.11. 1894 á Beinakeldu, Torfa- lækjarhreppi, A-Hún. d. 19.11. 1937. Alsystkini Erlendar eru: Emma Ásta Sigurlaug, f. 15.2. 1918, d. 2.7. 2010, Ástríður Björg, f. 6.6. 1920, d. 17.10. 1993, Matthías Kristján, f. 26.6. 1921, d. 6.7. 2009, Ragnar, f. 17.4. 1923, d. 1.7. 2011, Jóhann- es Friðrik, f. 23.12. 1925, Björg Jórunn, f. 25.6. 1928, Guð- mundur, f. 12.2. 1930. Hálfsystk- ini Ásgerður Guðmundsdóttir,f. 14.5. 1914, d. 23.12. 1991, Þor- björg, f. 5.11. 1929, Sigurður, f. árkróki og Stóru-Giljá í Húna- vatnssýslu hjá móðurbræðrum sínum, þar sem áhuginn á stjórnmálum kviknaði. Hann var kosinn f.h. Alþýðuflokksins í fyrstu bæjarstjórn Sauðárkróks í júlí 1947. Bæjarfulltrúi 1947- 1950, 1960-1962 og 1966-1974. Sat fjölmörg Alþýðuflokksþing og var fulltrúi fyrir Verka- mannafélagið Fram á Alþýðu- sambandsþingi. Einn af stofn- endum Iðnsveinafélags Skagafjarðar 1965. Skipaður af félagsmálaráðherra formaður framkvæmdanefndar bygging- aráætlunar fyrir Sauðárkrók 1967. Erlendur hlaut meist- arabréf í rafvirkjun 1956 og rak eigið rafmagnsverkstæði til 1972. Stofnaði og rak ásamt Jó- hönnu saumastofuna Vöku frá 1972-1988 og þar í framhaldi fasteignafélagið Erlendur Han- sen sf. Erlendur var mikill áhugamaður um sögu og menn- ingu Skagafjarðar og Húna- vatnssýslu. Hann safnaði bók- um, handritum og ljósmyndum og hélt vandaðar skrár yfir þær. Hann var einnig vel hagorður eins og hann átti ætt til og er til fjöldi ljóða og lausavísna eftir hann. Erlendur verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju í dag, 1. september 2012, kl. 11. 24.12. 1939, Jós- efína, f. 5.5. 1942, Eiríkur, f. 4.1. 1945, Friðrik, f. 2.6. 1947, d. 30.12. 2005. Dóttir Er- lendar og Regínu Bjargeyjar, f. 3.4. 1931, Jósefína E. Hansen, bóndi, f. 4.8. 1956. Hennar maður er Tryggvi Eymundsson skrif- stofumaður, f. 8.10. 1940. Dóttir þeirra Regína Petra, f. 30.4. 1991, nemi í sálarfræði. Sam- býliskona Erlendar til 36 ára Jó- hanna Lárentsínusdóttir, f. 16.9. 1926 í Stykkishólmi. Sonur hennar Sigurður Lárus Hólm verkfræðingur, f. 28.5. 1955. Eiginkona hans er Jóhanna Bárðardóttir, f. 13.6. 1954. Syn- ir þeirra Jóhann Ari Lárusson tölvunarfræðingur, f. 16.12. 1980. Hans unnusta Alda Æg- isdóttir leikskólakennari, f. 10.4. 1980. Friðrik Lárusson raf- magnsverkfræðingur, f. 28.10. 1984. Eiginkona Helga Marín Gestsdóttir lögfræðingur, f. 7.5. 1984. Erlendur ólst upp á Sauð- Við fráfall afa er margs að minnast bæði úr nútímanum en einkum frá mörgum sumrum sem við ungir pjakkar dvöldum á Sauðárkróki hjá honum og ömmu. Tími sem mótaði okkur til allrar framtíðar og var stór þátt- ur í okkar uppeldi. Við þekktum hann sennilega öðruvísi en flestir Skagfirðingar. Við sátum í bílnum, keyrðum um Sauðárkrók fræddumst um sögu staðarins, eyjanna úti á firði, Tindastóls o.s.frv., hittum vini hans og spjölluðum. Keyrð- um upp á hauga, þar sem við sát- um í fanginu á afa og ókum Brúna (K-510) og Bláa. Mesta spennan var í hvorum enda bæj- arins bíltúrinn endaði. Norður- endi þýddi Kattholt (Aðalgata 21), og þá fengum við Draum frá Bjarna Har. Suðurendinn; við vorum á leiðinni á Kimbastaði eða í hesthús til Ingimars, þá var komið við í Ábæ. Kattholt er sterkt í minning- unni. Hrúguðumst fram og aftur, gramsandi í tólum og tækjum sem við vissum ekkert hvað voru en gáfu okkur sýn inn í gamlan tíma. Afi hjálpaði okkur að smíða hvert undratækið á eftir öðru úr gömlu timbri eða öðru því sem við fundum í Kattholti, sama hversu klikkuð hugmyndin var. Minnisstætt er þegar hann kenndi okkur að nota sporjárn. Við bjuggum til lest á gámaskipi sem var fleytt á tjörninni í Litla- skógi og alls konar byssur til nota á Nöfunum. Út að ós að veiða, hvort sem var að morgni eða seint um kvöld, og amma eldaði aflann. Síðasta Drangeyjarferðin er, eins og þær allar, minnisstæð. Á heimleiðinni mokuðum við upp þorski sem afi og Jón á Reykjum verkuðu jafn- óðum, enn ein kennslan. Alltaf tók hann þátt í leikjum og „borgaði“ sig inn á „sýningar og viðburði“ sem við bræðurnir settum upp á Skagfirðingabraut- inni. Hann með kveikjara og bréf í stofunni, kveikti í bréfunum í skál og „hringdi“ svo á slökkvilið- ið og inn óðum við með slökkvi- tækið og slökktum „bálið“, þess á milli var koddaslagur. Afi var hafsjór af fróðleik. Hann opnaði okkur gátt inn í heim, sem við erum þakklátir fyr- ir að hafa kynnst. Hann reyndi hvað hann gat að kenna okkur að yrkja. Við höfðum ekki mikinn skilning þá, en höfum nú. Afi varð sáttur þegar við loksins gátum kastað fram ambögulegum vísu- brotum. „Úti er þoka …“ var ein. Hann var alltaf að hvetja okkur. Við munum margar skemmti- legar stundir frá seinni árum, þar sem afi var að spá og velta vöng- um yfir öllu milli himins og jarð- ar, heilsu, pólitík og hvað „tekur við“. Hann var óþreytandi að segja frá hvað hann var að hugsa og var spenntur að heyra okkar innlegg. Alltaf að ljósrita og klippa úr blöðum fróðleik sem hann vildi gefa okkur og ræða um. Virðing fyrir landi og þjóð var okkur innrætt ungum í Skaga- firðinum. Á seinni árum sýndi afi námi okkar mikinn áhuga, studdi okkur með ráðum og dáð og spurði margs. Þá snerust hlut- verkin við. Hann í hlutverki nem- andans en við reyndum af fremsta megni að fræða. Til stað- ar var sama þolinmæðin að hlusta og ræða saman. Við náðum því ekki að vera jafningjar afa, en hann var fyrst og fremst vinur okkar og fyrir það þökkum við. Hvað tekur við skýrist síðar. Jóhann Ari og Friðrik Lárussynir. Ó blóm, sem deyið! Björtu vökunætur, sem bráðum hverfið inn í vetrarskuggann! Hvers er að bíða? Hægt ég rís á fæt- ur, og hljóður dreg ég tjöldin fyrir gluggann. (Tómas Guðmundsson) Erlendur Hansen kvaddi á átt- tugasta og áttunda afmælisdegi sínum. Það var honum líkt. Það var alltaf stíll yfir öllu sem hann tók sér fyrir hendur, listrænn þokki yfir framkomu hans og verkum. Hann bjóst á brott þeg- ar blómin blikna og næturnar björtu eru á förum. Erlendur var í rauninni draumamaður, ljóðrænn elsk- hugi þeirrar fegurðar sem lista- menn þrá og leita að alla ævi. Ungur kvað hann vísu sem hver trúbadúr miðalda hefði verið full- sæmdur af: Einn er ég að reika meðan aftanroðinn dvín, enga fæ ég hvíld í þetta sinn. Í húmi minna drauma döpur stjarna skín og döggin vætir griðastaðinn minn. Svo liðu dægrin – og árin. Í ljós kom að ljóðræni draumamað- urinn var ekki utangátta reikun- armaður heldur stóð föstum fót- um í raunveruleikanum. Rúmlega tvítugur var hann kjör- inn í fyrstu bæjarstjórn Sauðár- króks og tók þátt í stjórnmálum nánast alla sína ævi. Þar vann hann fyrir þá sem höllum fæti stóðu og dró ekki af sér. Hann gerðist einnig mikilvirkur fram- kvæmdamaður, stofnaði fyrir- tæki sem veitti mörgum vinnu og framleiddi gæðavöru úr íslensku hráefni. Sjálfur varð hann allvel efnum búinn og eignaðist fallegt heimili. En ljóðræni strengurinn slitn- aði ekki þótt á honum slaknaði í áranna önn. Síðustu áratugi hóf hann að yrkja að nýju og var þá ljóst að draumarnir voru enn á sínum stað, þráin sterka eftir feg- urð og samræmi. Og nú hafa tjöldin verið dregin fyrir. Erlendur Hansen hefur stigið „hið dimma fet“ og honum fylgja þakkir okkar Bjargar fyrir ljúfar, liðnar stundir. Jóhönnu, sem veitti breiðfirskri kvöldbirtu yfir líf hans mörg síðustu árin, og ástvinum hans öðrum sendum við hugheilar samúðarkveðjur og biðjum þeim allrar blessunar. Ólafur Haukur Árnason. Erlendur Hansen Í dag minnist ég þess að bróðir minn hefði orðið 70 ára ef hann væri á lífi. Hann fæddist í Ólafs- vík, sonur hjónanna Steins Krist- jánssonar og Dagbjartar Nönnu Jónsdóttur. Addi var þriðji í röð fjögurra systkina. Systur hans eru Eygló, látin, Halla og Nína. Einnig átti hann uppeldisbróður sem heitir Hilmar Gunnarsson. Addi giftist Erlu Þórðardóttur og áttu þau synina Ólaf og Steinar. Addi byrjaði snemma að vinna Adolf L. Steinsson ✝ Adolf L. Steins-son fæddist í Ólafsvík 1. sept- ember 1942. Hann andaðist á Heil- brigðisstofnun Vesturlands á Akranesi 7. októ- ber 2011. Útför Adolfs var gerð frá Háteigs- kirkju 18. október 2011. eins og algengt var á þessum árum. Hann var lengi á sjó en síðan urðu þátta- skil í lífi hans þegar honum bauðst starf sem lögregluþjónn í Ólafsvík. Við það starfaði hann í 30 ár og þar af 20 ár sem varðstjóri. Árið 2000 flytja Addi og Erla svo til Reykja- víkur en þá hafði Erla átt við veikindi að stríða í mörg ár og lést hún í október þetta sama ár. Addi fór að vinna hjá lögreglunni í Mosfellsbæ og líkaði það vel. Hann átti farsælan starfsferil hjá lögreglunni og var vel liðinn og vinsæll. Eftir að hann hætti að vinna flutti hann upp á Skaga þar sem hann bjó síðustu fjögur árin og var þá nær sonum sínum og fjölskyldum þeirra. Kveðja til þín elsku bróðir sem okkur þótti öllum svo vænt um. Nína og fjölskylda. Þótt tárin mín renni og kinnarnar væti og argað og gargað af vantrú ég gæti. Þá ósanngjarnt lífið svo oft hérna er fljótt breytast veður og vindáttin hér. Æj, Berglind mín ljúfust með saknaðar brag þú lagðir í ferðina hinstu í dag Berglind Ósk Guðmundsdóttir ✝ Berglind ÓskGuðmunds- dóttir fæddist í Reykjavík 1. sept- ember 1980. Hún lést 20. desember 2012. Útför Berg- lindar var gerð frá Fossvogskap- ellu 3. janúar 2012. mót ljósinu bjarta flaug sálin þín inn í friðsælan, kyrrlátan himininn. Svo fallegur engill nú bæst hefur við herskara drottins við himnanna hlið. Sálin var alltaf af bjart- sýni full blikandi ljósberi, fegursta gull. Ég bið fyrir þér og ég bið fyrir þeim sem bugaðir horfa á eftir þér heim þín minnst verður ætíð sem hetju á jörð um minningu þín við stöndum öll vörð. (Soffía R.) Mamma og pabbi. Sendum frítt hvert á land sem er Helluhrauni 12 • Hafnarfjörður • 544 5100 • www.granithusid.is HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Ástkær faðir okkar, sonur, bróðir og mágur, ALBERT PÁLSSON, lést þriðjudaginn 21. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð. Anton Emil Albertsson, Benedikt Aron Albertsson, Guðrún Albertsdóttir, Páll Björnsson, Birkir Pálsson, Helga Stefánsdóttir, Hildur Pálsdóttir, Einar Einarsson. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, vinkona, dóttir, systir og mágkona, ANNA STEINUNN ÁGÚSTSDÓTTIR, Sjafnargötu 10, Reykjavík, lést fimmtudaginn 23. ágúst. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 5. september kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Menntunarsjóð barnanna. Reikningsnúmerið er 0301-13-703715 og kenni- talan er 040291-2459. Kjartan Bjargmundsson, Elsa Kjartansdóttir, Bjargmundur Ingi Kjartansson, Ingibjörg Kjartansdóttir, Ragnheiður Ólína Kjartansdóttir, Ágúst H. Elíasson, Elsa Vestmann Stefánsdóttir, Birgir Sigurðsson, Einar Ingi Ágústsson, Ásta Margrét Guðlaugsdóttir, Elías Halldór Ágústsson, Kristín Vilhjálmsdóttir, Eva Ágústsdóttir. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir og afi, GRÉTAR SIGURÐSSON bókbindari, Hvassaleiti 109, sem lést á Landspítalanum laugardaginn 25. ágúst, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 6. september kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Ingveldur Fr. Sigmundsdóttir, Sigmundur Þ. Grétarsson, Eirný Valsdóttir, Ómar Grétarsson, Rúnar Grétarsson, Jóna Grétarsdóttir, Guðrún Erla Grétarsdóttir, Anton Brink Hansen og barnabörn. GUÐMUNDUR PÁLL ÓLAFSSON rithöfundur er látinn. Ingunn K. Jakobsdóttir. ✝ Faðir okkar, GUÐMUNDUR HANSEN FRIÐRIKSSON, lést á líknardeild Landspítalans fimmtudaginn 30. september. Gísli Guðmundsson, Friðrik Hansen Guðmundsson, Kristján G. Guðmundsson, Árni J. Guðmundsson og aðrir aðstandendur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.