Morgunblaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 23
BAKSVIÐ Kristján Jónsson kjon@mbl.is Tveir af ráðherrum ríkisstjórnar vinstriflokkanna, Jóhanna Sigurðar- dóttir forsætisráðherra og Ögmund- ur Jónasson inn- anríkisráðherra hafa nú brotið jafnréttislög, að mati kærunefnd- ar jafnréttismála. Fram kemur í ályktun frá stjórn Ungra vinstri grænna að hún harmi fréttir af brotum ráð- herrans á jafnréttislögum en kæru- nefndin úrskurðaði í vikunni að brot- ið hefði verið gegn lögunum við skipan í embætti sýslumanns á Húsa- vík í fyrra. UVG segir að það sé skilyrðislaus krafa að ráðherrar flokksins fari að lögum í orði og á borði og axli ábyrgð gerist þeir sekir um mistök í starfi. „Innanríkisráðherra ber að biðjast afsökunar á framgöngu sinni í þessu máli og leiðrétta mistök sín.“ Ráðherra getur að sögn lögfræð- inga ekki afturkallað ráðninguna og fram hefur komið í úrskurðum Hæstaréttar að dómstólar geti ekki heldur gripið til slíkra aðgerða. Hins getur sá eða sú sem brotið er á krafist bóta fyrir dómstólum. En hvað segir Ögmundur um þessa gagnrýni UVG og fleiri aðila? „Hvað varðar afsökunarbeiðni er slíkt ekki á döfinni enda réð ég ein- stakling til starfans á því sem ég taldi faglegum og löglegum forsendum. Síðan kemst kærunefndin að annarri niðurstöðu sem mér þykir miður en að sjálfsögðu virði ég hana.“ Alltaf þörf á fræðslu – Þegar þú varst í stjórnarand- stöðu fyrr á árum fórstu hörðum orð- um um ráðherra sem kærunefndin taldi seka um brot á jafnréttislögum. 2004 lagðir þú til að „ráðherrar verði settir á skólabekk til að læra jafnrétt- islögin“. „Ég held að íslenskt samfélag hefði haft gott af meiri jafnréttisfræðslu á síðustu öld og það sem af er þeirri 21. og tel mig ekkert undanskilinn í því. En öll sjónarmið þola væntanlega umræðu og kastljós. Ég hef líka sagt að kvennahreyf- ingin hafi verið róttæk og viljað velta valdastólunum en síðan þróast yfir í eins konar kvótakerfi, að jafn margar konur sætu á þessum sömu stólum og karlar. Mér hefur alltaf fundist þetta of þröng skilgreining, jafnréttisbar- áttan á að taka til samfélagsins alls, karla og kvenna af öllum stéttum. Ef einhver telur að ég hafi farið á svig við grundvallaratriði sem hafa beri í heiðri kveinka ég mér ekki undan því og vil taka þátt í umræðunni á sjálfs- gagnrýninn hátt. En réttlætisbarátta má aldrei verða að isma eða kreddu.“ Ögmundur biðj- ist afsökunar Ögmundur Jónasson  Ráðherra vill „taka þátt í umræðunni“ FRÉTTIR 23Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2012 Mitsubishi Pajero Instyle dísel sjálfskiptur kostar 10.290.000 kr. Staðalbúnaður: 200 hestöfl, stöðugleikastýring, 18“ álfelgur, 7 sæta, leðurinnrétting, 7“ LCD DVD skjár með bakkmyndavél, 860W Rockford hljómkerfi með 4GB minni fyrir tónlist, Xenon aðalljós, 100% læsing að aftan, tenging við farsíma (Bluetooth), þakbogar o.fl. ÞRAUTREYNDUR VIÐ ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR Umboðsmenn Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · Hekla Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði Auglýst eftir IPA-verkefnistillögum Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst eftir hugmyndum að IPA-verkefnum á Íslandi en markmið þeirra er að undirbúa mögulega þátttöku í uppbyggingarsjóðum ESB komi til aðildar að sambandinu. Auglýst er eftir verkefnum á sviði: Atvinnuþróunar og byggðamála Velferðar- og vinnumarkaðsmála Til ráðstöfunar eru u.þ.b. 8,3 milljónir evra. Stefnt er að því að verja þeim til allt að 20 verkefna um allt land á árinu 2013. Verkefni skulu taka mið af „Ísland 2020“ stefnumörkuninni og vera unnin í samstarfi a.m.k. þriggja aðila. Lágmarksstyrkur til hvers verkefnis er 200 þús. evrur og að hámarki ein milljón evra. Umsóknafrestur er til 30. nóvember 2012 Frekari upplýsingar um IPA og umsóknargögn eru aðgengileg á slóðinni: www.byggdastofnun.is/ipa  
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.