Morgunblaðið - 01.09.2012, Síða 31

Morgunblaðið - 01.09.2012, Síða 31
UMRÆÐAN 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2012 Ánægjulegt var að lesa grein Steingríms J. Sigfússonar í Fin- ancial Times hinn 20. ágúst sl. Hingað til hefur hann átt erfitt með að fjalla um við- brögð ríkisstjórnar Geirs H. Haarde við hruninu og hefur raunað viljað eigna sjálfum sér að hafa „bjargað Íslandi“ eins og hann orð- aði það í vetur. Steingrímur segir nú að viðbrögð Íslands séu til eft- irbreytni og á þar við neyðarlögin. Þetta örlæti hans á hrós er athygl- isvert í ljósi þess að hann sat sjálfur hjá við samþykkt laganna. Stein- grímur rekur áhrif hrunsins haustið 2008 og segir útlitið hafa verið svart fram á mitt ár 2009, sem er sá tími þegar ríkisstjórn hans og Jóhönnu Sigurðardóttur tók til starfa. Hafi verið hafist handa við að draga úr útgjöldum og auka tekjur. Fjárlög ríkisins undanfarin þrjú ár voru aldrei líkleg til vinsælda, segir Steingrímur, en í þeim fólust að- gerðir sem voru óumflýjanlegar. „Af þessu höfum við dregið ýmsan lærdóm sem að hluta á erindi við önnur Evrópulönd,“ segir hann. Það er mikils virði að hann sér og viðurkennir nú að aðgerðirnar voru óumflýjanlegar, því það þýðir að hvaða rík- isstjórn sem er hefði orðið að grípa til þeirra. Rétt er að gjalda hrós við hrósi, Steingrímur og Jó- hanna hafa verið dug- mikil og staðið vaktina síðan og það hefur ekki alltaf verið auð- velt. Þau eiga þakkir skildar fyrir sitt mikla starf. List hins hégómlega Sumir stjórnmálamenn nefna pólitíkina drýgindalega „list hins mögulega“. Nær væri að nefna hana „list hins hégómlega“. Margir þeirra reyna að skreyta sig láns- fjöðrum, það er skiljanlegt, en verra er þó að þeir reyna að gera lítið úr störfum andstæðinga sinna. Gamla góða reglan um að þakka skuli það sem vel er gert gildir ekki í pólitík. Stjórnmálamenn gætu bætt ímynd sína með því að taka sér tak að þessu leyti. Nú hefur Steingrímur vikið frá þessu og ég veit að fleirum en mér sem að mál- um komu hlýnar um hjartarætur. Það sem var öðruvísi Fyrst Ísland er orðið fyrirmynd sem önnur Evrópulönd eiga að fylgja þá er rétt að greina nánar í hvaða efnum landið skar sig úr í viðbrögðum við fjármálaáfalli. Eins og við heyrum í fréttum eru hag- fræðingar kallaðir til á ögur- stundum efnahagsmála. Aðhald peningastefnu er eilíft viðfangsefni en áföllum er samt mætt með því að prenta meiri peninga. Ég hefi áður líkt slíku við það að alkóhólista sé gefinn afréttari, tilgangurinn er að fá hann til að funkera í einn dag enn, sjálft meinið er ekki reynt að lækna. Þriðjudaginn 30. september 2008 stofnaði bankastjórn Seðla- banka Íslands „aðgerðahóp“ til að gera tillögur um viðbrögð við yf- irvofandi fjármálaáfalli. Í aðgerða- hópnum voru auk starfsmanna bankans þrír sérfróðir menn, einn hæstaréttarlögmaður, einn löggilt- ur endurskoðandi og einn viðskipta- fræðingur með bankareynslu. Eng- inn hagfræðingur. Þessi hópur nálgaðist verkefnið eins og menn endurskipuleggja fjárhag fyr- irtækis sem riðar til falls. Farið var yfir þekkt viðbrögð í nálægum lönd- um, kosti þeirra og galla, hug- myndum safnað og þær lagðar á borð ráðuneytisstjóra sem vitjuðu hópsins. Útkoman varð sem kunn- ugt er íslenska leiðin eins og hún birtist í neyðarlögunum. Meg- inefnið var að gömlu bankarnir voru látnir falla í fang kröfuhafa sinna en íslenska ríkið stofnaði nýj- an banka við hlið hvers hinna gömlu og færði innlánsviðskipti, innlend útlánaviðskipti og greiðslumiðlun til hinna nýju banka. Tildrög þess að ég var boðaður til þessara verka voru að ég hafði ritað grein í Mbl. hinn 15. apríl 2008 og lýst slíkum hugmyndum. Þá voru innlán gerð að forgangskröfum með aft- urvirkum hætti, brútal aðgerð, nokkuð sem aðeins gat gengið í ljósi neyðarréttar ríkis sem barðist fyrir sjálfstæði sínu og tilveru. Um það má lesa í 7. hefti skýrslu RNA. Steingrímur segir að önnur lönd geti lært ýmislegt af því hvernig Ís- lendingar tóku á bönkunum. Ómögulegt hafi verið að bjarga öllu bankakerfinu árið 2008 og sú ákvörðun að skipta bönkunum upp í nýja og gamla hafi gefist vel. Verndun innistæðna Steingrímur segir reynslu um all- an heim sýna okkur að trygg- ingasjóðir innistæðna gefi aðeins takmarkaða og í sumum tilfellum falska vernd. Á Íslandi hafi inni- stæðutryggingar verið sambæri- legar við önnur Evrópulönd og reynst lítils megnugar við hrunið. Alþingi hafi með neyðarlögunum veitt innistæðum forgang á aðrar kröfur og það hafi reynst lykilatriði til að komast út úr kreppunni. Neyðarlögin tryggi að kröfum allra innistæðueigenda hafi verið eða verði mætt að fullu. Hann hvetur leiðtoga Evrópu til að íhuga hvort ekki sé bæði tímabært og skyn- samlegt að innleiða sambærilegan forgang innistæðueigenda í lög. Það muni senda skýr skilaboð um að ekki sé hægt að seilast í sparifé al- mennings þegar illa fer fyrir bönk- um. Þannig geti erfið lexía Íslands kannski orðið Bretlandi og evru- svæðinu til góðs. Við þetta má bæta að alls ekki má hvika frá þessu, það mundi rýra trúverðugleikann. Það er rétt sem Steingrímur seg- ir að öll lönd ættu að gera innlán að forgangskröfum, með því yrðu tryggingasjóðir innlána öflugir. Að einu leyti þarf þó að fínstilla þetta við hentugleika. Innlán fjár- málastofnana hverrar hjá annarri eiga ekki að njóta forgangs. Meðan svo er geta menn notfært sér for- ganginn og látið millibankainnlán koma í stað beinna lána. Það munu menn gera að óbreyttu. Eftir Ragnar Önundarson » Þriðjudaginn 30. september 2008 stofnaði bankastjórn Seðlabanka Íslands „að- gerðahóp“ til að gera til- lögur um viðbrögð við yfirvofandi fjármála- áfalli. Ragnar Önundarson Höfundur er viðskiptafræðingur og fyrrverandi bankastjóri. Batnandi ráðherra er best að skrifa Alvarleg í bragði Þeir voru heldur kuldalegir á að líta, ferðamennirnir í rigningunni í Bankastræti í gær, en vel útbúnir voru þeir þó og létu eflaust veðrið ekki hindra sig í því að skoða borgina. Ómar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.