Morgunblaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 20
BÆJARLÍFINU
Jónas Erlendsson
Fagridalur
Sumarið var óvenjusólríkt og gott í
Mýrdalnum. Einungis rigndi tvo
daga í júní og júlí, heyskapur gekk
þar af leiðandi mjög vel. Það eina
sem háði var að grasspretta var
frekar hæg vegna vætuskorts, en þó
virðast flestir bændur ánægðir með
heyfenginn.
Ferðaþjónustan á svæðinu
blómstraði sem aldrei fyrr og þó að
alltaf séu að bætast við fleiri og fleiri
aðilar sem bjóða upp á ýmiss konar
gistingu virðist allt vera fullt yfir há-
annatímann. Mikið er af erlendu og
innlendu vinnuafli sem kemur í Mýr-
dalinn og fjölgar því verulega íbúum
meðan á törninni stendur. Það skap-
ast þó oft töluvert vandamál þegar
skólarnir hefjast og starfsfólkið
hverfur til náms, ferðamannatíminn
er stöðugt að lengjast fram á haustið
og verður því oft ansi erfitt hjá þeim
sem eftir eru að anna allri vinnunni.
Nú fer að hausta og smalanir
fara að hefjast. Fyrsta safn í Dala-
og Heiðarheiði er áætlað fyrsta sept-
ember og svo kemur Höfðabrekku-
afrétturinn og Arnarstakksheiðin í
kjölfarið, þetta er alltaf verulega
spennandi tími fyrir sauðfjár-
bændur, þegar kemur í ljós hvernig
lömbin hafa þrifist yfir sumarið, og
hvort þau og ærnar skila sér af fjalli.
Sala á kinda- og nauta-
kjöti hefur verið góð í sumar
enda margir munnar sem þarf að
metta sem bætast við mannfjöld-
ann yfir ferðamannatímann. Einn-
ig hefur oft verið góð tíð til að
grilla í sumar og eykur það kjötát-
ið.
Flutningskostnaður er orð-
inn verulega íþyngjandi fyrir
landsbyggðina. Má sem dæmi
taka að flutningur eins 22 kg poka,
sem kostaði í innkaupum 2.774
kr., frá Reykjavík og austur í
Mýrdal kostaði 3.375kr. Það er að
vísu töluvert dýrara að flytja litla
pakka en stóra en þetta er nú
samt orðið óþarflega mikið.
Ferðaþjónustan blómstrar
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Fossinn heillar Ferðamenn njóta þess að skoða fossinn sem steypist úr Kötluskriðjöklinum norðan Hafurseyjar.
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2012
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Þetta eru hraunlög og gjalllög,“
segir Haraldur Sigurðsson eldfjalla-
fræðingur um könnunarleiðangur
sinn að Miðþúfunni á Snæfellsjökli í
fyrradag og bætir við athugunin hafi
ekki leitt neitt óvænt í ljós.
Veðrið á jöklinum var ekki gott í
fyrradag og því var erfitt um vik, en
Haraldur áréttar að rannsókn á
jarðlögunum krefjist margra ferða
og taki langan tíma. „En þetta er
svona byrjunin að kanna þessi jarð-
lög sem eru orðin svo áberandi,“
segir hann.
Haraldur segir að hann hafi jafn-
vel grunað að í Miðþúfunni væru
öskulög frá stóru sprengigosunum
sem hafa verið í jöklinum, en þau
síðustu voru fyrir um 1.750 árum,
3.800 árum og 8.000 árum. Þessi
öskulög finnist víða í jarðvegi á Snæ-
fellsnesi, en þau séu ekki í Þúfunni.
Því þurfi að skoða hinar Þúfurnar til
að athuga þetta betur. Hins vegar sé
komið gott snið í hamarinn undir
Þúfunni og þar megi vel sjá jarð-
myndanirnar.
„Mikil vinna liggur fyrir að kanna
sögu þessa eldfjalls,“ segir Har-
aldur. Hann bendir á að nú sé vinnan
aðgengilegri en áður. Þar sem jök-
ullinn hopar komi fram jökulöldur
sem séu bara vikur frá þessum stóru
gosum og framundan sé spennandi
rannsókn. „En því miður vantar
jarðeðlisfræðilegar mælingar og
jarðskjálftamæla,“ segir hann og
vísar til þess að könnun þýskra vís-
indamanna í fyrra hafi staðfest að
eldstöðvarnar í Snæfellsjökli og
Ljósufjöllum séu virkar. Það sé því
til skammar að ekki skuli vera neinn
jarðskjálftamælir á Vesturlandi og
Vestfjörðum. Skjálftar sem verði á
Snæfellsnesi og á Vestfjörðum verði
að vera af stærðinni 2 eða meira til
þess að þeir mælist inn í núverandi
net. Skjálftar finnist til dæmis oft í
Tálknafirði en þeir mælist ekki.
Morgunblaðið/RAX
Snæfellsjökull Svona leit Miðþúfan út 19. apríl 2006, hulin ís.
Ljósmynd/Haraldur Sigurðsson
Snæfellsjökull Nú er Miðþúfan snjólaus toppur jökulsins.
Spennandi verkefni framundan á Snæfellsjökli
Jón Atli Benediktsson, aðstoðar-
rektor vísinda og kennslu við Há-
skóla Íslands, og fyrrverandi dokt-
orsnemi hans, dr. Alberto Villa,
hlutu á dögunum verðlaun fyrir
bestu vísindagreinina í einu virtasta
vísindariti heims í rafmagnsverk-
fræði þar sem fjallað er um fjar-
könnunarrannsóknir, IEEE Tran-
sactions on Geoscience and Remote
Sensing. Greinin var ein af rúmlega
500 sem komu til greina.
„Fjarkönnunarrannsóknir eru af-
ar mikilvægar, t.d. þegar mæla þarf
ýmsar breytingar sem verða á um-
hverfinu. Þetta á ekki síst við hér á
landi um mælingar á breytingum
tengdum bráðnun jökla og á landi í
aðdraganda eldgosa. Á sjötta
hundrað vísindagreina var birtur í
tímaritinu á árinu 2011 og valdi al-
þjóðleg dómnefnd greinina frá Há-
skóla Íslands þá bestu. Verðlaunin
hljóta þeir Jón Atli og Alberto
ásamt meðhöfundum sínum, þeim
Jocelyn Chanussot og Christian
Jutten sem eru prófessorar við
Tækniháskólann í Grenoble í
Frakklandi,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá HÍ.
Glaðir í bragði Frá afhendingu
verðlaunanna fyrr í sumar.
Besta vís-
indagreinin
Karlarnir og kúlurnar
Umsóknarfrestur til 7. september
Karlarnir og kúlurnar er verkefni á vegum
Krabbameinsfélags Íslands, Framfarar,
Góðra hálsa og Krafts
Spilað verður í Bakkakoti í Mosfellsbæ
11. september kl. 12:00-18:00
• Karlar sem hafa fengið krabbamein fá tækifæri til að
styrkja sig og leika sér með því að æfa golfsveifluna á
frábærum velli, læra eitthvað nýtt og/eða viðhalda fyrri
færni.
• Golfið er markviss þjálfun - þú leikur til að vinna.
• Þaulvanur og lærður golfkennari, Karl Ómar Karlsson,
kennir réttu tökin, púttið, vippið og sláttinn.
• Steinar B. Aðalbjörnsson, matvæla- og næringarfræð-
ingur, verður með fræðslu um matarræði, hreyfingu og
nestið sem golfarar þurfa að huga að fyrir leik og í leikn-
um sjálfum.
• Tólf menn fá tækifæri - sér að kostnaðarlausu!
Matur - drykkir - vinningar - skemmtun -
fræðsla - útivera - hreyfing
Umsóknir sendist til Ráðgjafarþjónustu Krabbameins-
félagsins fyrir 7. september - fyrstur kemur, fyrstur fær.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Krabbameins-
félagsins, www.krabb.is, í síma 540 1900 eða með
tölvupósti á asdisk@krabb.is.