Morgunblaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 4
BAKSVIÐ
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Í svona tilvikum eru öryggismálin
ávallt í fyrirrúmi og komi upp ein-
hver vafi þá bíða menn,“ segir Gísli
Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóa-
hafna, en brottför skemmti-
ferðaskipsins Caribbean Princess
tafðist talsvert þar sem skipið komst
ekki úr Sundahöfn í fyrrakvöld sök-
um slæmra veðurskilyrða. Þegar
verst lék voru suðaustan 17-18 m/s.
Við slíkar aðstæður tekur skip af
þessari stærðargráðu á sig mikinn
vind sem m.a. gerir að verkum að
þyngd þess margfaldast svo um
munar. Caribbean Princess er engin
smásmíði, 290 metra langt og um
113.000 brúttótonn, og getur það
tekið um 3.600 farþega. Skipið var
statt hér við land í annað skipti á
þessu sumri.
Tveir dráttarbátar voru sendir
Til stóð í upphafi að skemmti-
ferðaskipið legði úr höfn í Reykjavík
síðastliðið fimmtudagskvöld um
klukkan 23. Þær áætlanir stóðust
hins vegar ekki þar sem ekki tókst að
koma skipinu vandræðalaust frá
landi fyrr en um klukkan hálfeitt í
gær en þá hafði vind lægt talsvert.
Áður en skipið sigldi áfallalaust úr
höfn í gær höfðu tveir dráttarbátar á
vegum Faxaflóahafna reynt að
hjálpa því af stað á fimmtudags-
kvöldið. Fengnir voru til verksins
dráttarbátarnir Magni og Jötunn en
að auki beitti áhöfn skemmti-
ferðaskipsins öflugum bógskrúfum
þess í von um að koma gríðarstóru
skipinu á hreyfingu. Allt kom þó fyr-
ir ekki og var því ákveðið að bíða
þangað til veðrinu slotaði.
„Magni og Jötunn eru samtals
með dráttargetu upp á 60 tonn en
þegar menn eru að eiga við skip af
þessari stærðargráðu, með þetta
mikla vindfang, þá eru engir sénsar
teknir,“ segir Gísli. Hann bætti við
að útgerð skipsins hefði tekið atvik-
inu af mikilli ró enda bersýnilega
gert sér grein fyrir erfiðum að-
stæðum og ekki viljað taka neina
óþarfa áhættu.
Að sögn Gísla hefur ekki komið til
tals að fjárfesta í öflugri drátt-
arbátum. „Í neyðartilvikum hafa
menn tækin,“ segir hann og vísar til
varðskipa og togara sem búa yfir
miklum togkrafti.
Komur gríðarstórra skemmti-
ferða- og flutningaskipa hingað til
lands hafa færst mjög í aukana að
undanförnu og er vert að minnast
komu risans Celebrity Eclipse en
það skip er 122.000 brúttótonn og
317 metra langt.
Í ljósi þess að siglingum í norður-
höfum fylgir ávallt ákveðin hætta á
slæmu veðri og hve mörg gríð-
arstór skip eru tekin að venja
komur sínar hingað til lands er
mikilvægt að Íslendingar ráði
yfir nauðsynlegum björg-
unar- og öryggistækjum á
borð við hið nýja varð-
skip Landhelgisgæsl-
unnar en þess má geta
að Faxaflóahafnir
eiga von á
skemmti-
ferðaskipum
út sept-
embermánuð.
Karabísk prinsessa í klandri
Gríðarstórt skemmtiferðaskip komst ekki úr höfn í Reykjavík sökum veðurs Dráttarbátar veittu
aðstoð en fengu lítt við ráðið Gæslan segist vera vel í stakk búin til að takast á við risaskip í vanda
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Frjáls Skemmtiferðaskipið Caribbean Princess lenti í vandræðum með að komast úr höfn í Reykjavík og þrátt fyrir
aðstoð dráttarbáta fór skipið hvergi fyrr en vind tók að lægja skömmu eftir hádegi í gær.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2012
Ásgrímur Lárus Ásgrímsson,
framkvæmdastjóri aðgerðarsviðs
Landhelgisgæslunnar, segir að
komi upp aðstæður þar sem
nauðsynlegt sé að draga skip, á
borð við stóru skemmti-
ferðaskipin sem sigla hér við
land, eigi varðskipið Þór að ráða
við verkið. En Þór er með 120
tonna dráttargetu samanborið
við um 56 tonna dráttargetu eldri
skipa Gæslunnar.
„Dráttarbúnaðurinn á Þór er
öflugur og ýmsar aðferðir mögu-
legar við að koma honum um
borð í skip sem er í vanda statt,“
segir Ásgrímur Lárus og bendir á
að Landhelgisgæslan æfi reglu-
lega slíkar aðgerðir, nú síðast
með norska varðskipinu Harstad
í nýliðnum mánuði.
Ásgrímur Lárus bendir jafn-
framt á að í kjölfar fyrri atvika,
t.a.m. strands flutningaskips-
ins Wilson Muuga, hafi
siglingaleiðum verið
breytt og skipum gert
að sigla fjær
ströndum til
að veita
björg-
unarmönnum
aukinn tíma til
að bregðast við.
120 tonna
dráttargeta
VARÐSKIPIÐ ÞÓR
yfir áhuga á því
byggja upp ýmis-
konar þjónustu á
Grímsstöðum. Í
lok júní ákvað rík-
isstjórnin að skipa
samráðshóp sem
nú fer yfir málið
en ekki liggur fyr-
ir hvenær hópur-
inn mun ljúka
vinnu sinni.
Aðspurður hvort verið sé að leggja
til að ríkið kaupi Grímsstaði á Fjöllum
svarar Ævar því játandi. „Málið er í
þeim farvegi núna að sveitastjórnir á
Norðausturlandi vilja kaupa jörðina
af eigendum sem vilja selja og fram-
leigja til Huang Nubo. Ég held að það
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
„Þetta er fólk sem vill skora á rík-
isstjórn og Alþingi að standa að þessu
máli með ábyrgum hætti. Ekki er um
formlegan félagsskap að ræða heldur
hóp fólks sem fór að tala saman um að
kannski væri ástæða til að þrýsta á
stjórnvöld til að skipta dálítið um far-
veg í þessu máli,“ segir Ævar Kjart-
ansson einn þeirra sem skrifa undir
áskorun til Alþingis og ríkisstjórnar
þess efnis að Grímsstaðir á Fjöllum
verði þjóðareign. Áskorunin birtist í
Morgunblaðinu í gær en undir hana
skrifar hópur fólks úr ólíkum áttum.
Eins og áður hefur komið fram þá
hefur Kínverjinn Huang Nubo lýst
sé skoðun allra sem skrifa undir
áskorunina að það væri farsælla fyrir
Íslendinga að svæðið yrði þjóðar-
eign.“
Ekki formlegur félagsskapur
Ævar segist hvorki vita né vilja spá
fyrir um hvort framhald verði á bar-
áttu hópsins áðurnefnda, ekki séu
uppi hugmyndir um að gera hópinn að
formlegum félagsskap. „Fólkið sem
skrifar undir kemur alls staðar að úr
þjóðfélaginu, öllum flokkum, mörgum
geirum samfélagsins og skorar á yf-
irvöld að beita sér í málinu. Láti það
ekki í hendur á sveitarfélögum og
milliliðum fyrir norðan. Málið varðar
alla þjóðina,“ segir Ævar sem alinn er
upp á Grímsstöðum.
Vilja Grímsstaði á
Fjöllum í þjóðareign
Farsælla að þjóðin eigi en sveitarfélög á Norðausturlandi
Ævar Kjartansson
„Ég tek áskoruninni fagnandi fyrir mitt leyti. Mér
finnst hún boða kannski ákveðin tímamót ef þarna er
að birtast miklu dýpri og breiðari samstaða um að
svæði af þessu tagi eigi að vera í þjóðareign og ef
það er liður í þeirri hugsun að standa vörð um víð-
ernið og náttúruna þá fagna ég því og ekki skal
standa á mér,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, efna-
hags- og viðskiptaráðherra, spurður út í undir-
skriftasöfnun þess efnis að ríkið festi kaup á jörðinni
Grímsstöðum á Fjöllum, en að sögn Steingríms koma
slík kaup vel til greina.
„Það sem mér finnst vera jákvætt í því sem er að
gerast núna er það að sveitarfélögin ætla að kaupa
jörðina og þar með er hún komin í opinbera eigu,“
segir Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra spurð út
í fyrstu viðbrögð sín.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra er einnig
jákvæður og segir markvert hve breiður hópur standi
að áskoruninni. En einnig þau rök hópsins að stjórn-
völdum beri að standa vörð um jarðir sem nái inn á
hálendið og teljist sögulega og menningarlega mik-
ilvægar.
Fagna undirskriftasöfnun
Steingrímur J.
Sigfússon
Oddný
Harðardóttir
Ögmundur
Jónasson
Síðustu 18 árin hefur framleiðsla á
aukaafurðum úr sjávarafla aukist
gríðarlega hérlendis. Árið 1992 var
heildarframleiðsla um 1.667 tonn,
en var tæplega 48.000 tonn árið
2010. Á sama tíma hafa fiskistofnar
og aflatölur minnkað í heiminum og
dróst afli á þessu tímabili saman um
tæplega 27%, að því er segir í til-
kynningu frá Íslenska sjávarklas-
anum.
Þekktasta aukaafurðin hérlendis
er lýsi en ýmislegt annað er fram-
leitt; Atlantic Leather gerir leður úr
fiskroði, Kerecis framleiðir krem og
stoðefni úr fiskroði, Ice-west sem
gerir niðursoðna, reykta þorsklifur
og Norðurbragð
framleiðir fiski-
kraft. Auk þess
hefur Haustak
þurrkað fisk-
hausa og bein og
selt til Afríku.
Sjávarklasinn
bendir einnig á
að dæmi séu um
að íslenskir aukaafurðaframleið-
endur anni ekki eftirspurn t.a.m.
eftir þurrkuðum afurðum til Níger-
íu og hreinlega skorti hráefni.
Dæmi séu um að framleiðendur
flytji inn hráefni frá útlöndum, vinni
þau og selji út aftur.
Jókst úr 1.667 tonnum
í tæplega 48.000 tonn
Uppkomin börn
alkóhólista
Loksins
fáanleg
aftur!