Morgunblaðið - 01.09.2012, Page 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2012
Ég fæddist sem barn þitt um friðsæla
nótt,
er föðmuðust ótta og dagur.
Við barm þinn ég teygaði þrautseigju-
’og þrótt.
Já, þúsundir gjafa ég til þín hef sótt,
svo efldist minn andlegi hagur.
Þú réttir mér útsprungna eyrarrós
tíðum
og ilmbjörk og reyrstrá úr grænkandi
hlíðum,
og fagurlit smáblóm í fram rétta hönd
þú færðir mér ætíð í kranz eða vönd.
Svo kveð ég þig, júní! með klökkva í
lund,
er kvöldskuggar lengjast í hlíðum.
Ég þakka þér sérhverja sólbjarta
stund
og söngvana’ og kliðinn, er vermdi
mér lund
á kyrrlátum kvöldum og blíðum.
Ég minnist þín æ, er mér syrtir í sinni.
Ég syrgi þig árlangt og geymi í minni.
Mig verma þín áhrif, unz vorar á ný
og vonglöð ég aftur á móti þér flý.
(Erla Þorsteinsdóttir frá Teigi)
Blessuð sé minning þín og
takk fyrir samverustundirnar.
Bára, Guðrún, Friðrik,
Baldvin og Snorri.
Elskuleg systir mín og frænka
er dáin, sorgin er mikil en samt
kemur þakklætið inn líka, þar
sem hún hefur undanfarin ár
glímt við hræðilegan sjúkdóm,
Alzheimer. Við sem þekktum
hana vitum að hún var allt of
mikil pæja til að geta ekki notið
lífsins til fullnustu.
Kristín systir mín var yndis-
leg kona, oft svolítið móðurleg
við mig en það er 17 ára aldurs-
munur á milli okkar enda vorum
við iðulega spurðar hvort við
værum mæðgur. Hún sagði mér
ýmsar sögur frá fyrri tímum,
man ég sérstaklega söguna þeg-
ar hún og systur hennar sam-
feðra fluttu á Bergstaðastræti 9
þar sem mamma okkar var að
hefja búskap með föður mínum.
Þær voru að flytja frá Kamp
Knox og sagði Stína mér að hún
hefði staðið fyrir utan 12 ára og
horft á stóra fallega húsið og
fundist hún vera að flytja í höll.
Á Bergstaðastrætinu var
fjörugt og fjölmennt, þar bjuggu
um tíma elsta systir okkar
Magga með sínum manni Ingva
Kristín
Jóhannesdóttir
✝ Kristín Jó-hannesdóttir
fæddist í Reykjavík
21. september
1944. Hún lést á
Landspítala,
Landakoti, 17.
ágúst 2012.
Útför Kristínar
fór fram frá Graf-
arvogskirkju 28.
ágúst 2012.
Rúnari og tveimur
börnum, þeim Svav-
ari og Særúnu,
Ragna systir með
elsta son sinn Reyni
og Hulda systir, svo
bættust alsystkinin
ég, Diddi og Maggi í
hópinn.
Eftir að Stína
skildi við fyrri mann
sinn var hún mikið
hjá okkur í Sævið-
arsundinu með dætur sínar
Björgu og Svövu og mynduðust
góð tengsl milli okkar enda pass-
aði ég þær systur oft, sérstak-
lega Svövu sem lést langt fyrir
aldur fram og lét eftir sig eina
dóttur, Kristínu Líf Abigail, sem
Kristín og Gummi, seinni maður
Kristínar, tóku að sér. Kristín og
Gummi bjuggu á Álftanesinu en
skildu fyrir sjö árum, þá fluttu
þær Abigail í Grafarvoginn og
bjuggu saman þar til veikindi
Stínu ágerðust. Ég er svo þakk-
lát fyrir hvað við höfum alltaf
verið í miklu sambandi. Hún
spurði iðulega um Helen Svövu
mína sem var í miklu uppáhaldi
hjá henni.
Undanfarin tvö ár hafa sam-
verustundirnar verið margar, í
sumar hittumst við eða töluðum
saman nánast daglega, stundum
var hún ekki heima þegar ég
kom, var farin til Bjargar, Bald-
urs, Mikaels og Adams en þang-
að fór hún nær daglega enda
stutt að fara.
Við fórum á kaffihús, í búðir
eða bara rúntuðum um og feng-
um okkur ís oft með Helen Svövu
minni og var þá spjallað mikið
um föt og make up, en Stína var
mikið fyrir falleg föt, vildi sko
ekki fara í það sem var of kell-
ingalegt, hún var alltaf vel til-
höfð. Þegar ég sótti hana undir
það síðasta og hún var ekki búin
að mála sig og leit í spegilinn
fékk hún sjokk og sagði „hvað er
þetta, gleymdi ég að mála mig“
og tók upp púðurdósina og vara-
litinn.
Síðustu ferðina okkar á kaffi-
hús fórum við ásamt Elsu mág-
konu okkar fyrir þremur vikum,
sátum úti í góða verðrinu og nut-
um þess að vera saman. Alltaf
spurði hún um Abigail sína sem
var ljósið í lífi hennar, hún ljóm-
aði alltaf þegar þær hittust.
Kristín hafði áhyggjur af henni
þar sem hún var ekki lengur með
hana en róaðist fljótt þegar ég
sagði að hún væri hjá Ásu fóst-
urmömmu sinni.
Nú ertu komin til Svövu þinn-
ar, mömmu og Palla stjúpa.
Elsku Stína okkar, við Helen
Svava kveðjum þig með tárum
en miklu þakklæti fyrir góðu
stundirnar sem við áttum saman.
Þín systir,
Jónína.
Þín frænka,
Helen Svava.
Í lífsins ferðalagi hafa leiðir
foreldra minna og Ölfu og Omma
verið samofnar með einstakri og
dýrmætri vináttu alla tíð. Það eru
því margar ljúfar minningar sem
leita á hugann nú þegar Ommi
kveður, minningar um hlýjan og
Ormur Ólafsson
✝ Ormur Ólafs-son fæddist í
Kaldrananesi í
Mýrdal 10. apríl
1918. Hann lést á
Hrafnistu 22. ágúst
2012.
Ormur var jarð-
sunginn frá Foss-
vogskirkju 30.
ágúst 2012.
hjálpsaman mann
gæddan sérstakri
frásagnargáfu, fróð-
an á mörgum svið-
um, ómissandi hlekk
fjölskyldu- og vina-
banda í gleði og
sorg. Í hugskoti
mínu finnst mér
eins og mamma bíði
hans brosandi og
Ommi sé tilbúinn
með eina sögu eða
tvær.
Við fjölskyldan í Svíþjóð send-
um innilegustu samúðarkveðjur
til Ölfu og fjölskyldu með þakk-
læti í hjarta fyrir allt það góða
sem aldrei gleymist.
Helga Elídóttir.
Nú kveðjum við
bróður okkar, Jóhann Örn, sem
var elstur af níu systkinum. Andlát
bróður okkar bar of fljótt að, að
okkar mati. En hver erum við að
dæma það? Jóhann bróðir okkar
var liðtækur áhugaljósmyndari allt
sitt líf og liggja eftir hann mann-
lífsmyndir og skipamyndir, frá
Siglufirði og víðar, í þúsundatali.
Þessi áhugi Jóa bróður okkar kom
sér vel þegar þeir félagar í Hafliða-
félaginu fóru að leita að heimildum
um Hafliða SI 2. Reyndist hann
þeim haukur í horni, og lét hann þá
fá myndir til eignar um Hafliða SI
2 og áhafnir. Jóhann byrjaði ungur
á sjó eða stuttu eftir fermingu, á
Elliða SI 1. Jóhann var á Elliða SI
1 alveg þar til hann fórst hinn 10.
febrúar 1962. Síðan var hann á
ýmsum öðrum skipum eins og
flutningaskipinu Haferninum,
Hafliða SI 2, Hafnarnesi SI og
mörgum fleiri. Jóhann flutti með
fjölskyldu sína frá Siglufirði ára-
mótin 1972/73 á Akranes og stund-
aði þar sjóinn hjá ýmsum aðilum
en lengst af hjá HB, sem síðar varð
HB Grandi. Jóhann starfaði mikið
að kjara- og öryggismálum sjó-
manna. Hann var stjórnarmaður
Jóhann Örn
Matthíasson
✝ Jóhann ÖrnMatthíasson
fæddist á Ak-
ureyri 2. sept-
ember 1945. Hann
lést 20. ágúst
2012.
Útför Jóhanns
fór fram frá Akra-
neskirkju 29.
ágúst 2012.
og formaður sjó-
mannadeildar
Verkalýðsfélags
Akraness í áratugi.
Honum var mjög
umhugað um rétt-
indi sjómanna og
verkafólks og öll al-
menn mannréttindi.
Þá er maður hitti
Skagamenn á förn-
um vegi könnuðust
þeir flestir við Jóa
bát. Það segir mikið til um um
hvað líf hans snerist.
Vér erum lagabrögðum beittir
og byrðar vorar þyngdar meir,
en auðmenn ganga gulli skreyttir
og góssi saman raka þeir.
Nú er tími til dirfsku og dáða.
Vér dugum, – þiggjum ekki af náð,
Látum bræður því réttlætið ráða,
svo ríkislög vor verði skráð
Till sigurs, eining öreiganna
með alþýðunnar stolta nafn
Þín jörð er óðal allra manna,
en ekki fyrir gamm né hrafn
Þeirra kyn skóp þér örbirgð og ótta
en er þeir skuggar hverfa úr sýn
einn vordag snemma á feigðarflótta
mun fegurð lífsins verða þín.
Sókn til frelsis er falin
vorri fylkingu í dag
unz Internationalinn
er allra bræðralag.
(Úr Internationalnum
þýð.: Sveinbjörn Sigurjónsson)
Kæri bróðir, þín verður sárt
saknað og minning þín lifir.
Elísabet, Hjördís,
Pétur Bj., Halldóra,
Matthildur, Stella María og
Braghildur Matthíasbörn.
MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Í tilefni af 60 ára starfsafmæli okkar bjóðum
við fría uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu og
fría pökkun á legsteinum sem fara út á land
Mikið úrval - Vönduð vinna - Gott verð
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
HALLDÓRS JÓNSSONAR
ökukennara frá Ísafirði.
Sasiprapha Udomsup,
Ása Sigurlaug Halldórsdóttir, Einar Óskarsson,
Einar Halldórsson,
Gunnar Þorsteinn Halldórsson,
Fríður María Halldórsdóttir, Þórður Marelsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar ástkærs bróður okkar, frænda og
vinar,
STEINGRÍMS EGILSSONAR
frá Mið-Grund, Skagafirði,
til heimilis
Ægisgötu 6,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks lyflækningadeildar
Sjúkrahúss Akureyrar fyrir góða umönnun.
Oddný Egilsdóttir,
Gottskálk Egilsson,
Lilja Egilsdóttir,
frændfólk og vinir.
✝
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐBJARTAR KRISTÍNAR JÓNU
JÓNSDÓTTUR,
Urðarvegi 52,
Ísafirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði fyrir góða umönnun.
Gunnar Pétur Ólason,
Guðmundur Bjarni Gunnarsson, Lára M. Lárusdóttir,
Garðar Smári Gunnarsson, Hafdís A. Gunnarsdóttir,
Kristín Guðrún Gunnarsdóttir, Elías Jónatansson,
Brynjar Már Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
ÞÓRÐAR PÁLMARS JÓHANNESSONAR
bónda á Egg í Hegranesi.
Sérstakar þakkir fá læknar og starfsfólk á
heilbrigðisstofnun Sauðárkróks.
Einnig viljum við þakka Helga Sigurðssyni og Kristjönu Sæberg
Júlísdóttur sem og öðru starfsfólki Landspítalans við Hring-
braut sem komu að umönnun hans.
Sigurbjörg Valtýsdóttir,
Valbjörg Pálmarsdóttir, Birgir Örn Hreinsson,
Halldóra Björk Pálmarsdóttir, Gunnar Ingi Gunnarsson,
Þórður Ingi Pálmarsson, Sylvía Dögg Gunnarsdóttir,
Jónína Pálmarsdóttir, Halldór Svanlaugsson
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
MARTIN LEONARD GRABOWSKI
læknir,
lést á Helsingborgs Lasarett, Svíþjóð,
sunnudaginn 22. júlí.
Útför hans verður gerð frá Garðakirkju á
Álftanesi miðvikudaginn 5. september
kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á krabbameinsdeild
Landspítala, Heimahlynningu og Parkinsonsamtökin eða
önnur líknarfélög.
Guðrún Rósa Sigurðardóttir,
Eydís Anna Martinsdóttir,
Hafdís María Martinsdóttir.
✝
Elskuleg eiginkona mín, dóttir, móðir,
tengdamóðir og amma,
BIRNA INGIBJÖRG TOBÍASDÓTTIR,
Rimasíðu 29g,
Akureyri
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 5. september kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Minningarsjóð Heimahlynningar á Akureyri.
Gísli Karl Sigurðsson,
Guðrún Ingibjörg Björnsdóttir,
Guðrún Gísladóttir, Ottó Magnússon,
Hulda Gísladóttir
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elsku móður minnar, tengdamóður, ömmu og
systur,
KRISTÍNAR JÓHANNESDÓTTUR,
Logafold 162,
áður Mosarima 6.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Foldabæjar fyrir góða
umönnun.
Björg Kristinsdóttir, Baldur Guðgeirsson,
Kristín Líf Abigail, Mikael Geir og Adam Geir,
Jónína Pálsdóttir
og systkini.