Morgunblaðið - 01.09.2012, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 01.09.2012, Qupperneq 45
Með náminu við Tækniskólann starfaði Skarphéðinn lengst af við það að gera upp mótora hjá véla- verkstæðinu Kistufelli, eða í þrjú sumur og einn vetur. Að námi loknu hóf Skarphéðinn starf hjá Varmaverki í Hafnarfirði sem þá sá um hönnun vélbúnaðar fyrir Hitaveitu Suðurnesja. Fyr- irtækið sameinaðist Fjarhitun, árið 2005 og varð þá að 60 manna verk- fræðistofu sem svo aftur sameinaðist VST og fleiri fyrirtækjum undir heitinu verkfræðistofan Verkís. Þar starfar Skarphéðinn á jarð- varmasviði og hefur einkum unnið við framkvæmdaeftirlit. Skarphéðinn æfði ólympískar lyft- ingar hjá Guðmundi Sigurðssyni í Ármanni í nokkur ár, varð Íslands- meistari í snöru og jafnhendingu ár- ið 2000 og jafnframt kjörinn lyft- ingamaður ársins það ár af ÍSÍ. Stöðugt í ljósmyndaleiðangrum Áhugamál Skarphéðins snúast um landið, ljósmyndun og veiðar: „Ég er nú bara útivistarmaður sem er á kafi í veiði og ljósmyndun. Þegar ég tala um veiði á ég við hvort tveggja, stangveiði og skotveiði. Ég byrjaði að fara polli með pabba í veiðiferðir og þetta þróaðist svo yfir í veiðidellu. Við feðgarnir fórum síðast á hrein- dýraveiði nú fyrir skömmu og náðum í einn tarf. Ég get nú ekki sagt að ég sé laus við veiðidelluna en eftir að ég fékk áhuga á ljósmyndun hefur ljósmynd- unin stöðugt verið að vinna á.“ Hvenær fékkstu fyrst áhuga á ljósmyndun? „Ætli ég miði ekki við árið 2007. Þá festi ég kaup á minni fyrstu al- vöru ljósmyndavél og síðan hef ég verið að taka landslagsmyndir. Ég reyni að komast út úr bænum minnst aðra hverja helgi og fer reyndar oft- ar ef taldar eru með stuttar ferðir.“ Þú hefur tekið þátt í fjölda ljós- myndakeppna? „Já já. Ég gerði það á tímabili, bæði einstaklingskeppnum og liða- keppnum og gekk bara oft vel. En hef dregið úr því í seinni tíð. Ég hef heldur ekki verið neitt sér- staklega duglegur að halda sýn- ingar. Ég var að vísu með einkasýn- ingu á Skriðuklaustri í fyrra sumar og hef tekið þátt í tveimur samsýn- ingum en þar með er það upp talið. Ég held hins vegar úti vefsíðunni Skarpi.is. Svo hef farið með erlenda ljósmyndara í skiplagðar dagsferðir um landið og það er töluverð eft- irspurn eftir því. Ég sel líka töluvert af myndum til Bretlands og Þýska- lands í kjölfarið á gosunum í Eyja- fjallajökli og á Fimmvörðuhálsi.“ Fjölskylda Sonur Skarphéðins er Ísar Logi Skarphéðinsson, f. 3.12. 2003. Móðir hans er Áslaug Kristinsdóttir. Systur Skarphéðins eru Ingunn Anna Þráinsdóttir, f. 24.9. 1971, grafískur hönnuður hjá Héraðs- prenti en maður hennar er Ingvar Ríkharðsson prentari og eiga þau tvær dætur; Hanna Gyða Þráins- dóttir, f. 28.7. 1973, bókari og prent- smiður hjá Héraðsprenti og á hún tvö börn. Foreldrar Skarphéðins eru Þráinn Skarphéðinsson, f. 25.9. 1937, prent- ari og framkvæmdastjóri Héraðs- prents, og Gunnhildur Ingv- arsdóttir, f. 12.1. 1953, prentsmiður hjá Héraðsprenti. Úr frændgarði Skarphéðins Þráinssonar Guðný Sigurveig Jónsdóttir húsfr. í Miðhúsum Sigurður Steindórsson b. í Miðhúsum Sigurborg Þorsteinsdóttir húsfr. í Blöndugerði Friðrik Jónsson b. í Blöndugerði Jóhanna Petrína Jónsdóttir húsfr. í Fögruhlíð Einar Eiríksson b. á Þóroddsstöðum í Ölfusi Magnea Árnadóttir húsfr. á Þóroddsstöðum Skarphéðinn Þráinsson Þráinn Skarphéðinsson prentari og framkvæmdastj Héraðsprents Gunnhildur Ingvarsdóttir prentsmiður í Héraðsprenti Ingvar Friðriksson f. í Steinholti Anna Björg Sigurðardóttir húsfr. í Steinholti Jórunn Einarsdóttir húsfr. í Rvík Skarphéðinn Vermundsson b. og verkam. í Rvík Vermundur Ásgmundsson b. í Fögruhlíð við Grensásveg í Rvík Á fjöllum Feðgarnir á Bláhnjúki. ÍSLENDINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2012 Jóhanna Eyrún Torfadóttirnæringarfræðingur hefur var-ið doktorsritgerð sína í lýð- heilsuvísindum við læknadeild Há- skóla Íslands, „Næring á mismunandi æviskeiðum og tengsl hennar við áhættu á krabbameini í blöðruhálskirtli. Lýðgrunduð fer- ilrannsókn á Íslandi“ (Dietary Ha- bits across the Lifespan and Risk of Prostate Cancer. A population- based study in Iceland). Rannsóknir gefa til kynna að um- hverfisþættir í æsku skipti máli fyrir meingerð blöðruhálskirtilskrabba- meins (BHK). Tilgangur þessarar rannsóknar var að rannsaka tengsl næringar á mismunandi ævistigum við áhættu á að greinast með BHK. Gögn úr Reykjavíkurrannsókn Hjartaverndar voru notuð, þar sem 8.894 karlmenn (fæddir á árunum 1907-1935) veittu upplýsingar um búsetu frá fæðingu. Með samteng- ingu við Krabbameinsskrá var karl- mönnunum fylgt eftir með tilliti til greiningar og dánarorsakar vegna BHK, frá fyrstu komu í Reykjavík- urrannsóknina á tímabilinu frá 1967 til 1987 til loka árs 2009. Niðurstöður sýna að búseta í sveit á unga aldri á fyrri hluta tuttugustu aldar tengdist áhættu á að greinast með langt gengið BHK. Ennfremur sást tenging milli tíðrar neyslu á mjólk á unglingsárum og reyktum og söltuðum fiski við aukna áhættu á langt gengnu BHK. Tíð neysla á rúgbrauði á unglingsárum og reglu- bundin neysla á lýsi á efri árum tengdist minnkaðri áhættu á langt gengnu BHK. Jóhanna Eyrún lauk BS-gráðu í matvælafræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og MS-gráðu í næringar- fræði árið 2001, einnig frá HÍ. Jó- hanna hefur starfað við rannsóknir á Statens Serum Institut í Kaup- mannahöfn, sem sérfræðingur á matvælasviði Umhverfisstofnunar og sem ráðgjafi skólamötuneyta hjá Reykjavíkurborg. Samhliða dokt- orsnáminu hefur hún sinnt stunda- kennslu og handleiðslu meistara- nema á heilbrigðisvísindasviði. Jóhanna er dóttir hjónanna Guð- rúnar Hildar Hafsteinsdóttur sér- fræðings og Torfa Rúnars Krist- jánssonar kerfisfræðings. Hún er gift Rafni Steinþórssyni prentara og eiga þau börnin Sigurð Darra, Kol- brúnu Lenu og Hildi Bellu. Doktor Doktor í lýðheilsuvísindum Laugardagur 90 ára Sigurður Pálsson 80 ára Guðrún B. Frímannsdóttir Katrín Georgsdóttir 75 ára Hilmar Andrésson Pétur Guðmundsson 70 ára Arnar Jóhannsson Edda Snorradóttir Edward Obara 60 ára Birgir Gr. Sigurpálsson Bryndís Gunnarsdóttir Guðmundur Guðbjartsson 50 ára Bjarni Már Bjarnason Bjarni Tómasson Davíð Jón Ingibjartsson Halla B. Þorkelsson Helgi Þór Ólafsson 40 ára Aðalsteinn Oddgeirsson Ásdís Sigurrós Jesdóttir Elín Þóra Ágústsdóttir Gunnar Þór Jónsson Hafdís Guðmundsdóttir Helga I. Sigurbjarnadóttir 30 ára Ágúst Fannberg Torfason Ásgeir Úlfarsson Róbert Magnússon Stefán Þorvarðarson Svanhvít Friðriksdóttir Sunnudagur 90 ára Árni Þórarinsson Hjördís Soffía Jónsdóttir Jón Marvin Guðmundsson Kristbjörg Héðinsdóttir 80 ára Alda Ingimarsdóttir Anna Ólafsdóttir Hulda Jóna Hávarðsdóttir Solveig G. Sigurjónsdóttir Valur Pálsson 75 ára Guðrún Guðmundsdóttir Kristmann Hjálmarsson Sigrún Davíðsdóttir Viðar Marmundsson 70 ára Birna Soffía Karlsdóttir Guðmundur Ingi Waage Guðrún Friðriksdóttir 60 ára Ásmundur Karl Ólafsson Ingibjörg G. Kristinsdóttir Klara Sólveig Jónsdóttir Kristján G. Guðmundsson 50 ára Ari Sigurðsson Berglind Grétarsdóttir Björgvin Árnason Helga Halldórsdóttir Hjördís Stefánsdóttir 40 ára Anna María Bogadóttir Björn Stefánsson Emma Ásudóttir Árnadóttir Helena Óladóttir 30 ára Atli Már Sveinsson Einar Páll Einarsson Jón Kristinn Helgason Sigrún Birna Blomsterberg Valtýr Sigurðsson Til hamingju með daginn 30 ára Úlfar ólst upp á Þingeyri en er nú búsett- ur í Kópavogi og starfar við smíðar. Maki: Sigríður Guðrún Guðjónsdóttir, f. 1982, grunnskólakennari. Sonur: Sófus Oddur, f. 2009. Foreldrar: Sunna Mjöll Sigurðardóttir, f. 1960, matráðskona við leik- skóla, og Sófus Oddur Guðmundsson, f. 1957, d. 2002, smiður. Úlfar Már Sófusson 30 ára Steinar Þór var b. í Odda í Bjarnarfirði en starfar nú hjá BYKO . Maki: Dagbjört Hildur Torfadóttir, f. 1979. Börn: Guðjón Örn, f. 2000, og Anna Theodóra, f. 2005. Fósturbörn: Mán- ey Dís, f. 2000, og Sóldís Eva, f. 2006. Foreldrar: Baldur Sig- urðsson, f. 1934, d. 2008, b. í Odda, og Erna Arn- grímsdóttir, f. 1945, b. í Odda í Barnarfirði. Steinar Þór Baldursson 30 ára Sölvi ólst upp í Odda í Bjarnarfirði, hefur starfað við pípulagnir en er nú bústjóri í Odda. Systkini: Árni Þór, f. 1964, fiskvinnslumaður hjá Drangi; Hafdís, f. 1966, fiskvinnslu hjá Drangi; Steinar Þór, f. 1982, starfsmaður BYKO. Foreldrar: Baldur Sig- urðsson, f. 1934, d. 2008, b. í Odda, og Erna Arn- grímsdóttir, f. 1945, b. í Odda í Barnarfirði. Sölvi Þór Baldursson ÞARFNAST ÞÚ MEIRI ORKU TIL DAGLEGRA STARFA? Betri heilsa borgar sig! Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is Orkulausnir, henta einstaklingum sem glíma við orkuleysi, þrekleysi, verki eða svefnvanda, svo sem einstaklingum með vefjagigt og þeim sem þurfa þjálfun eftir veikindi af ýmsum toga. Orkulausnir hefjast 4. september 8 vikna námskeið. Þjálfun 2x í viku: Þri og fim kl. 15:00. Fræðsla um svefntruflanir, streitu, andlega líðan og verki. Einstaklingsviðtal við hjúkrunarfræðing. Þjálfari: Linda Gunnarsdóttir, sjúkraþjálfari. Verð kr. 16.900 pr. mán. (samtals 33.800 kr. fyrir 8 vikur). • • • • • • •

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.