Morgunblaðið - 01.09.2012, Side 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2012
Úthlutað var úr styrktarsjóð Hall-
dórs Hansen í Sölvhóli í gær. Að
þessu sinni fengu tvær ungar tón-
listarkonur úthlutað úr sjóðnum,
þær Elísabet Einarsdóttir söngkona
og Jane Ade Sutarjo píanóleikari, en
þær útskrifuðust báðar frá tónlist-
ardeild Listaháskóla Íslands síðast-
liðið vor. Báðar hljóta þær 500.000
kr. í styrk.
Halldór Hansen barnalæknir
ánafnaði Listaháskóla Íslands tón-
listarsafn sitt og arfleiddi skólann að
öllum eigum sínum þegar hann lést
árið 2003. Meginmarkmið sjóðsins
er að styrkja uppbyggingu og styðja
við tónlistarsafn skólans, en einnig
veitir sjóðurinn árlega styrki til tón-
listarnema sem hafa náð fram-
úrskarandi árangri á sínu sviði.
Þetta var í áttunda sinn sem veitt
eru verðlaun úr sjóðnum.
Elísabet Einarsdóttir hóf klass-
ískt söngnám við Listaháskóla Ís-
lands fyrir fjórum árum. Hluta af
námstímanum dvaldi Elísabet í Míl-
anó sem skiptinemi við Conservato-
rio di Musica Giuseppe Verdi.
Jane Ade Sutarjo flutti til Íslands
frá Indónesíu haustið 2008. Hún
lauk einleikaranámi á fiðlu vorið
2011 en hefur samhliða lagt stund á
einleikaranám á píanó.
Styrkveiting Elísabet Einarsdóttir
og Jane Ade Sutarjo.
Úthlutað
úr styrkt-
arsjóði
Tvær ungar tón-
listarkonur fá styrk
Ljósmynd/Óskar Hallgrímsson
Á sunnudag verða haldnir tón-
leikar í Laugardælakirkju við
Selfoss í tilefni af því að 40 ár
eru liðin frá lokum einvígis ald-
arinnar; skákeinvígis þeirra
Boris Spasskys og Bobbys
Fischers 1972, en Spassky gaf
21. skákina 1. september 1972.
Á tónleikunum verður flutt
tónverk eftir Guðlaug Kristin
Óttarsson sem byggist á tón-
kerfi Bachs og verður meðal
annars flutt á skákborði, en einnig leika Dean
Ferrell á kontrabassa og Einar Melax á hljóm-
borð. Tónleikarnir hefjast kl. 18.00. Allir eru vel-
komnir og aðgangur er ókeypis.
Skáklist
Fischers minnst í
Laugardælakirkju
Bobby
Fischer
Hallveig Rúnarsdóttir sópr-
ansöngkona og Gerrit Schuil
píanóleikari halda tónleika í
Egilsstaðakirkju í dag kl. 16. Á
þeim munu þau flytja tvo af
helstu ljóðaflokkum sem hafa
verið samdir fyrir konur, ann-
ars vegar Stúlkan á heiðinni
eftir Edvard Grieg og hins
vegar Sumarnætur eftir Hec-
tor Berlioz. Tónleikarnir eru
hluti tónleikaraðar Hallveigar
og Gerrits en þau eru þekkt fyrir flutning sinn á
ljóðasöng. Hallveig hefur haldið fjölda ljóða-
tónleika hér á landi sem erlendis og Gerrit er einn
af okkar helstu ljóðameðleikurum.
Tónlist
Ljóðaflokkar
fyrir konur
Hallveig
Rúnarsdóttir
Þjóðlagasveitin Hrafnar held-
ur útgáfutónleika í Gamla fjós-
inu, Hvassafelli undir Eyja-
fjöllum í kvöld kl. 21.30 en
hljómsveitin sendi nýverið frá
sér 12 laga breiðskífu sem
nefnist Krunk. með Hröfnum
sem kallast Krunk. Lögin eru
flest hver erlend þjóðlög með
textum eftir Hrafna.
Hljómsveitina skipa þeir
Georg Ólafsson, Hermann Ingi
Hermannsson, Hlöðver Guðnason og Vignir
Ólafsson en auk þeirra verða Helgi Hermannsson
og Hilmar Sverrisson sérlegir aðstoðarhljóðfæra-
leikarar á tónleikunum..
Tónlist
Krunk Hrafna í
Gamla fjósinu
Hermann Ingi
Hermannsson
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Helgi Gíslason myndhöggvari opnar
sína tuttugustu einkasýningu í
Gerðarsafni í dag kl. 15. Á sýning-
unni sýnir Helgi höggmyndir unnar
í brons og járn á síðustu þremur ár-
um, en einnig sýnir hann teikningar.
„Ég hef verið að vinna mikið með
teikningar og verk unnin í gifs, lág-
myndir, en tók upp þráðinn með
bronsið aftur. Ég geri líka tilraunir
með annað efni eins og króm og gal-
vaníseringu og mála líka verk með
bílalakki, til að ganga örlítið gegn
þessari hefðinni örlítið, þessu efni
sem krefst alltaf meiri og meiri ná-
kvæmni,“ segir Helgi og bætir við
að það sé eins og innbyggt í bronsið
að það vilji að maður vinni það
meira og meira „og þá reynir maður
að ganga gegn því“.
Eins og Helgi nefnir hefur hann
aðallega unnið verk í gifs og einnig
að teikningum á undanförnum ár-
um, en spurður um hvort viðhorf
hans til bronsins hafi eitthvað
breyst svarar hann neitandi. „Þetta
var nú aðallega af praktískum
ástæðum, þetta er afskaplega dýrt
efni að vinna með.“ Yfirskrift sýn-
ingarinnar er Í húminu. Helgi segir
að sá titill hafi orðið til á síðustu
stundu, eins og hann orðar það, „því
þetta er svona einhvers staðar á
milli draums og veruleika, í húminu,
hinu óræða þar sem hlutirnir geta
gerst, hið ómögulega getur gerst,“
segir Helgi og bætir við að þegar
verkin hafi verið komin upp á sýn-
ingunni og hann kominn út úr svit-
anum og verkinu þá loks hafi mynd-
irnar öðlast sitt sjálfstæði og hann
séð heildarmyndina og einhverskon-
ar niðurstöðu af því sem áður var
laust í reipunum. „Það er bráðnauð-
synlegt að setja upp sýningu, ef
maður vinnur verður maður að
sýna. Annars situr maður bara uppi
með allt saman og fær aldrei nið-
urstöðu. Maður verður að reyna að
ljúka einhverri ákveðinni hugsun
sem maður er búinn að fullvinna og
komast að einhverri niðurstöðu. Þá
er hún í burtu og afgreidd, en ann-
ars er hún að þvælast fyrir manni
allt of lengi.“
Í húminu, hinu óræða, þar
sem hið ómögulega getur gerst
Helgi Gíslason
sýnir höggmyndir
unnar í brons
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Niðurstaða Helgi Gíslason myndhöggvari opnar sína tuttugustu einkasýningu í Gerðarsafni í dag.
Magnús Eiríksson, sá stór-jöfur íslenskrar dæg-urtónlistar síðustu 40árin, sendir með reglu-
legu millibil frá sér vandaðar plötur
sem allar bera glögg merki höfund-
arins. Hvort heldur er í eigin nafni, í
félagi við aldavin
sinn KK ellegar
undir merkjum
Mannakorna, þá
allt hans efni sam-
ið af áreynsluleysi
og skrýtt hnyttn-
um og oft flug-
beittum ádeilutextum. Á nýjustu
plötu tónskáldsins, sem nefnist Í
blómabrekkunni og er með hljóm-
sveit hans Mannakornum, er að finna
10 dæmigerð Magnúsarlög. Blúsað
gítarpopp, kántrískotið hér og hvar,
og ávallt þægilegt áheyrnar. Þá er
hljóðfæraleikur framúrskarandi eins
og við er að búast. Ellen Kristjáns-
dóttir er með í för eins og á síðustu
plötu, Von frá 2009, og ljær tveim lög-
um hunangsrödd sína; að ósekju hefði
mátt láta henni hljóðnemann eftir í
fleiri lögum því hún er prýðilegt mót-
vægi við söngraddir Magnúsar sjálfs
og Pálma Gunnarssonar og kemst
eins og alltaf óaðfinnanlega frá sínu.
Eftir sinn gifturíka feril er Magnús
sumpart yfir gagnrýni hafinn með
plötuútgáfu sína; það er á vísan að róa
þegar músík hans er annars vegar,
hljómurinn slípaður eftir langan velt-
ing í bransanum og tíma kúvendinga
að baki. Þetta hjól er löngu fullgert
og út af fyrir sig óþarft að hanna það
upp á nýtt.
Þeir sem kunna Magnús að meta fá
akkúrat það sem þeir vænta, hinir
fara bara annað. Lögin eru svo sem
misjafnlega sterk eins og gengur en
ekkert þeirra fer með afgerandi hætti
niður fyrir meðallagið, og textarnir
eru í heildina prýðilegir, ekki síst
þegar Magnús kveður blúsrímur;
skáldið er alla jafna í ham þegar
svarti hundurinn gengur honum við
hlið. Það er iðulega tregi í glettnum
textunum, en góðu heilli er að sama
skapi galsabroddur í blúsnum.
„Brim“ er úrvalsgott lag enda þéttur
blús, „Vals númer tvö“ er kántríblús
og sleipur sem slíkur. „Meðan sumar
framhjá fer“ nefnist svo eitt albesta
lag plötunnar, haganlega samið og
blessunarlega sungið af Ellen. Það er
nánast ógerningur að ímynda sér
aðra rödd syngja þetta lag en hennar,
keik og viðkvæm í senn. Loks er loka-
lagið, „Í Kirkjugarði“, hreint afbragð.
Annað líður þægilega hjá og mun
vafalaust gleðja fjölmarga aðdáendur
Magnúsar og ekki að ósekju.
Glettinn Magnúsarblús
Morgunblaðið/Eggert
Kátir Mannakornsfélagarnir Magnús Eiríksson og Pálmi Gunnarsson.
Í Blómabrekkunni bbbnn
Breiðskífa Mannakorna, sem telur
Magnús Eiríksson og Pálma Gunn-
arsson. Ellen Kristjánsdóttir syngur í
tveim lögum. Magnús semur lög og
texta. Sena gefur út.
JÓN AGNAR ÓLASON
TÓNLIST
Katalónski myndlistarmaðurinn
Lluc Queralt Baiges opnar í dag kl.
16 myndlistarsýninguna „Íslend-
ingar“ í Reykjavík Art Gallery að
Skúlagötu 30. Baiges er listrænn
ljósmyndari að mennt og er efnivið-
urinn í sýningu hans Íslendingar
um aldamótin 1900. Baiges vann
verkin út frá gömlum ljósmyndum,
veggspjöldum og bókum frá þeim
tíma. Um sýninguna segir hann
m.a. að með henni sé gerð tilraun til
að endurspegla fortíðina í nútíð-
inni. Baiges segist almennt í verk-
um sínum sækja innblástur í fortíð-
ina þó verkin séu í eðli sínu
nútímaleg.
Fortíðin endur-
spegluð í nútíma
Íslendingar Eitt verka Baiges.