Morgunblaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2012
Í kvöld verður haldið svokallað
„Oldskool Hardcore“ kvöld á Þýska
barnum, en þá er spiluð danstónlist
frá árunum 1990 til 1993, en einnig
fær að hljóma jungle og drum ’n’
bass frá árunum 1994-1998.
Maggi Lego og Þórhallur Skúla-
son ríða á vaðið, en þeir voru meðal
helstu brautryðjenda í íslenskri
danstónlist á sínum tíma.
Dj Frímann spilaði mikið á ólög-
legum uppákomum á þessum tíma
þar sem spiluð var danstónlist, en
hann kemur fram með Bjössa
Brunahana.
Þeir Maggi, Þórhallur, Frímann
og Bjössi leika aðallega hardcore,
en Reynir Pálsson, einn liðsmanna
Skýjum ofar og einn stofnenda
breakbeat.is, leikur jungle og drum
and bass, en sú tónlist tók við af
hardcore-inu.
Goðsögn Þórhallur Skúlason og
Sigurbjörn Þorgrímsson heitinn
skipuðu Hardcore-sveitina Ajax.
Oldskool Hardcore kvöld
Það hefur verið einkar at-hyglisvert að fylgjast með„gengi“ rússneskukvennasöngsveitarinnar
(svo ég vitni nú í Með allt á hreinu)
að undanförnu og hafa lætin í kring-
um hana varla farið framhjá nokkr-
um manni. Hér er tekist á um
grundvallargildi, þann rétt að tala
frá hjartanu um eitthvað sem maður
er ósammála og nota til þess aðferð-
ir eftir eigin höfði.
„Frelsi“
Þegar gengið er svo rösklega
gegn því sem hingað til hefur verið
talið boðlegt verður ávallt úlfaþytur,
þannig er heimssagan og viðbrögðin
koma ekki á óvart. Íhaldsmenn
fussa og sveia yfir ræfla-
rokkurunum líkt og þeir hafa alltaf
gert, hvort sem árið er 1968, 1977
eða 2012, á meðan þeir sem hallari
eru undir sósíalísk viðhorf fagna
sem mest þeir mega yfir tiltæki
Bono sjálfur í „God Part II“. Og
kannski er of langt seilst að ætla að
bera saman starfsemi Pussy Riot í
Rússlandi og þjóðernisbaráttu þá
sem Runrig hefur unnið að í gegn-
um tíðina. Það yrði þó forvitnilegt
að sjá hvernig breskt réttarkerfi
myndi bregðast við ef ungsveitin
Haggis Riot færi að vera með uppi-
stand í helgustu véum Bretadrottn-
ingar.
Tónlistin gerir
yður frjálsan …
Reuters
Eltingaleikur Rússneskur lögreglumaður eltist við eina af stuðningskonum pönksveitarinnar Pussy Riot.
sveitarinnar. Sveitarinnar já, því að
Pussy Riot er rokkhljómsveit, pönk-
hljómsveit svo við gerumst ná-
kvæm, og það er í gegnum þá ver-
und sem meðlimir hafa viðhaft
mótmæli sín. Við könnumst vel við
notkun tónlistar til að koma á breyt-
ingum og vekja fólk til umhugsunar
um brýn samfélagsmál í popp-
heimum, sjá Dylan, U2, Sex Pistols
o.s.frv. Og þar á undan alþýðu-
söngvar frá Woody Guthrie og álíka.
Og enn aftar er hægt að fara, þegar
hirðfífl og farandskáld potuðu í
valdhafa með kímnigáfu að vopni.
Ég fór að hugsa um þessa hluti
þegar ég var staddur inni í O2-
verslun hér í Edinborg, af öllum
stöðum. Skyndilega brast á með lagi
af nýjustu plötu PJ Harvey, Let
England Shake, og ég varð – eins og
venjulega – hissa og gjörsamlega
gagntekinn af kraftinum í þessari
plötu. Undir lögunum kraumar ein-
hver orka sem erfitt er að henda
reiður á, eins og Harvey hafi náð að
fanga eitthvað ógurlegt í lagasmíð-
unum sem eru, augljóslega og líka
ekki eins augljóslega, gagnrýni á
England og einhvers konar ljúfsár
hugleiðing um stöðu þess, eðli og
eigindir, innbyggða galla og ljót-
leika.
Hugur minn beindist því um-
svifalaust til Skotlands í framhald-
inu, því hér eru ungir sem aldnir að
velta fyrir sér mögulegu sjálfstæði
af miklum móð – sjálfstæði frá Eng-
landi þá fyrst og fremst sem er „að-
al“ í því sem kallað er Stóra-
Bretland. Undiraldan er tilfinnanleg
og birtist m.a. í plötubúðunum þar
sem búið er að setja skoska tónlist í
öndvegi. Runrig og ámóta sveitir
standa þar stoltar í eigin rekkum.
Hversu mikla rullu getur tónlist
spilað þegar samfélög eru að oln-
boga sig í átt að einhverju sem væri
hægt að kalla „frelsi“? Ekki var hún
í forgrunni hérlendis. En hefur
reynst beitt vopn í Rússlandi greini-
lega. Yfirvöld þar eru, greinilega,
hrædd. Björk átti þá kröftuga inn-
komu í baráttu Grænlendinga og
Færeyinga með laginu sínu „De-
clare Independence“. Í Skotlandi er
tónlistin að miklum hluta samofin
þjóðarímyndinni og gæti reynst
mönnum vel. Ég sé samt ekki mið-
aldra meðlimi Runrig fyrir mér á
bak við lás og slá. Eða hvað?
Haggis Riot!
„I don’t believe that rock n’ roll /
Can really change the world“ söng
»Ég sé samt ekki mið-aldra meðlimi Runrig
fyrir mér á bak við lás
og slá. Eða hvað?
Pönkpíurnar í Pussy Riot hafa vakið
heimsathygli að undanförnu En er
það svo að rokktónlist geti komið á ein-
hverju sem hægt er að kalla umbætur?
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is
56.000 MANNS!
ÍSL TEXTI
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
2 VIKUR Á TOPPNUM Í USA
THE EXPENDABLES 2 Sýnd kl. 6 - 8 - 10:10 (Power)
ÁVAXTAKARFAN Sýnd kl. 2 - 4 - 6
PARANORMAN3D Sýnd kl. 1:50 - 4
INTOUCHABLES Sýnd kl. 3:50 - 5:50 - 8 - 10:20
THE WATCH Sýnd kl. 10:20
BRAVE:HINHUGRAKKA Sýnd kl. 2
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
:10
ÍSL TAL
16
7
12
12
L
ÍSL TAL
L
ÍSL TAL
MEÐ
ÍSLENSKU
TALI
TRYGGÐU
ÞÉR MIÐA
Á
3D
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%*AÐEINS SUNNUDAG.GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
ÁVAXTAKARFAN KL. 1 (TILBOÐ) - 3 - 5.40 L
THE EXPENDABLES 2 KL. 5.40 - 8 - 10.20 16
THE EXP. 2 LÚXUS KL. 1 - 3.20 - 5.40 - 8 - 10.20 16
THE WATCH KL. 8 - 10.20 / TOTAL RECALL KL. 8 -10.35
PARANORMAN 3D ÍSL.TAL KL. 1 (TILB.) - 3.30 - 5.40
BRAVE: HIN HUGRAKKA 2D KL. 1 (TILBOÐ) - 3.30 L
BRAVE: HIN HUGRAKKA 3D KL. 5.45 L
ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL. 1 (TILBOÐ) - 3.30 L
TED KL. 8 12 SPIDER-MAN 3D KL. 10.20 10
ÁVAXTAKARFAN KL. 3.30 (TILBOÐ) - 6 L
THE EXPENDABLES 2 KL. 5.40* - 8 - 10.20 16
PARANORMAN 3D KL. 3 (TILBOÐ) 7
THE WATCH KL. 8 -10.20 12 / ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL. 3(TILB.)
TO ROME WITH LOVE KL. 5.30 - 8 - 10.30 L
INTOUCHABLES KL. 3 (TILBOÐ) - 5.30 - 8 - 10.30 L
ÁVAXTAKARFAN KL. 2 (TILB) - 4 - 6 L
THE EXPENDABLES 2 KL. 6 - 8 - 10 16
PARANORMAN 3D KL. 2 (TILB.) / ÍSÖLD 4 3D KL. 4 L
THE WATCH KL. 8 - 10 12