SunnudagsMogginn - 09.09.2012, Síða 8
8 9. september 2012
Ígló er íslenskt fyrirtækisem hannar og selurbarnaföt. Ígló var stofn-að haustið 2008, fyrsta
fatalínan kom á markað
haustið 2009 og hefur fyrir-
tækið sent frá sér sjö fatalín-
ur, sú nýjasta er haust- og
vetrarlína 2012.
Stofnandi og hönnuður Ígló
er Helga Ólafsdóttir, sem
svarar hér nokkrum spurn-
ingum um nýjustu línuna en
ný verslun var opnuð í
Kringlunni fyrir helgi.
Hver er hugsunin bak við
línuna?
Ígló-hönnunin og -heim-
urinn er byggður á upplifun-
um, teikningum og sögum frá
börnum allt í kringum okkur.
Ígló-flíkurnar eru litríkar og
skreyttar skemmtilegum og
óvæntum smáatriðum eins og
pífum, slaufum, olnbogabót-
um og mynstrum. Jafnframt
því sem við viljum að fötin
séu falleg og skemmtileg
finnst okkur afar mikilvægt
að þau séu þægileg fyrir
börnin og slitsterk.
Hvaðan færðu innblástur,
einhverjir sérstakir litir eða
straumar í vetur?
Innblástur fyrir haust- og
vetrarlínu Ígló árið 2012 kem-
ur úr tveimur andstæðum átt-
um, norðri og suðri. Ég varð
hugfangin af ljósmyndum
Ragnars „RAX“ Axelssonar
eftir að ég sá heimildarmynd-
ina hans Last Days Of The
Arctic þar sem hann deilir
sinni einstöku sýn á grófu og
villtu landslagi norðurskauts-
ins. Svart-hvítu myndirnar
hans af fjarlægum slóðum á
Íslandi og Grænlandi eru ein-
stakar. Þessi sýn hvatti mig til
að leika mér með svart og
hvítt og mismunandi gráa liti
á flíkurnar ásamt prenti af
dýrum, teiknuðum með fín-
um blýanti.
Úr suðri koma áhrif frá
listamanninum Miguel Pare-
des frá Miami. Ég heillaðist af
litasamsetningum í verkunum
hans og þeirri orku sem stafar
af þeim. Í andstæðu við hvítar,
gráar og svartar flíkur eru
flíkur í sterkum litum eins og
rauðum, dökkbláum, bleik-
um, brúnum og fjólubláum
ásamt köflum og doppum.
Hvaða efni notarðu?
Flest Ígló-föt eru úr 100%
bómull þar sem sérstaklega
mjúk bómull er valin. Ígló er
einnig með flísfatnað sem hef-
ur verið rosalega vinsæll frá
byrjun.
Eru þetta spariföt, hvers-
dagsföt eða bæði?
Ígló-línan er alltaf að
breikka, hún er hugsuð fyrir
allan daginn og alla vikuna,
bæði spariföt, hversdagsföt og
flísfatnaður. Á næstunni er
væntanlegir Ígló-sokkar,
sokkabuxur, prjónapeysur og
fleira óvænt.
Eru fötin fyrir bæði stráka
og stelpur? Fyrir hvaða aldur
eru þau ætluð?
Fyrir bæði stelpur og stráka
á aldrinum 0-12 ára. Við erum
að bæta við stærð fyrir nýfædd
börn, einnig höfum við verið
að bæta við stærðum fyrir
eldri börn uppí 12-13 ára.
Hvað þarf sérstaklega að
hafa að leiðarljósi þegar
hannað er fyrir börn?
Það er snúið að hanna
barnaföt. Börn eru kröfu-
harðir viðskiptavinir, en við
bætist að kaup á barnafötum
eru yfirleitt sameiginleg
ákvörðun barnsins og foreldra
þess. Með hönnun á barnaföt-
um þarftu því að fullnægja
kröfum barnsins og foreldr-
anna. Börn þurfa að geta leikið
sér allan daginn í fötunum.
Fötin verða að vera þægileg
fyrir börnin og hönnunin
endurspegla lífsgleði og kraft
barnæskunnar, en á sama
tíma að gleðja augu foreldr-
anna, sem auðvitað vita ekk-
ert fegurra en börnin sín. Öllu
máli skiptir þó að börnin vilji
vera í Ígló-fötunum sínum.
Svo sakar ekki að foreldr-
unum finnist fötin falleg og
njóti þess að fara með börnin
sín í Ígló-fötum hvert sem
ferðinni er heitið. Við bættum
líka við einu smáatriði á
hverja flík, Ígló-kallinum.
Kallinn er á hverri flík, á mis-
munandi stöðum. Honum
hefur verið tekið opnum örm-
um af börnum um allt land
sem njóta þess að hafa þennan
litla vin með sér hvert sem
þau fara.
Úr norðri og suðri
Helga Ólafsdóttir stofnandi og
aðalhönnuður íslenska barnafata-
merkisins Ígló segir börn kröfu-
harða viðskiptavini. Hún fékk
meðal annars innblástur frá ljós-
myndum Ragnars „RAX“ Axels-
sonar við gerð vetrarlínunnar í ár.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Ljónið sæmir sér vel á þessari peysu.
Ljósmyndir/Bernhard Kristinn Ingimundarson
Leikur að
gráum tónum
og teikn-
ingum.
Við hæfi kraftmikilla krakka.
Ígló er líka fyrir yngstu börnin.
Börn þurfa að geta leikið sér allan daginn í fötunum.
’
Fötin
verða
að vera
þægileg fyrir
börnin og
hönnunin
endurspegla
lífsgleði og
kraft barn-
æskunnar, en
á sama tíma
að gleðja
augu foreldr-
anna, sem
auðvitað
vita ekkert
fegurra en
börnin sín.
Þessi vara
er laus við:
Mjólk
Glúten
Sykur
Soja
Rotvarn-
arefni
10
0%
NÁ
TTÚRULEG
T
100%
NÁTTÚRU
LE
G
T
N Ý T T O G E N N B E T R A
Góð melting er undirstaða
að góðu dagsformi
PRÓGASTRÓ
-inniheldur m.a. hinn öfluga
DDS1 asídófílus sem er bæði
gall- og sýruþolin.
PRÓGASTRÓ
-er sannkölluð himnasending
fyrir meltinguna, bætir og byggir
meltingarflóruna og hefur reynst
vel þeim sem þjást m.a. af
meltingarkrampa, uppþembu,
kandíta, lausri og tregri meltingu.
PRÓGASTRÓ kemur í 100
hylkja glerglösum með
íslenskum leiðbeiningum
Fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum
og heilsuhillum stórmarkaðanna www.gengurvel.is
3DDS PLÚS®
3DDS PLÚS®
P
R
E
N
T
U
N
.
I
S
UPPLIFÐUMUNINN!