SunnudagsMogginn - 09.09.2012, Blaðsíða 13

SunnudagsMogginn - 09.09.2012, Blaðsíða 13
9. september 2012 13 Bíla- og vélavörur ...sem þola álagið! Það borgar sig að nota það besta! Viftur HjólalegusettKúlu- og rúllulegur Hemlahlutir Hjöru- og öxulliðir Stýrisendar og spindilkúlurViftu- og tímareimar Kúplingar- og höggdeyfar th or ri@ 12 og 3. is /3 1. 31 3 www.falkinn.is Fyrir nokkru átti ég þess kost að heimsækja þann hlutaHarvard-háskóla sem kennir sig við John F. Kennedyog sérhæfir sig í opinberri stjórnsýslu. Í stuttri skoð-unarferð um fremur látlaus húsakynni skólans sagði fyrrverandi nemandi frá metnaðarfullri stefnu, áherslum og af- rekum skólans. Sérstaka athygli vöktu áberandi veggskreyting- ar víða á skólasvæðinu með áletruninni; „ask what you can do“ eða „spyrðu hvað þú getur gert“. Þrátt fyrir augljósa tilvísun í fræga ræðu fyrrverandi forseta, sem hvatti landa sína til að spyrja ekki aðeins hvað landið þeirra gæti gert fyrir þá heldur hvað þeir gætu gert fyrir landið sitt, var upplýst að þessar veggskreytingar væru ekki aðeins upprifjun á þessum fallegu orðum heldur stöðug áminning um kjarnann í öllu starfi skólans. Nemendur eru hvattir til að spyrja sig þess- arar spurningar og skólinn sér það sem sitt meginhlutverk að útskrifa einstaklinga sem axla ábyrgð, skilja að framlag allra skiptir máli og hafa það að markmiði að bæta samfélagið. Leið- arljósið er þannig skýrt og alltaf í forgrunni; spyrðu hvað þú get- ur gert. Undir þessari lýsingu varð mér hugsað heim. Heim til Ís- lands sem þarf svo mikið á því að halda að við öll, hvert fyrir sig og hvert fyrir annað, spyrjum okk- ur að því hvað við getum gert. Hvað við getum gert fyrir landið okkar, fólkið og framtíðina. Svörin verða auðvitað mismun- andi eftir einstaklingum og að- stæðum en þau verða öll merki- leg og mikilvæg til að okkur takist að byggja hér gott sam- félag. Það hefur lengi verið skoðun mín að það verk sem þjóðin stendur frammi fyrir og bíður okkar næstu árin sé stærra en svo að það verði leyst af einum leiðtoga, einni ríkisstjórn eða einum meirihluta. Verkið þarfnast okkar allra og það þarfnast þess að við séum reiðubúin að spyrja fyrst hvað við getum sjálf gert, áður en lausnanna er leitað hjá öðrum eða öðru. Í stóru sem smáu geta allir lagt hönd á plóg. Ekki aðeins þeir sem með völdin fara og eiga og geta gert það besta fyrir land og þjóð, heldur einnig þeir sem veita því valdi aðhald og eiga og geta bent á aðrar lausnir og þannig haft áhrif til góðs. Ef betur væri hlustað á þær raddir og aðrar og ef stjórnmálamenn væru almennt reiðubúnir að vinna með lýðræðislegri hætti í anda áminningarinnar um „hvað ég get gert“ væri stórsigur unnin. En slík breyting í stjórnmálum skiptir þó ekki öllu, nema breyt- ing í almennu hugarfari okkar allra fylgi. Verkið framundan þarfnast allra. Ekki aðeins stjórnmála- manna sem skilja að þeirra hlutverk er að gera sitt allra besta fyrir sem allra flesta, heldur einnig kennara sem vita að góð menntun gerir framtíðina betri og bjartari; iðnaðarmanna sem vita að vel unnið verk er þeim til sóma og öðrum til öryggis og ánægju; fræðimanna sem vita að vönduð þekkingarleit er for- senda nýrra uppgötvana og aukinna lífsgæða; álitsgjafa sem skilja að vandvirkni og virðing skiptir miklu til að lýðræðisleg umræða sé almenn og skili árangri og foreldra sem vita að fátt er mikilvægara en að búa börnin sín undir þá áskorun að spyrja sig stöðugt hvað þau geti gert sjáfum sér og öðrum til góðs. Við þekkjum öll sögur af einstöku fólki sem svarar þessari spurningu með afgerandi hætti. Hvort sem það er bekkur í Hagaskóla sem nýlega safnaði fyrir hughreystandi gjöf handa ungum vin sem hafði misst föður; sá stóri hópur fólks sem á ári hverju hleypur Reykjavíkurmaraþon og safnar áheitum til góðra mála eða lögfræðinemarnir sem reglulega bjóða þeim sem þurfa mikilvæga ráðgjöf og aðstoð án endurgjalds. Allt einstaklingar sem hafa spurt sig hvað þeir sjálfir geta gert og svarað með því að láta gott af sér leiða. Einstaklingar sem bíða ekki eftir því að aðrir gangi til verka fyrir þá, heldur ganga sjálfir til þeirra verka. Ísland er auðugt af slíku fólki. Nýtum þá auðlind, þann vilja og kraft og minnum okkur sjálf og hvert annað stöðugt á spurn- inguna; hvað getur þú gert? Hvað getur þú gert? ’ Það hefur lengi verið skoðun mín að það verk sem þjóðin stendur frammi fyrir og bíður okkar næstu árin sé stærra en svo að það verði leyst af einum leiðtoga, einni ríkisstjórn eða einum meirihluta. Úr ólíkum áttum Hanna Birna Kristjánsdóttir hanna.birna.kristjansdottir- @reykjavik.is Fyrirsætur stilla sér upp á tískukynningu Nonoo á tískuhátíð sem kennd er við Mercedes Benz og haldin í Milk Studios í New York. Þar eru hönnuðirnir þegar farnir að spá og spekúlera í vor- tískunni. Og líklega verður þetta að teljast fyrsti vor- boðinn. Veröld Fyrsti vorboðinn AFP Sunnuhlíð 12, Akureyri, sími 462 1415 www.tonabudin.is Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340 www.hljodfaerahusid.is Fullkomin netverslun með hljóðfæri og hljóðbúnað Nýr og glæsilegur vefur www.hljodfaerahusid.is

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.