SunnudagsMogginn - 09.09.2012, Blaðsíða 17

SunnudagsMogginn - 09.09.2012, Blaðsíða 17
9. september 2012 17 unarkerfið og sjávarútveginn. Þar treystum við á vísindalega ráðgjöf Hafró og höfum borið gæfu til að ganga vel um fiskistofnana. Ég held að allir séu sammála um að ekki væri gott ef stjórn- málamenn færu að eiga mikið við það.“ Kapp er best með forsjá „Svo er hitt, að óróinn hefur verið svo mikill eftir fall bankanna og það hefur litað stjórnmálin. Sett hafa verið fram mál í bullandi ágreiningi í stað þess að byrja á þeim sem við erum sammála um að séu til bóta. Átakalínurnar eru á vit- lausum stöðum. Stjórnarskráin er dæmi um það og aðildarumsóknin að ESB. Það hefði verið ráðlegra að koma hag heim- ilanna í betra horf og taka síðan deilur um grundvallaratriði þegar komin er meiri kyrrð á þjóðfélagið. Það er ómögulegt að vera í stríði á öllum víg- stöðvum.“ – Hafa sjálfstæðismenn gert upp sín mál eftir bankahrunið? „Við sjálfstæðismenn höfum alltaf haldið að við værum best til þess fallin að stýra efnahagsmálum, að okkar styrkur væri skynsamleg stefna í rík- isfjármálum. Ef ég hefði talað við þig fyrir nokkrum árum, þá hefði ég fullyrt að sagan sýndi að engum flokki væri betur treystandi í þeim efnum. Það var því auðvitað gríðarlegt áfall fyrir okkur, og það sýndi sig í síðustu alþingiskosn- ingum, að lenda í þessum hrikalegu hremmingum í okkar ríkisstjórnartíð. Sjálfstæðisflokkurinn hafði verið í rík- isstjórn í átján ár og það væri fráleitt ef við horfðum ekki til þessara hluta og hugsuðum hvað við hefðum átt að gera öðruvísi. Við treystum því að viðskipti færu fram með eðlilegum hætti, treystum því að með því að hleypa einkaframtakinu inn í ríkisbankana myndi það skila já- kvæðum áhrifum fyrir þjóðarbúið í heild. Og ég held að það hafi verið rétt hugsun. Ég er ósammála því að við ætt- um að vera með ríkisbanka. Hitt er svo annað mál, að við áttuðum okkur ekki á því hvað var á seyði inni í bönkunum. Við sáum ekki fyrir þau óveðursský sem voru að hrannast upp erlendis og hvaða áhrif þau gætu haft hér heima. Og auð- vitað ber Sjálfstæðisflokkurinn ábyrgð þar sem leiðandi flokkur í ríkisstjórn á þeim tíma og hefur aldrei vikist undan henni. Þegar við lítum til framtíðar, hvað horfir til heilla fyrir þjóðina, þá er eftir sem áður skynsamlegt að treysta áfram markaðskerfið, að draga úr rík- isafskiptum og skapa jarðveg fyrir frjáls viðskipti. En við eigum að hafa gætur á því hvað þar fer fram. Allt kapp er best með forsjá.“ Pólitísk stefnumörkun – Ólík sjónarmið togast á innan Sjálf- stæðisflokksins. Hvernig finnst þér hafa tekist að þétta raðirnar þar? „Staða varaformanns breyttist á síð- asta flokksstjórnarfundi þegar nýja embættið kom til, þannig að nú er ég með pólitíska stefnumörkun og annar varaformaður með innra starfið. En það var mikil ögrun fyrir mig þeg- ar ég var kjörin varaformaður árið 2010 að vinna að því að þjappa flokknum betur saman. Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir hafði verið öflugur varafor- maður fyrir flokkinn og þegar hún dró sig til baka var þetta stærsta verkefnið sem beið mín. Í öllum flokkum verða átök og spenna milli hópa, en mér hefur þótt ganga bærilega. Andstæðingar flokksins töluðu um að kosningarnar 2009 væru svo mikið áfall fyrir Sjálf- stæðisflokkinn að það myndi taka óra- tíma að byggja hann upp aftur. En við vitum fyrir hvað flokkurinn stendur og smátt og smátt hefur honum vaxið ás- megin. Ég hef lagt mig fram um að brúa sjónarmið höfuðborgar og landsbyggðar í mínu starfi. Ég byrjaði sem þingmaður í Norðausturkjördæmi og tel að það hafi dýpkað mig mikið í stjórnmálum. Og þó að ég sé þingmaður Reykvíkinga, þá er ég auðvitað sem varaformaður fulltrúi allra á landinu. Ég held það sé mjög hollt fyrir þingmenn Reykvíkinga að hitta fólk á landsbyggðinni og sömu- leiðis mikilvægt að fólk úti á landi skilji stöðu höfuðborgarinnar. Mér hefur þótt skemmtilegast að tengja saman ólík sjónarmið, líka hinna yngri og eldri. Það þarf að gæta að eldra fólki í þeim öldu- dal sem við göngum í gegnum. Það lenti líka í efnahagsþrengingum, þó að yngri kynslóðir hafi almennt orðið verr úti. Svo erum við að fikra okkur áfram með breytingar á skipulagsreglum flokksins og það er spennandi. Nú felst mitt starf í að vera með augun á mál- efnastarfinu og þeirri stefnumörkun sem þar fer fram. Það er gott fyrir okk- ur þingmennina að vera í góðu sam- bandi við málefnanefndir flokksins, þannig að þegar við förum inn á lands- fund og mörkum okkur stefnu þar, þá sé þétt net þar á milli. Það er líka gagn- legt fyrir sveitarstjórnarmenn að líta til þessara þátta í starfinu. Það er nefnilega merkilegt starf að vera trúnaðarmaður fyrir flokk eins og Sjálfstæðisflokkinn og mikil forréttindi að hafa fengið að taka þátt í því.“ Ekki einkamál kvenna – Þarf að styrkja stöðu kvenna innan flokksins? „Við leggjum mikla áherslu á að auka traust kvenna á Sjálfstæðisflokknum og rannsóknir á okkar vegum sýna að það hefur aukist verulega á síðustu árum. Í því sambandi skiptir miklu máli að konur séu til jafns við karla á framboðs- listum og auðvitað líka að í forystu flokksins veljist konur. En það er jafn- mikilvægt að karlarnir í Sjálfstæð- isflokknum tali máli kvenna líka. Það er ekki einkamál kvenna, heldur málefni allra sjálfstæðismanna að tryggja að sjónarmið allra einstaklinga njóti sín, að í flokkinn veljist hæfar konur og hæfir karlar. Ég tel ekki að ég hafi notið braut- argengis bara af því að ég er kona, held- ur af því að fólk lítur svo á að ég eigi erindi. Það er ákveðinn línudans að gera sér grein fyrir því að það þurfi að efla stöðu kvenna en jafnframt að við séum að berjast á jafnréttisgrundvelli. Ég er varaformaður flokksins og við vorum með borgarstjórann í Reykjavík. Svo er- um við með konur sem eru oddvitar í sveitarstjórnum og bæjarstjórar víða um land. Og einn oddviti okkar í þinginu er kona, Ragnheiður Elín Árnadóttir. En við erum enn í þeirri stöðu að meiri- hluti þingflokksins eru karlar. Af sextán þingmönnum eru fimm konur og við viljum að sjálfsögðu ná betri árangri. En það má ekki gleyma því að í Sjálf- stæðisflokknum eru að meginstefnu haldin prófkjör og það eru kjósendur flokksins sem velja fólk á listana. Engu að síður er mikilvægt að hafa góða blöndu þar, það á við um karla og kon- ur, en einnig að það sé margvíslegur bakgrunnur og fulltrúar ólíkra kynslóða. Ég held að við ættum að gera meira af því að kalla eldri kynslóðir til liðs við okkur. Þetta er svo bráðungt fólk ennþá – við lifum svo lengi!“ – Hvað finnst þér um að skipt hafi verið um þingflokksformann á dög- unum, þar sem Ragnheiður Elín vék fyrir Illuga Gunnarssyni? „Eftir þessa breytingu hefur forystu í þingflokknum verið skipt á milli konu og karls ef litið er til kjörtímabilsins í heild. Illugi verður þá í tæp tvö ár ef við lítum á kjörtímabilið í heild og Ragn- heiður Elín í rösk tvö ár. Það má því segja að það hafi verið jafnt skipt með kynjunum þar. Ég vil líta þannig á þetta mál og mér finnst ekki óeðlilegt að gerðar séu breytingar á nefndum og forystu flokksins á kjörtímabilinu. Það höfum við séð hjá öðrum flokkum líka. Og það er á engan hátt hægt að líta svo á að það sé verið að grafa undan stöðu kvenna. Við erum svo heppin að hafa úr góðum hópi að velja, margir eru kallaðir en fáir útvaldir eins og alltaf er þegar um svona störf er að ræða.“ Stjórnarskráin grundvallarmál þingsins – Nú er þjóðaratkvæðagreiðsla á næsta leiti. Hvað viltu í stjórnarskrármálum? „Allt þetta kjörtímabil, og það hófst reyndar fyrir kosningar, hefur Jóhanna Sigurðardóttir barist fyrir því að hér verði komið á nýrri stjórnarskrá. Þrátt fyrir það hefur engin efnisleg umræða verið af viti í þinginu um hvað það er sem menn vilja breyta. Það hefur verið tekist á um formsatriði, hvernig standa eigi að breytingunum, hvort efna eigi til stjórnlagaþings og hvort Alþingi eigi að vísa frá sér verkefninu eða ekki. Við sjálfstæðismenn erum einarðir á því að það sé grundvallarverkefni Al- þingis að hafa með höndum breytingar á stjórnarskrá og höfum alla tíð talið þetta svo mikið grundvallarmál að það verði að vera sátt um slíkar breytingar milli allra stjórnmálaflokka. Þannig hef- ur það alltaf verið. Og ég vil að Alþingi fari að taka þetta hlutverk sitt alvarlega og ræða hvað það er sem fólk vill breyta. Það er ekkert launungarmál að Jóhanna Sigurðardóttir hefur beitt sér mjög í þessu máli, en samt kemur aldrei fram hverju hún vill breyta, aðeins að hún vilji nýja stjórnarskrá, og mér finnst það ekki viðunandi svar frá for- sætisráðherra. Mér finnst það líka miður þegar þing- menn segja Alþingi ekki fært um að breyta stjórnarskrá. Það er einfaldlega ekki rétt. Ég minni á að stjórnarskránni hefur verið breytt töluvert í áranna rás, mannréttindakaflinn kom inn á tíunda áratug síðustu aldar og gerðar hafa verið fleiri breytingar, meðal annars á kosn- ingaþáttum hennar. Það hefur verið unnið í samstarfi allra stjórnmálaflokka. Auðvitað hefur það tekið tíma en það er líka allt í lagi að það taki tíma fyrir flokka að ná samstöðu um slíkar breyt- ingar. Það er einmitt hugsunin með stjórnarskrá, að hún standist áhlaup sem sprottið er af dægurmálum. Mér þykir það mikill ljóður á störfum þings- ins núna að menn skyldu ekki leggja sig meira fram um að ná samstöðu. Ef við lítum til nágrannaþjóðar okkar Finna, þá tekur þá langan tíma að ná sam- stöðu, en þegar hún er fengin verður niðurstaðan auðvitað miklu betri. Ég hvet til þess að Alþingi taki nú þetta mál til sín, enda væru menn þá virki- lega að líta til þeirra hugmynda sem fram hafa komið. Ég vil líka taka fram, að ég er íhalds- söm hvað varðar breytingar á stjórn- arskránni – það er eðlilegt að breytingar þar gerist hægt – en mér finnst vel koma til greina að breyta tilteknum þáttum hennar. Við sjálfstæðismenn höfum verið reiðubúnir að koma að slíkri vinnu og höfum alltaf sagt það.“ Það átti að breyta öllu – Þarf að breyta vinnubrögðum á Al- þingi? „Það átti nú að breyta öllu! Það var eitt af því sem átti að gerast í síðustu kosningum – að breyta öllu. Það vita líka allir að það átti ekki að tala við Sjálfstæðisflokkinn um tiltekna hluti af því að hann væri á öndverðri skoðun. Það finnst mér einfeldni, að ekki sé hægt að tala við fólk af því að það er á annarri skoðun. Það getur ekki verið af- staða forsætisráðherra í landi. Ef við lít- um til þess að reyndustu þingmenn þjóðarinnar fara fyrir þessari ríkisstjórn, það er leitun að annarri eins þing- reynslu, þá er makalaust hversu illa hefur gengið að leiða ólík sjónarmið til lykta í þinginu. Að því leyti get ég sagt að það sé kominn tími á kynslóðaskipti. Ég bendi líka á að háværustu og sýni- legustu átökin í þinginu hafi verið innan ríkisstjórnarflokkanna og á milli þeirra. Oft koma menn vígmóðir í pontu í þinginu eftir innanhússátök hjá þeim sjálfum, þannig að þar hefur forystunni líka verið ábótavant.“ – Ætlarðu að flytja til útlanda? „Það er nú þannig að við hjónin eig- um fjögur börn, synir mínir eru í skóla hér á Íslandi og dætur mínar í Svissi eins og sú minni kallar það ágæta land. Ég er því með annan fótinn þar, en á góða að sem hjálpa mér að brúa þetta bil. Ég ætla því að ljúka þessu verkefni hér og svo flyt ég út. Ég nýt þess að eiga góða að og nú í haust fór tengdamóðir mín með stelpurnar út og verður hjá þeim næstu mánuði. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum er Tómas orðinn forstjóri Alcoa í Evrópu og höfuðstöðv- arnar eru í Genf. Alcoa er með um- fangsmikla starfsemi í álframleiðslu í Evrópulöndunum, en einnig á öðrum sviðum. Þannig að þetta er viðamikið og spennandi starf.“ Maður á aldrei að loka neinum dyrum – En hvað ætlar þú að taka þér fyrir hendur? „Já, þetta er mjög góð spurning,“ segir hún og hlær. „Ég hef ekki hug- mynd um það. Það hefur einhvern veg- inn verið svo hjá mér í lífinu að hvert verkefnið hefur rekið annað. Þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem breytingar verða út af aðstæðum hjá eiginmanni mínum. Það var líka út af honum sem ég flutti til Egilsstaða og þar hófst minn pólitíski ferill. Og ég held að það hafi verið eitt af happasporum mínum í lífinu. Það getur allt gerst. Ég vanda mig við að klára verkið hér heima og svo er ég viss um að lífið kemur manni alltaf á óvart. Ég ætla að ganga mót vorinu í því. Síðan ætla ég náttúrlega ekkert að hætta að skipta mér af Sjálfstæðisflokknum. Það er mér lífsins ómögulegt, hjarta mitt slær þar áfram, þó að ég verði ekki í framboði í næstu kosningum.“ – Seinna kannski? „Maður á aldrei að loka neinum dyr- um. En ég held að ég þurfi að byrja á því að læra frönsku. Ég lærði ekki frönsku í menntaskóla og hef alltaf séð eftir því. Ég var á málabraut en valdi ekki frönsku. Nú hefur lífið komið því þannig fyrir að ég verð í frönskumæl- andi landi en skil ekkert! Ég hugsa að krakkarnir verði langt á undan mér, en ég ætla samt að leggja mig mjög mikið fram um að ná tökum á þessu máli og jafnvel keppa við dætur mínar í því.“ ’ Síðan ætla ég náttúrlega ekkert að hætta að skipta mér af Sjálfstæðisflokknum. Það er mér lífsins ómögulegt, hjarta mitt slær þar áfram, þó að ég verði ekki í framboði í næstu kosningum.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.