SunnudagsMogginn - 09.09.2012, Blaðsíða 11
9. september 2012 11
05:45 Vekjaraklukkan í farsímanum hringir og
sem betur fer er ég snöggur að vakna annars væri
afskaplega erfitt að vera með morgunþátt í útvarpi.
Ég laumast frammúr og passa mig að vekja hvorki
soninn né konuna. Ég tek mig til fyrir vinnuna en
mesta undirbúningsvinnan fyrir útvarpsþátt dags-
ins fer fram daginn áður. Þá grúska ég á tónlist-
arsíðum, fletti tónlistartímaritum og næ mér í efni.
Þessa vikuna er spennandi slagur á breska breið-
skífulistanum þar sem tvær nokkuð stórar sveitir
gefa út plötur í sömu vikunni og keppa um toppsæti
listans. Norður-írska sveitin Two Door Cinema
Club og Lundúnahljómsveitin The Vaccines með
bassaleikarann Árna Hjörvar innanborðs. Í gær-
kvöldi renndi ég í gegnum kynningareintök af
þessum plötum og kvað upp minn dóm í morguns-
árið í þættinum á X-977. Seinna um kvöldið kíkti ég
á tónleika Baraflokksins á Gamla Gauknum. Allt
gert af einskærum tónlistaráhuga sem spillir ekki
fyrir þegar maður sér um tónlistarþátt í útvarpi.
06:00 Ég vek konuna mína varlega og hún tekur
sig til fyrir vinnuna á meðan ég fylgist með syn-
inum sem er oftar en ekki vaknaður. Það er komin
góð rútína á morgnana eftir að Grétar Þór, 17. mán-
aða, byrjaði hjá dagmömmu. Þessi rútína rauk
reyndar útí veður og vind í sumarfríinu en lífið er
aftur að færast í fastar skorður. Sonur minn er ekki
mikið fyrir að dunda sér svona snemma og vill helst
vera í fanginu á foreldrum sínum og þessvegna er
fínt að hjálpast að. Við feðgarnir skundum inní eld-
hús og hitum hafragraut og lítill gaur fylgist með
hverju handtaki. Eftir morgunmatinn er Bára yfir-
leitt klár og ég rýk á stað til vinnu á meðan að þau
dunda sér heima til hálf átta.
06:30 Mæti í Skaftahlíðina þar sem að Heimir
Karls á Bylgjunni er búinn að taka til dagblöð dags-
ins og Þráinn Steinsson tæknifrömuður bíður bros-
andi með kaffibollann. Það er unaðslegt að mæta
svona snemma til vinnu, kyrrðin er oftast alger,
engin umferð og ekkert stress. Ég fletti blöðunum
og merki við fréttir sem ég get notað í þættinum. Ég
nýt þeirra forréttinda að geta sleppt neikvæðum
fréttum og ég þarf ekkert að velta mér uppúr mál-
efnum líðandi stundar, það eru hæfari menn í slík-
um vangaveltum á fjölmiðlum.
07:00 Á slaginu sjö hefst morgunþátturinn
Ómar á X-977. Þátturinn byggir af stærstum hluta á
tónlist og tónlistartengdum hlutum og yfirlýst
markmið þáttarins er að koma fólki glottandi útí
daginn, ekki hlæjandi heldur glottandi. Það er stór
munur þar á. Fastir dagskrárliðir eru á sínum stað
eins og sjónvarps- og kvikmyndagetraun dags.
7:45 Hvolsvöllur dagsins fer í loftið. Dag-
skrárliðurinn tengist ekki Hvolsvelli á nokkurn
hátt en nafngiftin er óður til æskustöðvanna þar
sem ég er gríðarlega stoltur Hvolsvellingur. Yfirleitt
tengist Hvolsvöllur dagsins merkilegum atburði
sem gerðist í rokksögunni á þessum degi.
8:45 Morgunblúsinn (blús fyrir Helenu) fer í
loftið en það er sérvalið lag til að koma fólki í rétta
gírinn. Fólk er oft í bílnum, fast í umferð, á leiðinni
inní daginn og það er besti tíminn fyrir pepp. Þetta
er sjaldnast blús en nafnið festist á dagskrárliðnum
og í raun ástæðulaust að breyta því. Á milli fastra
liða spila ég blöndu af nýrri og gamalli tónlist. Tón-
list er ástríðan og ég er í símanum næstum allan
þáttinn að spjalla við hlustendur um tónlist, taka
við óskalögum o.s.frv. Án þessara samskipti yrði
enginn þáttur.
10:00 Ég leita að tónlistarfréttum á Netinu fyrir
Púlsinn sem er daglegur tónlistarfréttapakki á X-
inu. Ég les í gegnum fréttatilkynningar og annað
sem má nota í fréttirnar.
12:00 Þá skunda ég í matstofuna. Það er ótrú-
lega þægilegt að hafa mötuneyti á vinnustaðnum og
þurfa ekki að þvælast úr húsi til að ná sér í hádegis
mat. Verst hvað ég fitna svakalega.
13:00: Nú hefst vinna við tónlistarstöðina
PoppTv en ég sé um tónlistina þar sem er oftast af
allt öðrum meiði en tónlistin á X-inu. Fjölbreytnin
er bara skemmtileg, enda mikið um flott tónlistar-
myndbönd og íslenski bransinn er sérlega frjór.
14:00: Farið yfir tónlistina á X-977 og ákveðið
hvað fer í spilun. Fundinn sitjum við félagarnir af
X-inu ég, Orri, Frosti og Máni og það er stundum
hasar á þessum fundum sem er stórkostlegt. Þegar
tónlistarfundi lýkur þá undirbý ég Heimkeyrsluna
sem er á dagskrá X-977 alla virka daga milli 17:30
og 19:00. Þar spila ég klassíska rokktónlist sem
stuðlar auðvitað að því að fólk komi heilt heim eftir
daginn.
15:00 Hér lýkur vinnudeginum (enda byrjar
hann snemma) og ég sæki Grétar Þór til dag-
mömmunnar. Við feðgarnir dundum okkur heima
þangað til að Bára kemur heim um fjögur leytið en
stundum notum við tímann og förum í búð eða í
kaffi til ömmu Birnu. Fjölskyldan er nú oftast að
dunda sér frammað kvöldmat en uppúr sex fer ég
að vona að konan mín ætli að elda. Ég er arfaslakur í
eldhúsinu en ræð algerlega yfir þvottahúsinu þann-
ig að ég er ekki alslæmur. Ég þarf samt að fara að
elda oftar (roðna. Bára, þú ert æðisleg).
20-21:00 Þegar sonurinn er sofnaður þá slaka
foreldrarnir á (þau eru nú fallegust þegar þau sofa).
Undanfarið dett ég þó í skólabækurnar því ég skellti
mér í Háskólabrú Keilis til að bæta fyrir gamlar
syndir. Ég vildi helst ekki að börnin mín upplifðu
mig ómenntaðan, dreif mig af stað aftur og það er
mesta furða hvað toppstykkið virkar ennþá. Þetta
er mikið efni og því nóg að gera og um að gera að
nýta tímann vel. Hugurinn stefnir til frekara náms
þannig að þetta er bara upphitun. Áður en ég loka
tölvunni þá kíki ég á helstu tónlistarsíðurnar til að
undirbúa næsta dag. Það er gott að sofna ZZZZZ
Dagur í lífi Ómars Eyþórssonar útvarpsmanns
Morgunblaðið/Kristinn
Líf dagdraumamanns
Ég er í hópi þeirra fjöl-mörgu Íslendinga ásíðustu öld, sem lærðuað lesa á Litlu gulu
hænuna, sem Steingrímur Ara-
son, kennari og uppeldisfröm-
uður, tók saman og kom fyrst út
árið 1930. Ég man enn um hvað
sagan var. Litla gula hænan hafði
fundið hveitifræ. Því þurfti að
sá, þá að slá hveitið og þreskja,
mala kornið og baka úr því
brauðið. Þegar átti að vinna
sögðu svínið, kötturinn og
hundurinn öll við litlu gulu
hænuna: „Ekki ég.“ Þegar átti
hins vegar að gæða sér á brauð-
inu sögðu svínið, kötturinn og
hundurinn: „Nú get ég.“ Þessi
dýr vildu seilast til afurðar af
vinnu annarra. Sagan á sér aug-
ljósar hliðstæðar í ýmsum
stjórnmálastefnum, sem nú eru
ofarlega á baugi.
Flosi Ólafsson leikari lærði
eins og ég að lesa á Litlu gulu
hænuna og orti:
Las ég mér til menntunar
margan doðrant vænan,
en lærdómsríkust lesning var
litla gula hænan.
Hitt vita færri, að Steingrímur
Arason staðfærði söguna úr
bandarískri barnabók (sennilega
með rætur í rússneskri þjóð-
sögu) um „the little red hen“,
sem var í vinfengi við latan hest,
syfjaðan kött og háværa gæs.
Hún fann fræ og fékk þá hug-
mynd að sá því. Þá sögðu hest-
urinn, kötturinn og gæsin einum
rómi: „Ekki ég.“ Hið sama gerðu
þau, þegar hænan sló hveitið,
þreskti það, malaði og bakaði.
En þegar litla rauða hænan
spurði, hver vildi éta með henni
brauðið sögðu allir: „Nú get ég.“
En þá sagði litla rauða hænan:
„Nei, ég ætla að éta brauðið ein.“
En það er ekki hættulaust að
vera í einhverjum hópi eini ein-
staklingurinn, sem sýslar við
arðbæra iðju, eins og ljóð Andra
Snæs Magnasonar sýnir:
Ekki ég
voru síðustu orð
litlu gulu hænunnar.
Athugasemdir og leiðréttingar vel
þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Litla gula hænan
www.forlagid.is – alvöru bókaverslun á netinu
Gómsætar, einfaldar
og fljótlegar
m ú f f u r í h v e r t m á l
bbbb
„Það er algjör óþarfi að láta íhaldssemina halda sér
frá þessari bók því hún er þrælsniðug á allan hátt.“
Sólrún lilja r agnarSdóttir / dV