SunnudagsMogginn - 09.09.2012, Side 44
44 9. september 2012
Lee Child - A Wanted Man bbbnn
Lee Child er konungur spennusagnanna nú um
stundir, bækur hans seljast metsölu og kvik-
mynd væntanleg eftir níundu bókinni, One Shot.
Aðalpersóna bókanna er ævinlega sú sama,
hörkutólið Jack Reacher sem á hvergi heima, en
reikar um Bandaríkin í leit að ævintýrum. A
Wanted Man hefst þar sem hann er staddur í Ne-
braska að húkka sér far á leið til Virginiu til að
heilsa upp á stúlku. Reacher er ekki árennilegur
þar sem hann stendur, tæpir tveir metrar að
hæð, heljarmenni, farangurslaus og með grátt límband yfir nefinu
eftir að hafa nefbrotnað í síðustu bók. Fljótlega er hann þó tekinn
upp í bíl hjá tveimur karlmönnum og konu, fólki á leið af ráðstefnu
en Reacher áttar sig fljótt á að ekki er allt sem sýnist. Þetta er dæmi-
gerð Reacher-bók um flest, mannvíg og átök, en líka óvenjuleg í
uppbyggingu og ekki vanþörf á að hressa aðeins upp á seríuna þó
ástæða átakanna sé heldur uppskrúfuð..
Peter Robinson - Watching the Dark bbbmn
Ólíkt Lee Child þá er Peter Robinson lítið gefinn
fyrir hasarbókmenntir; í bókunum um lög-
regluforingjann Alan Banks er greitt úr fléttum
af þolinmæði og þrautseigju, mikið hlustað á
tónlist og mikið drukkið af maltviskíi. Hér fyrir
ofan er sagt frá sautjándu bókinni um Jack
Reacher en Watching the Dark er sú tuttugasta
um Alan Banks og óneitanlega hætta á því að
sögupersónan sé farin að lýjast. Hugsanlega var
það Robison ofarlega í huga við skrifin því lög-
reglukonan Annie Cabbot leikur stærra hlutverk
í bókinni en oft áður, aukinheldur sem Banks bregður sér af bæ,
heldur til Eistlands, í leit að óþokka.
Matthew Quirk - The 500 bbmnn
Því hefur verið haldið fram að fimmhundruð
manns stjórni Bandaríkjunum séu allir taldir frá
forseta og niðrúr. Ólíklegt er að nokkrum takist
að ná tökum á slíkum fjölda en í þessari bók
hefur óþokki lagt nótt við dag í áratugi að ná
tökum á stjórnkerfinu, ekki síst til að sanna það
fyrir sjálfum sér og öðrum að allir séu til sölu
finni maður rétta verðið. Söguhetja bókarinnar,
ungur maður sem barist hefur úr fátækt og
glæpum, ræður sig í vinnu hjá fyrirtæki sem
starfar við að hafa áhrif á kjörna fulltrúa, en
óþokkinn sem getið er í upphafi á það fyrirtæki og stýrir. Við tekur
heldur ótrúverðug atburðarás, spennandi þó og lyktar með blóðbaði
í lokin. Þokkaleg afþreying.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Erlendar bækur
Eymundsson
1. Fifty Shades of Grey – E.L.
James
2. Fifty Shades Darker – E.L.
James
3. Fifty Shades Freed – E.L.
James
4. Down the Darkest Road –
Tami Hoag
5. Temple of the Gods – Andy
McDermott
6. 1Q84 – Haruki Murakami
7. The Prague Semetary –
Umberto Eco
8. Believing the Lie – Eliza-
beth George
9. 11.22.63 – Stephen King
10. Disgrace – Jussi Adler-
Olsen
New York Times
1. Fifty Shades of Grey – E.L.
James
2. Fifty Shades Darker – E.L.
James
3. Fifty Shades Freed – E.L.
James
4. Gone Girl – Gillian Flynn
5. Bared to You – Sylvia Day
6. The Inn at Rose Harbor
7. Where We Belong – Emily
Giffin
8. The Light Between Oceans
– M.L. Stedman
9. Black List – Brad Thor
10. The Boy in the Suitcase –
Lene Kaaberbol
Waterstones
1. The Hairy Dieters – Hairy
Bikers
2. A Wanted Man – Lee Child
3. Bared to You – Sylvia Day
4. The Hundred-Year-Old Man
– Jonas Jonasson
5. Fifty Shades of Grey – E.L.
James
6. Fifty Shades Freed – E.L.
James
7. Kingdom of the Wicked –
Derek Landy
8. Fifty Shades Darker – E.L.
James
9. Sweet Tooth – Ian McEwan
10. Eighty Days Yellow – Vina
Jackson
Bóksölulisti
Lesbókbækur
Bókin hefst svo: Fjöl-skylda hefur safnastsaman og bíður eftirþví að ættfaðirinn
skilji við, en hann liggur bana-
leguna saddur lífdaga. Sonur
hans presturinn situr við hlið
hans en í stássstofunni sitja
tvær ógiftar dætur og ein dóttir
til sem gift er aðalsmanni úr
grenndinni. Þegar gamli mað-
urinn hefur létt af samvisku
sinni gefur hann upp öndina og
fjölskyldan safnast að banabeð-
inum til að rífa í sig líkið. Ótta-
legt ekki satt, en málið er að
sagt er frá drekafjölskyldu og
sagan, Tooth and Claw, er sam-
bland af viktorískri ættarsögu
og ævintýrasögu.
Höfundurinn, Jo Walton,
velsk kona sem búið hefur í
Kanada undanfarna áratugi, er
gefinn fyrir slíkar flækjur, þ.e.
að segja gamaldags sögur á nýj-
an hátt líkt og sjá má til að
mynda á bókunum Farthing,
Ha’penny og Half a Crown sem
gerast í heimi þar sem fasistar
náðu yfirhöndinni í Bretlandi í
seinni heimsstyrjöldinni og
sömdu um frið við Þjóðverja.
Nýjasta bók Waltons, Among
Others, sem segir frá ungri
stúlku sem býr yfir töframætti
en er send í skóla fyrir venjuleg
börn – Harry Potter afturábak
eins og margir hafa lýst bók-
inni. Því er sagt frá henni hér
að Jo Walton fékk Hugo-
verðlaunin í vikunni fyrir bók-
ina, en það eru helstu verðlaun
sem veitt eru ævintýra- og vís-
indaskáldsögum. Þetta eru ekki
fyrstu verðlaunin sem bókin
fær, því hún hafði áður fengið
Nebula-verðlaunin, sem eru
ekki síður eftirsótt, og er til-
nefnd til World Fantasy-
verðlaunanna sem verða afhent
í nóvember næstkomandi.
Jo Walton er tæplega
fimmtug, fædd í Aberdare í Cy-
non-dal í Wales og ólst þar
upp. Hún bjó um tíma í Cardiff,
en fluttist síðar til Englands og
bjó meðal annars í Lundúnum
um tíma, en fluttist svo aftur til
Wales. Hún settist svo að í Kan-
ada í byrjun aldarinnar og er
kanadískur þegn í dag. Æskuár-
in í Wales eru henni hugleikin
og sér til að mynda stað í
Among Others, þar sem sögu-
hetjan, stúlkan Morwenna
Phelps / Markova, er einmitt
ættuð frá Wales og óbeit á Eng-
lendingum er henni í blóð bor-
in. Eins og Walton rekur sög-
una byrjaði hún að skrifa af
kappi þrettán ára gömul, en
fyrsta bók hennar, The King’s
Peace, kom þó ekki út fyrr en
hún var komin á fertugsald-
urinn. The King’s Peace var
upphaf þríleiks, eins og alsiða
er í ævintýrabókmenntum, og í
kjölfarið komu The King’s
Name og The Prize in the
Game.
Næsta bók Waltons, áð-
urnefnd Tooth and Claw, varð
svo vendipunktur á ferli henn-
ar, sló rækilega í gegn og vann
til ýmissa verðlauna. Hún rekur
aðdraganda bókarinnar svo á
vefsetri sínu að hún hafi verið
að lesa tvær bækur á sama tíma,
ævintýrabók þar sem drekar
komu við sögu og The Small
House at Allington eftir Ant-
hony Trollope. Hún kvartaði
síðan við eiginmann sinn að
höfundur ævintýrabókarinnar
skildi ekki dreka nógu vel, en
eiginmanninum fannst hún
hafa verið að kvarta yfir skiln-
ingsleysi Trollopes á drekakyni.
„Þetta leiddi mig eðlilega að
þeirri niðurstöðu að Trollope
skildi dreka mjög vel og að lýsa
megi frekar sérkennilegu eðli
kvenna í bókum Trollopes með
staðreyndum drekalíffræði.“
Ofangreindar bækur eru
allar flokkaðar sem æv-
intýrabækur, en næsti þríleikur
Waltons, Farthing, Ha’penny
og Half a Crown, sem komu út
á árunum 2006-2008, flokka
menn sem vísindaskáldskap,
þótt ekki sé að finna í þeim há-
tækni eða geimverur. Í sem
stystu máli gerast bækurnar á
fimmta áratug síðustu aldar í
heimi þar sem flug Rudolfs Hess
til Skotlands í maí 1941 verður
til þess að enskir fasistar, og af
þeim var nóg, ná undirtök-
unum í bresku stjórnkerfi, en
Bretar óttast stríð við Þjóðverja
í ljósi þess að Bandaríkjamenn
vilja ekki veita þeim aðstoð.
Among Others kom svo út
í byrjun síðasta árs og var vel
tekið og verðlaunuð eins og
getið er. Morwenna er fimmtán
ára þegar bókin hefst, eilítið ut-
angarðs í ensku umhverfi eftir
æskuárin í Wales, mikill lestr-
arhestur og áhugasöm um vís-
indaskáldskap, sem gerir sög-
una að nokkru leyti
sjálfsævisögulega, því einmitt
þannig hefur Walton lýst æsku
sinni og unglingsárum. Grunn-
þáttur í sögunni er það hvernig
lestur getur skýlt manni fyrir
stórsjóum unglingsáranna, en
vísindaskáldskapur fær líka
uppreisn æru í bókinni, eða í
það minnsta er Morwenna, og
Walton, óþreytandi við að upp-
hefja bókmenntaformið sem al-
siða er að gera lítið úr í bók-
menntaheiminum. Í bókinni
fær stúlkan meðal annars það
hlutverk að fjalla um skáldsög-
una Far From the Madding
Crowd eftir Thomas Hardy og
tekur því ekki vel: „Hann hefði
getað lært margt af Silverberg
og Delany,“ en þeir Robert Sil-
verberg og Samuel Delany eru
með helstu vísindaskáldsagna-
höfundum vorra tíma.
Velsk-kanadíski rithöfundurinn Jo Walton.
Gamlar sögur
verða nýjar
Skáldsagan Among Others fékk hin virtu Hugo-verðlaun í
vikunni. Bókinni hefur verið lýst sem Harry Potter aftur-
ábak, en höfundurinn, Jo Walton, er fræg fyrir að segja
gamaldags sögur á nýjan hátt.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is