Morgunblaðið - 14.11.2012, Síða 8

Morgunblaðið - 14.11.2012, Síða 8
Eggert Jóhannesson Svanurinn F.v. Dagbjört Fjóla yfirþjónn, Eyþór yfirmatreiðslumaður og Guðríður María, framkvæmdastjóri og eigandi, tóku á móti Svansmerkinu. Veitingahúsið Nauthóll í Nauthóls- vík varð í gær fyrsta veitingahúsið á Íslandi til að fá norrænu umhverfis- vottunina Svaninn. Það var um- hverfis- og auðlindaráðherra, Svan- dís Svavarsdóttir, sem afhenti Svansmerkið. Í tilkynningu frá veitingahúsinu kemur m.a. fram að starfsfólk Naut- hóls flokki nú úrgang á fjóra vegu, noti sérstök Svansvottuð hreinsiefni, gæti að uppruna hráefnis og fylgist með orkunotkun. Guðríður María Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Nauthóls, segir það lengi hafa verið markmið sitt að fá Svansmerkið en hún líti svo á að því fylgi mikil ábyrgð að reka fyrir- tæki í einni helstu útivistarparadís borgarinnar. Nota sérstök vottuð hreinsiefni  Nauthóll fyrsta veitingahúsið til að fá umhverfisvottunina Svaninn 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2012 Forystumenn ríkisstjórnarinnarhafa haldið því æ oftar fram sem nær líður kosningum að skatta- hækkanir ríkisstjórnarinnar hafi í raun verið skattalækkanir.    Þannig sagði Jó-hanna Sigurðar- dóttir í þingræðu á dögunum að dregið hefði úr skattheimtu í tíð núverandi rík- isstjórnar.    Fullyrðingar afþessu tagi hafa tvíþættan tilgang, annars vegar að auð- velda ríkisstjórninni að halda áfram skattahækkunum sínum sem hún gerir af myndarskap ár eftir ár.    Hins vegar eiga slíkar fullyrð-ingar að rugla umræðuna og þar með að auðvelda ríkisstjórninni endurkjör.    Nýjar tölur frá OECD auðveldaríkisstjórninni þó ekki áróð- urinn. Þær sýna að skattbyrði al- mennings hefur farið vaxandi hér á landi í tíð núverandi ríkisstjórnar.    Sérstaka athygli vekur að sam-kvæmt tölum OECD einskorð- ast aukin skattbyrði ekki við efna- meiri, eins og talsmenn „velferðar- stjórnarinnar“ hafa reynt að halda fram. Hækkunin nær til allra tekju- hópa, þar með talið til barnafjöl- skyldna undir meðallaunum.    En hér verður að vísu að geraþann fyrirvara að Stefán Ólafs- son samfylkingarprófessor á eftir að fara yfir tölurnar og hjálpa Jóhönnu að útskýra hvers vegna skattbyrðin hefur í raun minnkað þó að hún hafi aukist. Skattgreiðendur bíða spennt- ir eftir þeim spuna. Jóhanna Sigurðardóttir Aukin skattbyrði velferðarstjórnar STAKSTEINAR Stefán Ólafsson Veður víða um heim 13.11., kl. 18.00 Reykjavík 4 skýjað Bolungarvík 2 alskýjað Akureyri 0 alskýjað Kirkjubæjarkl. 4 skýjað Vestmannaeyjar 5 léttskýjað Nuuk -1 skýjað Þórshöfn 8 skúrir Ósló 10 skúrir Kaupmannahöfn 7 skýjað Stokkhólmur 2 léttskýjað Helsinki 2 léttskýjað Lúxemborg 7 heiðskírt Brussel 8 skýjað Dublin 12 skýjað Glasgow 12 skúrir London 13 léttskýjað París 7 skýjað Amsterdam 11 þoka Hamborg 8 skýjað Berlín 7 heiðskírt Vín 10 skýjað Moskva 2 skýjað Algarve 18 léttskýjað Madríd 17 heiðskírt Barcelona 18 skýjað Mallorca 18 skýjað Róm 21 léttskýjað Aþena 17 heiðskírt Winnipeg -11 skýjað Montreal 5 skýjað New York 7 alskýjað Chicago -1 heiðskírt Orlando 22 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 14. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:55 16:30 ÍSAFJÖRÐUR 10:19 16:16 SIGLUFJÖRÐUR 10:03 15:58 DJÚPIVOGUR 9:29 15:55 Hverfisgötu 52 • 101 Reykjavík • Sími 561 0075 • sjadu@sjadu.is Horni Hverfisgötu og Vatnsstígs Síldarvertíðinni er formlega lokið hjá HB Granda þetta árið og næsta verkefni uppsjávar- veiðiskipanna er loðnuveiðar. Skv. upplýsingum fyr- irtækisins var síðasti vinnslu- dagurinn á Vopnafirði í fyrradag en þá var lokið við að vinna rúmlega 1.000 tonna afla Faxa RE sem kom- ið var með um helgina. Áður hafði Lundey NS komið til hafnar með um 1.100 tonn síld en þennan afla fengu skipin á Breiðafjarðarsvæð- inu í kjölfar sex daga stórviðriskafla sem kom í veg fyrir allar veiðar, segir í frétt á heimasíðu HB Granda. Í frétt HB Granda er haft eftir Vilhjálms Vilhjálmssyni forstjóra að veidd voru og unnin rúm 7.000 tonn af íslenskri sumargotssíld að þessu sinni en veiðar hófust ekki fyrr en í byrjun októbermánaðar. Fram- undan er loðnuvertíðin og segir Vil- hjálmur að farið verði til loðnuveiða um leið og veðurútlit gefi tilefni til. Til loðnu- veiða þeg- ar gefur  Síldarvertíð lokið Faxi RE á siglingu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.