Morgunblaðið - 14.11.2012, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2012
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Kapp er lagt á að húsið við
Lautarveg 18 í vestast í Fossvogs-
dalnum verði fokhelt fyrir lok árs-
ins. Þar er Ás styrktarfélag að
reisa þjónustu-
kjarna fyrir fólk
með þroska-
hömlun og verð-
ur þetta tíunda
sambýlið/
þjónustukjarn-
inn á vegum fé-
lagsins. Hús-
næðið verður
væntanlega tek-
ið í notkun
næsta haust.
Þóra Þórarinsdóttir framkvæmda-
stjóri segir að brýn þörf sé á
þessu og fleiri búsetuúrræðum
fyrir fatlaða því nú séu um 90
manns á biðlista eftir sértæku
húsnæði.
Of lítið framboð á húsnæði
„Biðlistinn lýsir ákveðinni
heildarþörf í Reykjavík og á Sel-
tjarnarnesi, en segir þó ekki alla
söguna því bæði er verið að breyta
úr herbergjasambýli í íbúðir sam-
kvæmt nýrri reglugerð um þjón-
ustu við fatlað fólk á heimilum sín-
um auk þess sem nokkur hreyfing
er á fólki og það er alls ekki þann-
ig að fólk á biðlistanum sé á göt-
unni. Oft er um að ræða fólk sem
vill breytingar eða er í búsetu sem
hentar ekki,“ segir Þóra.
„Því verður þó ekki neitað að al-
mennt séð hefur verið of lítið
framboð á húsnæði fyrir fólk með
þroskaskerðingu. Það er fyrst og
fremst sveitarfélaganna að sjá til
þess að þessi biðlisti lengist ekki
og að það fólk sem á honum er fái
tilboð um búsetuþjónustu.“
Í þjónustukjarnanum við
Lautarveg verða sex einstaklings-
íbúðir, um 50 fermetrar hver.
Húsið er svipað því sem félagið
tók í notkun við Langagerði fyrir
fjórum árum. Þóra segir að reynt
sé að halda byggingarkostnaði í
lágmarki og lýkur lofsorði á sam-
starf við verktaka, verkfræðinga
og arkitekta.
Frá árinu 2011 heyra málefni
fatlaðra undir sveitarfélög og
Reykjavíkurborg rekur 33 sambýli
og þjónustukjarna, en Ás á og
rekur níu sambýli. Þóra segir að á
síðustu árum hafi orðið mikil þró-
un í búsetuaðstöðu fólks með
þroskahömlun og Ás hafi lagt
mikla áherslu á að íbúar hafi
meira einkarými en áður var og
heimilisaðstæður séu eðlilegri.
Í þjónustukjarna um sextugt
„Íbúar í okkar húsnæði eru
margir farnir að eldast og sumir
hafa verið í okkar húsnæði frá
árinu 1976 er fyrsta sambýlið á
vegum félagsins, þá Styrktarfélags
vangefinna, var opnað í Sigluvogi.
Enn koma tilvik um að fólk flytji
frá öldruðum foreldrum sínum og í
þjónustukjarna þegar það er kom-
ið fast að sextugu,“ segir Þóra.
Ás styrktarfélag er sjálfseignar-
stofnun en er í nánu samstarfi við
Velferðarsvið Reykjavíkur. Félag-
ið veitir rúmlega tvö hundruð
manns þjónustu í formi búsetu,
dagþjónustu og vinnu. Dagþjón-
usta félagsins er viðamikil og er
Ás með tæplega 80% þeirrar dag-
þjónustu sem veitt er þroskaskert-
um í Reykjavík. Starfsmenn fé-
lagsins eru um 250 í 132
stöðugildum.
Brýn þörf á fleiri
búsetuúrræðum
Ás styrktarfélag byggir í Fossvogi 90 manns á biðlista
Morgunblaðið/Kristinn
Ás byggir Í þjónustukjarnanum við Lautarveg verða sex einstaklingsíbúðir, hver þeirra um 50 fermetrar að stærð.
Ás styrktarfélag er sjálfseignar-
stofnun, sem er í nánu sam-
starfi við Velferðarsvið Reykja-
víkur. Félagið veitir rúmlega tvö
hundruð manns þjónustu í
formi búsetu, dagþjónustu og
vinnu. Dagþjónusta félagsins er
viðamikil og er Ás með tæplega
80% þeirrar dagþjónustu sem
veitt er þroskaskertum í Reykja-
vík. Starfsmenn félagsins eru
um 250 í 132 stöðugildum.
Um 250
starfsmenn
VIÐAMIKIL DAGÞJÓNUSTA
Þóra
Þórarinsdóttir
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Drög að samkomulagi Fjallabyggð-
ar og Akureyrarkaupstaðar um
framlag til stofnkostnaðar við
Menntaskólann á Tröllaskaga voru
lögð fyrir síðasta fund bæjarráðs
Akureyrar. Í drögunum kemur m.a.
fram að fulltrúar Fjallabyggðar og
Akureyrar hafi fallist á að kröfu um
þátttöku síðarnefnda sveitar-
félagsins í húsaleigu skólans verði
vísað til Atvinnuþróunarfélags
Eyjafjarðar (AFE) til umfjöllunar
og afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkti ekki fyrir-
liggjandi drög og taldi farsælast að
sveitarfélögin leystu málið án að-
komu AFE. Var bæjarstjóra og for-
seta bæjarstjórnar falið að vinna að
lausn málsins.
Eiríkur Björn Björgvinsson, bæj-
arstjóri Akureyrar, segir Fjalla-
byggð hafa byggt upp menntaskól-
ann. Í upphaflegum samningi frá
árinu 2009 hafi átt að fara í nýbygg-
ingu og þá samþykkt að Akureyr-
arbær kæmi að þeirri uppbyggingu
með einhverjum hætti.
Forsendur breyst
„Síðan hafa forsendur breyst,
ákveðið var að fara ekki í nýbygg-
ingu heldur nota gamla gagnfræða-
skólann í Ólafsfirði. Í tengslum við
það var gerður samningur við ríkið
sem skapaði ákveðnar leigu-
greiðslur. Við töldum að forsendur
hefðu breyst, vorum tilbúin til að
greiða okkar föstu greiðslu, í sam-
ræmi við að um uppbyggingu væri
að ræða. Við höfnuðum því að fest-
ast inni í einhverjum leigusamningi
sem Fjallabyggð hafði gert við
ríkið,“ segir Eiríkur Björn.
Málefni framhaldsskólanna á
svæðinu voru áður á borði héraðs-
nefndar en þegar hún var lögð niður
tók AFE við skólunum. „Þetta er
bara ágreiningur á milli tveggja
sveitarfélaga og við sáum ekki
ástæðu til að leysa það á vettvangi
AFE, til að blanda ekki öðrum
sveitarfélögum inn í það.“
Að sögn Eiríks var Akureyrar-
bær reiðubúinn til að leggja fram
um 11 milljónir króna til uppbygg-
ingar skólans en með leigusamn-
ingnum bætist við um 1,5 milljónir á
ári. Eiríkur segir það ekki liggja
ljóst fyrir hvað leigugreiðslurnar
eiga að standa yfir í mörg ár.
Ekki náðist í Sigurð Val Ásbjarn-
arson, bæjarstjóra Fjallabyggðar,
við vinnslu fréttarinnar þrátt fyrir
ítrekuð skilaboð.
Sveitarfélög
deila um
kostnaðinn
Akureyri og Fjallabyggð ræða um
mál Menntaskólans á Tröllaskaga
Ljósmynd/MTR
Tröllaskagi Útskriftarnemendur
síðasta vor frá skólanum.
Menntaskóli
» Menntaskólinn á Tröllaskaga
tók til starfa í Ólafsfirði á vor-
dögum 2010.
» Starfsmenn skólans eru um
20 og nemendur ríflega 100.
» Fjárveiting til skólans á fjár-
lögum 2013 er 160 milljónir.
» Framlag á fjárlögum 2012
var 140 milljónir og reikningur
síðasta árs var upp á tæpar 90
milljónir króna.
Foreldradagur Heimilis og skóla
verður haldinn fimmtudaginn 15.
nóvember í Ölduselsskóla í
Hafnarfirði. Markmiðið er að veita
hagnýtar upplýsingar um uppeldi
og foreldrahlutverkið. Þemað í ár
er samskipti í víðu samhengi. „Mál-
efni sem á erindi við alla foreldra,
til dæmis samskipti foreldra og
barna, samskipti fjölskyldna við
skóla og rafræn samskipti,“ segir í
tilkynningu. Dagskráin stendur frá
kl. 13.30 til klukkan 16.30. Flutt
verða fimm erindi og síðan verða
umræður og fyrirspurnir. Skráning
er á www.heimiliogskoli.is.
Samskipti rædd á foreldradegi
Járnskortur er oft ein af ástæðum þess
að við erum þreytt og slöpp. Floradix járnmix-túrurnar
eru hreinar náttúruafurðir, gerðar úr nýpressuðu grænmeti,
ávöxtum og hveitikími, fullar af vítamínum og steinefnum.
Engin aukefni hrein náttúruafurð.
Floradix blandan stuðlar að :
• Betri upptöku járns, vegna c vítamín innihalds.
• Myndun rauðra blóðkorna og hemóglóbíns,
aukið súrefnisflæði.
• Orkugefandi efnaskiptum
• Betra ónæmiskerfi
• Eðlilegri frumuskiptingu
• Auknu blóðstreymi
• Aukinni orku
• Auknum lífskrafti
Floradix formúlurnar er hægt
að kaupa í apótekum, matvöru-
verslunum og heilsubúðum.
Þreytt og slöpp ?