Morgunblaðið - 14.11.2012, Side 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2012
Hvað er mergjaðra enGylfaginning? Gylfa-ginning með málm-bragði! Ekki svo að skilja
að Börn Loka sé endursögn á samtali
þeirra höfðingja, Óðins og Gylfa kon-
ungs um ásatrú, hún er tilbrigði við
stefið. Mikið er
þrek ómagans
Hilmars Bald-
urssonar en ör-
lögin grimm. Hér
er dýrt kveðið, í
tali sem tónum.
Skálmöld er
ein merkilegasta hljómsveit sem
þessi þjóð hefur eignast. Spratt full-
sköpuð upp úr undirdjúpunum fyrir
tveimur árum – með alvæpni. Baldur
var í einu orði sagt geggjuð plata og á
Börnum Loka kveður við sama tón.
Áttfættur fákurinn æðir um jörð, svo
vitnað sé í verkið sjálft. Eirir engu.
Tónsmíðar eru sem fyrr hug-
myndaríkar innan síns ramma,
epískar þegar það á við, og inn-
blástur kemur víða að, ekki síst frá
hetjumálmböndum níunda áratug-
arins. Magnað að Metallica skuli í
miðjum klíðum stíga inn í glímuna
við sjálfan Jörmungand og senda
Skálmeldinga bara í kaffi. Sækjast
sér um líkir.
Kveðskapur Snæbjörns Ragn-
arssonar er meitlaður og forn og
myndi verðskulda sjálfstæða um-
sögn. Hér er ort eftir kúnstarinnar
reglum og allt haft til reiðar, svo sem
fornyrðislag og sléttubönd.
Börn Loka er vel til þess fallin að
draga þróttmikla æskumenn að forn-
sögunum og norrænni goðafræði, á
sama hátt og Slayer dró mann að hel-
förinni og Iron Maiden að Alexander
mikla og kveðskap Samuels Taylors
Coleridge í gamla daga. Svo dæmi
séu tekin.
Flutningur er í hæsta gæðaflokki,
víkingarnir hver öðrum vopnfimari
og hverjum dettur í hug að fá Bjarna
Thor Kristinsson, ofurbassa, í bak-
raddir? Fullt hús stiga fyrir það!
Rödd Björgvins Sigurðssonar for-
söngvara er stórbrotin, fær hárin til
að rísa. Alfaðir hefur klárlega skapað
hann til að rymja þennan brag! Komi
rödd Björgvins úr innstu iðrum, hvað
má þá segja um gestasöngkonuna,
Eddu Tegeder? Illska Heljar er al-
gjör í túlkun hennar.
Ekki veit ég hvort víkingamálmur
verður endilega betri en Börn Loka.
Efast raunar um það. Nú eða þjóð-
lagamálmur yfirhöfuð. Skil samt eftir
hálfa stjörnu til að eggja Skálmöld
áfram til góðra verka, þetta hlýtur að
verða a.m.k. þríleikur. Svo er annað
eftir: Tónleikar með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands og helþéttum
kór í kjaftfullri Eldborg.
Það yrði málmmessa áratugarins!
Morgunblaðið/Ómar
Skálmöld Græsku beitum, sjaldan sefast sorgir þegar vinnum.
Áttfættur fákur-
inn æðir um jörð
Skálmöld – Börn Loka m
Önnur breiðskífa víkingamálmbandsins
Skálmaldar. Hana skipa Gunnar Ben,
Baldur Ragnarsson, Björgvin Sigurðs-
son, Þráinn Árni Baldvinsson, Snæbjörn
Ragnarsson og Jón Geir Jóhannsson.
Sena, 2012.
ORRI PÁLL
ORMARSSON
TÓNLIST
Evrópsk kvikmyndahátíð verður haldin í Bíó Paradís
næstu vikuna, 16. til 25. nóvember. Hátíðin hefst á
föstudagskvöldið klukkan 20 og er þá öllum lands-
mönnum boðið í bíó, meðan húsrúm leyfir. Hægt er að
velja milli fjögurra opnunarkvikmynda og þá verður
einnig boðið upp á veitingar. Miðaverði á hátíðina er
annars stillt í hóf; verð miða er 500 kr. og hægt að
kaupa fimm mynda passa á 2.000 kr.
Á hátíðinni verða sýndar ellefu nýjar eða nýlegar
kvikmyndir, auk þriggja kvikmynda eftir leikstjórann
Theo Angelopoulos sem lést fyrr á árinu, 77 ára gam-
all. Hann vann þá að kvikmynd um efnahagshrun
heimalandsins, Grikklands, en lést við tökur þegar
mótorhjól ók á hann. Friðrik Þór Friðriksson mun
minnast kollega síns á hátíðinni en meðal mynda An-
gelopoulosar sem sýndar verða er „Landslag í þoku“
sem valin var sú besta á kvikmyndahátíðinni í Fen-
eyjum og hreppti Evrópsku kvikmyndaverðlaunin.
Kvikmyndahátíðinni er skipt í fjóra hluta: nýjar evr-
ópskar myndir, myndir sem tilnefndar eru til Lux-
verðlauna Evrópuþingsins, myndir sem fjalla um kyn-
bundið ofbeldi og eru sýndar í samstarfi við UN-
Women, og loks „Þagnarþríleikur“ Angelopoulosar.
Kvikmyndirnar koma annars víða að. Þeirra á meðal
eru „Alpar“, eftir Grikkjann Giorgos Lanthimos,
„Strákur á hjóli“ eftir Belgana Jean-Pierre og Luc
Dardenne og franska myndin „Betra líf“, eftir Kahn.
Þjóðinni boðið í evrópskt bíó
AFP
Verður minnst Gríski leikstjórinn Theo Angelopoulos
lést á árinu. Þrjár af kvikmyndum hans verða sýndar.
KENZO
BALDESSARINI
SEE BY CHLOE
SCHUMACHER
PEDRO GARCIA
ROCCO P
STENSTRÖMS
VAN LAACK
EMPORIO ARMANI
HVERFISGÖTU 6 S. 551 3470
saevarkarlverslun
J. A. Ó. - MBL
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
STÓRBROTIN KVIKMYNDAVEISLA!
NÁNAR Á MIÐI.IS
CLOUD ATLAS KL. 8 16
PITCH PERFECT KL. 8 12
SKYFALL KL. 5.20 - 10.10 12
HOTEL TRANSYLVANIA KL. 6 7
CLOUD ATLAS KL. 5.30 - 8 16
PITCH PERFECT KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
HOTEL TRANSYLVANIA ÍSL. TEXTI KL. 3.40 - 5.50 7
SKYFALL KL. 5 - 8 - 9 12
SKYFALL LÚXUS KL. 5 - 8 12
TEDDI LANDKÖNNUÐUR KL. 3.30 L
FUGLABORGIN 3D ÍSL.TAL KL. 3.30 L
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
-ROGER EBERT
CLOUD ATLAS KL. 5.30 - 9 16
SKYFALL KL. 6 - 9 - 10.10 12
TAKEN 2 KL. 10.30 16
LOVE IS ALL YOU NEED KL. 8 L
DJÚPIÐ KL. 5.50 - 8 10
THE DEEP ENSKUR TEXTI KL. 5.50 10 SKYFALL Sýndkl.7-9-10(Power)
WRECK-IT RALPH 3D Sýndkl.6
PITCH PERFECT Sýndkl.8-10:15
TEDDI 2D Sýndkl.6
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
FYRSTA SINN Á ÍSLANDI! SÝNINGAR Í 4K - KL: 7 OG 10
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
Í 4K
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
12
12
L
L
,,Sú besta í allri seríunni”
T.V - Kvikmyndir.is
,,Fyrsta flokks 007”
J.A.Ó - MBL
,,Þrælspennandi og skemmtileg
frá upphafi til enda”
H.V.A - FBL
Þ.Þ - FBL