Morgunblaðið - 15.11.2012, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 15.11.2012, Qupperneq 6
Að Íbúðalánasjóði hafi ekki verið heimilt að krefjast greiðslu verðbóta af láninu á grundvelli vísitölu neysluverðs, enda hafi hvorki fjárhæð þeirra né árleg hlutfallstala lántökukostnaðar verið tilgreind í lánasamningi. Með því er vísað til sömu greina laga um neytendalán og vikið er að í aðalkröfunni. Þá er vísað til 14.greinar neytendalaganna. Stefnendur telja að neytendalánalög séu sérlög og gangi framar ákvæðum vaxta- laga, að neytendalánalög snúi fyrst og fremst að neytendum og hagsmunum þeirra sem gangi framar þeim almennu hagsmunum lánveitenda og annarra sem um er fjallað í vaxtalögum. Hjón stefna Íbúðalánasjóði Að allur kostnaður frá töku lánsins verði felldur niður umfram afborganir af láninu, þ.e. kostnaður við verðbætur, vexti og lántökugjald. Vísað er til þess að Íbúðalánasjóður hafi ekki tilgreint heildarlántökukostnað við lántöku, enda hafi árleg hlutfallstala kostnaðar af láninu ekki komið fram á lánasamningi eða í öðrum gögnummálsins. Það sé brot á lögum um neytendalán. Með því er vísað til 5. gr. í II. kafla laga um neytendalán um upplýsingaskyldu lánveitanda. Þar segir að lánasamningur skuli gerður skriflega og að þar skuli með vísan til 6. gr. laganna m.a. kveðið á um að við gerð lánssamnings skuli lánveitandi gefa neytanda upplýsingar um heildarlántökukostnað (vexti, verð- bætur, lántökugjöld) og árlega hlutfallstölu kostnaðar, þ.e. þá prósentutölu heildar- lántökukostnaðar sem greiða skuli af láninu út lánstímann. Að auki skuli lántaki við gerð lánssamnings fá upplýsingar um þá heildarupphæð sem greiða skal, þ.e. samtölu höfuðstóls, vaxta og lánskostnaðar og fjölda einstakra greiðslna, fjárhæð þeirra og gjalddaga. Þar sem enginn heildarlántökukostnaður var uppgefinn af hálfu Íbúðalánasjóðs við töku lánsins né að árleg hlutfallstala kostnaðar væri tilgreind í fasteignaveðbréfinu eða fylgiskjölum þess, var Íbúðalánasjóði ekki heimilt að krefjast neins lántöku- kostnaðar skv. 14. gr. og 24. gr. neytendalánalaga, að mati stefnenda. Varakrafa Aðalkrafa VIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is Lögmaður hjónanna Theodórs Magnússonar og Helgu Margrétar Guðmundsdóttur sem hafa stefnt Íbúðalánasjóði vegna verðtryggðs fasteignaláns treystir sér ekki til að áætla hvaða áhrif það hefði á fjár- málakerfi lands- ins ef málið vinnst. Hitt megi ætla að fjárhæð- irnar sem í húfi séu hlaupi ekki á milljarðatugum heldur hundr- uðum milljarða. Málið geti haft fordæmisgildi á önnur lán en fast- eignalán og geti því haft gríðarleg áhrif. Gunnar Baldvinsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, og Sig- urður Erlingsson, forstjóri Íbúða- lánasjóðs, treystu sér hvorugur til að ætla áhrifin á lífeyrissjóðina annars vegar og Íbúðalánasjóð hins vegar ef sjóðurinn tapaði málinu. Eru þá ótaldir viðskiptabankarnir og fleiri hagsmunaaðilar á markaði. Þórður Heimir Sveinsson héraðs- dómslögmaður rekur málið fyrir hjónin. Stefnan skiptist í aðalkröfu og varakröfu og er útskýrð hér til hliðar. Málið var þingfest í Héraðs- dómi Reykjavíkur hinn 18. október sl. og mun Íbúðalánasjóður skila sinni greinargerð 13. desember. Þórður Heimir vonast til að málið verði flutt munnlega í febrúar eða mars. Hann skýrir stefnuna svo: Óheimilt að rukka kostnað „Í aðalkröfunni er gerð krafa um að viðurkennt verði að Íbúðalána- sjóði hafi verið óheimilt að krefjast neins heildarlántökukostnaðar aftur til ársins 2003 þegar hjónin tóku lánið, þar með talið af vöxtum, verðbótum og lántökugjaldi. Við tilgreindum ekki neina fjár- hæð heldur reyndum við að orða stefnuna á eins skiljanlegan hátt og hægt var. Ef dómari samþykkir að sjóðurinn hafi brotið lagaákvæðin sem vísað er til í stefnunni felur það í sér að Íbúðalánasjóði er ekki heimilt að rukka neinn kostnað af láninu. Til vara er gerð sú krafa að viður- kennt sé að Íbúðalánasjóði hafi verið óheimilt að krefjast greiðslu á verð- bótum á grundvelli vísitölu neyslu- verðs en að vextir haldi sér að öðru leyti,“ segir Þórður Heimir og vísar til neytendalánalaga. „Þetta er grundvallað á neytenda- lánalögunum. Þar eru ákvæði sem segja að þegar fólk undirgengst samninga við lántöku skuli liggja fyrir upplýsingar um heildar- lántökukostnað af láninu, að hann sé ekki dulinn. Í lögunum teljum við jafnframt að sé að finna heimildir fyrir því að fella niður allan kostnað af láninu eða þá hluta hans.“ Fram kom í máli Þórðar Heimis á fundi Hagsmunasamtaka heimilanna í fyrrakvöld að hann er vongóður um sigur í málinu, þar sem vísa megi meðal annars til dómafordæma frá Evrópudómstólnum. Vísar til dómafordæma „Það hafa fallið minnst tveir dóm- ar sem nú er búið að þýða þar sem uppi eru svipuð sjónarmið og eiga við um þessa stefnendur. Það eru mjög skýr lagaákvæði í neytendalánalögunum. Það er ástæðan fyrir því að við tókum þenn- an pól að fara með þetta í gegnum neytendalánalögin en ekki vaxtalög- in,“ segir hann en neytendalánalögin eru hluti af samræmdri evrópskri löggjöf og voru innleidd í aðdrag- anda EES-samningsins. Þórður Heimir útilokar ekki að málinu verði áfrýjað til dómstóls í Evrópu ef það vinnst ekki á Íslandi. „Fasteignalánin komu inn í neyt- endalánin árið 2000 með breytingar- tillögu sem flutt var á Alþingi það ár en hún kom í gegnum efnahags- og viðskiptanefnd. Íbúðalánasjóður var þá aðallánveitandinn og samþykkti hana án athugasemda. Síðan gerist ekkert meir. Frá árinu 2000 er ekk- ert hugað að því að farið sé eftir þessum lögum þegar lán eru veitt, að allur kostnaður sé hafður uppi á borðinu. Það er fyrst núna á síðustu tveim árum sem ég sé hugtakið árleg hlutfallstala kostnaðar í sumum lán- um. Hún hefur líka sést í verð- tryggðum lánum hjá stöku lána- stofnunum en þá eru verðbæturnar núll.“ Kostnaður við lán falli niður  Lögmaður hjóna sem stefna Íbúðalánasjóði segir málið varða hagsmuni upp á hundruð milljarða  Aðalkrafan snýst um að sjóðnum hafi verið óheimilt að innheimta heildarkostnað við fasteignalán Þórður Heimir Sveinsson Morgunblaðið/RAX Fasteignabóla springur Hálfkláruð hús og húsgrunnar í Úlfarsárdal. Margir fóru illa út úr efnahagshruninu. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2012 Borgardekk „Við tókum 22 milljóna fasteignalán árið 2006. Nú stendur lánið í tæpum 35 milljónum króna en fasteignin er metin á 28 milljónir. Við höfum aldr- ei verið í vanskilum heldur höfum við alltaf greitt af láninu. Afborgun- in hefur hækkað um 50% og er nú um 180 þúsund krónur og hækkar í hverjum mánuði,“ segir kona á Akranesi um reynslu sína og eigin- manns síns. Konan vildi ekki koma fram undir nafni en vildi segja sögu sína. „Manni finnst þetta ömurlegt. Maður spyr sig í hvað peningarnir hafa farið. Nú er ég búin að ákveða að hætta að greiða af láninu. Ég er búin að gefast upp. Maðurinn minn vildi hætta fyrir löngu síðan en ég sagði alltaf að meðan við gætum keypt okkur að borða að þá slyppi þetta fyrir horn. Seinustu mánuði hefur það verið ansi naumt og í síð- asta mánuði fóru allir peningarnir strax. Það var ekkert eftir.“ Vill standa við skuldbindingar Spurð hvað hún vilji að gerist í málinu á þessu stigi segist konan vilja að verðbætur vegna gífur- legrar verðbólgu eftir efnahags- hrunið verði látnar ganga til baka þannig að afborganirnar verði við- ráðanlegri og lánið sanngjarnt. „Ég myndi vilja að þetta yrði leið- rétt. Mig langar alls ekki til að hætta að borga. Ég skrifaði undir plagg og skuldbatt mig til að greiða af láninu og við hjónin höfum reynt að standa í skilum eftir mætti. En nú er þetta orðið of mikið,“ segir konan sem tók verðtryggt lán. Hún segist þekkja marga sem eru í svipaðri stöðu, m.a. konu sem sé að missa húsið sitt. Eiga ekki lengur fyrir mat  Hjón á Akranesi töpuðu öllu eigin fé Morgunblaðið/ÞÖK Á Akranesi Hjónin tóku lán 2006. Mannanafnanefnd vill ekki sam- þykkja nafnið X sem millinafn. Hins vegar hefur nefndin samþykkt eiginnöfnin Tolli, Leila og Kali. Í úrskurði nefndarinnar um kvenmannsnafnið Leila segir að nafnið taki íslenska beygingu og uppfylli öll önnur skilyrði manna- nafnalaga og sé því samþykkt. Sömu rök gefur nefndin fyrir því að samþykkja karlmannsnafnið Kali. Nafnið tekur íslenska beyg- ingu í eignarfalli, Kala, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og er því samþykkt. Öðru máli gegnir um beiðni um millinafnið X. Í úrskurði nefndarinnar segir að rit- háttur millinafnsins X geti ekki tal- ist í samræmi við almennar rit- reglur íslensks máls enda bók- stafurinn x ekki ritaður í upphafi orðs í íslensku. Má ekki heita X  Mannanafnanefnd hefur samþykkt eiginnöfnin Tolli, Leila og Kali Morgunblaðið/RAX X Beiðni um millinafnið X hafnað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.