Morgunblaðið - 17.11.2012, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012
Atli Gíslason spurði Ögmund Jón-asson innanríkisráðherra að
því hvaða áhrif hugsanleg innganga
í Evrópusambandið hefði á dóms- og
löggjafarvald hér á landi.
Í svari sínu til þing-mannsins sagði
innanríkisráðherra:
„Samstarf innan Evr-
ópusamstarfsins
gengur lengra en
hefðbundið ríkja-
samstarf. Þannig eru
ýmsum stofnunum
Evrópusambandsins,
svo sem Evrópuþing-
inu og dómstól Evr-
ópusambandsins,
veittar heimildir til
að taka ákvarðanir á
sviði löggjafarvalds
og dómsvalds sem eru bindandi fyrir
aðildarríkin sem og einstaklinga og
lögaðila í ríkjum sambandsins. Slíkt
framsal ríkisvalds krefst skoðunar á
ákvæðum stjórnarskrárinnar er
varða framsal ríkisvalds.“
Þetta er afar skýrt og afgerandien hefur furðu litla umræðu
fengið hér á landi, þar með talið
þetta sem snýr að stjórnarskránni.
Hér halda stuðningsmenn aðildar Ís-
lands að ESB því jafnvel fram að að-
ild muni „styrkja fullveldi Íslands“.
Og þegar á það er bent að ESB sésennilega að færast enn lengra
í átt frá hefðbundnu ríkjasamstarfi
og að sambandsríki, þá svara stuðn-
ingsmenn aðildar líka út í hött. Þeir
áköfustu halda því jafnvel fram að
þróunin sé einmitt í hina áttina.
Aðrir fullyrða að yfirvofandi fjár-mála- og bankasamruni á evru-
svæðinu sé allur af hinu góða fyrir
fullveldi Íslands gerist það aðili.
Fullveldi landsins mun samkvæmt
því styrkjast í hvert sinn sem
ákvörðunarvald er flutt héðan til
Brussel.
Atli Gíslason
Dóms- og löggjaf-
arvald til Brussel?
STAKSTEINAR
Ögmundur
Jónasson
Veður víða um heim 16.11., kl. 18.00
Reykjavík -2 skýjað
Bolungarvík -3 snjókoma
Akureyri -1 alskýjað
Kirkjubæjarkl. -3 alskýjað
Vestmannaeyjar -2 alskýjað
Nuuk -6 léttskýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló 6 skýjað
Kaupmannahöfn 3 skýjað
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 6 skýjað
Lúxemborg 2 heiðskírt
Brussel 5 heiðskírt
Dublin 7 skýjað
Glasgow 7 skýjað
London 7 þoka
París 3 alskýjað
Amsterdam 5 alskýjað
Hamborg -1 skýjað
Berlín 1 alskýjað
Vín 8 léttskýjað
Moskva 2 skýjað
Algarve 18 skúrir
Madríd 16 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 18 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 16 léttskýjað
Winnipeg -3 skýjað
Montreal 2 léttskýjað
New York 6 heiðskírt
Chicago 5 heiðskírt
Orlando 19 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
17. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:05 16:22
ÍSAFJÖRÐUR 10:31 16:06
SIGLUFJÖRÐUR 10:14 15:48
DJÚPIVOGUR 9:40 15:46
Guðrún Anna Kristins-
dóttir píanóleikari lést
á Hjúkrunarheimilinu
Lögmannshlíð 10. nóv-
ember, tæplega 82 ára
gömul. Hún fæddist á
Akureyri 23. nóvember
1930, dóttir Kristins
Þorsteinssonar, deild-
arstjóra hjá KEA, og
Lovísu Pálsdóttur hús-
freyju.
Guðrún hóf píanó-
nám hjá móður sinni í
barnæsku en reglulegt
nám hóf hún tíu ára hjá
Jórunni Norðmann á
Akureyri. Hún fór í Tónlistarskól-
ann í Reykjavík og var nemandi
Árna Kristjánssonar í tvo vetur. Eft-
ir það fór hún í Det kgl. Musikkons-
ervatorium í Kaupmannahöfn og
brautskráðist með diplómagráðu.
Jafnframt fór hún í einkatíma til
Haraldar Sigurðssonar prófessors.
Guðrún var árin 1955-1957 í Vínar-
borg í einkatímum hjá prófessor
Bruno Seidlhofer. Á Íslandi lék hún
tvisvar einleik með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands. Guðrún hélt tón-
leika víða um land og einnig víða í
Danmörku. Veturinn
1962 var hún í London
í undirleikaranámi.
Guðrún kenndi við
Tónlistarskólana í
Reykjavík og Kópa-
vogi og Söngskólann í
Reykjavík. Hún var pí-
anóleikari Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands
um árabil og eins hjá
Ríkisútvarpinu þar
sem hún spilaði með
öðrum og lék undir hjá
einsöngvurum.
Guðrún starfaði sem
undirleikari með
mörgum einsöngvurum, hljóðfæra-
leikurum, kammersveitum og kór-
um, bæði blönduðum og karlakórum,
lengst af með Karlakór Reykjavík-
ur. Hún var undirleikari Sigurðar
Björnssonar óperusöngvara til
fjölda ára og einnig Guðrúnar Á.
Símonar óperusöngkonu.
Guðrún flutti til Akureyrar árið
1987 og réðst þá til söngdeildar Tón-
listarskólans á Akureyri. Einnig var
hún undirleikari karlakóra þar.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Akureyrarkirkju 20. nóvember.
Andlát
Guðrún A. Kristinsdóttir
píanóleikari
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Steingrímur kom með yfirlýs-
ingar í febrúar 2010 um að hann ætl-
aði að lækka launin [hjá skilanefnd-
unum]. Það var síðan upplýst á fundi,
fyrir nokkru, að ríkisstjórnin hefði
ekkert gert í þessu, það hefðu ekki
komið nein tilmæli eða beiðni til
FME frá Seðlabankanum, en bæði
ríkissjóður og Seðlabankinn eru
kröfuhafar,“ segir Guðlaugur Þór
Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins. Hann gagnrýnir að ekkert
hafi verið gert varðandi ofurlaun
skilanefndarmanna.
Fengu aukafjárveitingu
Guðlaugur bendir einnig á að Fjár-
málaeftirlitið hafi fengið sérstaklega
lagaheimild og um 600 milljóna króna
aukafjárveitingu til þess að fram-
kvæma eftirlit með slitastjórnum
bankanna. Þá nefnir hann að gömlu
bankarnir hafi haft starfsleyfi sem
bankar allt fram til loka árs 2011.
„FME á að hafa eftirlit með til dæmis
bankaráðs-
mönnum og fylgj-
ast með við-
skiptum þeirra
við aðra, eins og
t.d. hvort þeir séu
að versla við eigin
félög og svo fram-
vegis,“ segir Guð-
laugur Þór og
bætir við að slita-
stjórnarfólk hafi
sömu stöðu og bankaráðsmenn.
„Burtséð frá öllu þá átti FME að
fylgjast með viðskiptum þeirra við
sínar eigin lögfræðistofur en þeir
hafa ekki gert það. Steingrímur sló
sig til riddara og sagði að það þyrfti
að lækka þessi laun og að hann ætlaði
að sjá til þess, hann gerði ekkert í því.
Í þriðja lagi er það þannig að það er
ekki ennþá búið að upplýsa um laun
slitastjórna Landsbankans og Kaup-
þings, heldur einungis hjá Glitni,“
segir Guðlaugur Þór og bendir á að í
ráðherratíð Steingríms hafi tímakaup
slitastjórnanna hækkað úr 16 þúsund
krónum í 35 þúsund krónur.
Gagnrýnir aðgerðaleysi
Guðlaugur Þór segir ríkisstjórnina ekkert hafa gert varðandi ofurlaun
Guðlaugur
Þór Þórðarson
Viltu selja eða
kaupa fyrirtæki?
Firma Consulting, Þingaseli 10, 109 Reykjavík,
GSM: (+354) 820 8800 og (+354) 896 6665,
Fax: (354) 557 7766, Veffang: firmaconsulting.is
Magnús Hreggviðsson viðskiptafræðingur og lög-
giltur fyrirtækja-, fasteigna- og skipasali. Magnús er
með áratuga reynslu af endurskoðunarstörfum, sem
rekstrarráðgjafi, fyrirtækja- og fasteignasali, útgef-
andi, fasteignarekandi, „land-developer“ í Smára-
hvammi og starfandi stjórnarformaður í nokkrum
fyrirtækjum. Er aðalráðgjafi hjá Firma Consulting.
(magnus@firmaconsulting.is)
Firma Consulting (www.firmaconsulting.is) er
ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf við
kaup og sölu millistórra og stórra fyrirtækja.