Morgunblaðið - 17.11.2012, Side 11

Morgunblaðið - 17.11.2012, Side 11
Ýr Jóelsdóttir sem segist í léttum dúr vera hægri hönd og vinstri fót- ur leikstjórans Erlu Ruthar Harð- ardóttur, stofnanda Sönglistar, sem skrifar leikritið í ár. Koma með merkta pakka Sýningin er rétt undir klukku- stund í flutningi og eftir hana er áhorfendum boðið upp á pip- arkökur og djús. Þá er jólagjafa- söfnun Borgarbarna fyrir Mæðra- styrksnefnd árleg hefð en áhorfendur geta komið með pakka, merktan aldri og kyni, á sýningar og leikarar sjá um að skila til Mæðrastyrksnefndar fyrir jól. „Eftir síðustu sýninguna för- um við með gjafirnar til Mæðra- styrksnefndar og þetta hefur geng- ið mjög vel. Það hafa margir komið með gjafir,“ segir Karen Ýr. Hún segir jólasýningu síðastliðinna ára hafa verið vinsæla hjá skólum en margir nemendur safna svoköll- uðum gullmolum og er umbunað fyrir ákveðinn fjölda. Sýningin hef- ur þá verið umbunin þann mán- uðinn. Leiklistin ofarlega á blaði Æfingar hófust í september og eru nú á fullu fyrir frumsýninguna hinn fyrsta desember næstkom- andi. Karen Ýr segir að krakkarnir séu alltaf jafn góðir og skemmtilegt sé að koma að sýningunni. Hún var sjálf í Borgarbörnum og lék í jóla- sýningunni um nokkura ára skeið en leiklistin er ofarlega á blaði hjá henni sem framtíðararstarfið. Hægt er að kaupa miða í Iðnó eða senda tölvupóst á borgar- born@gmail.com, einnig er hægt að hringja í Iðnó og tala við Rósu Maggý, framkvæmdastjóra fyrir skólahópa. Morgunblaðið/Árni Sæberg Jólaskemmtun Leikritið er fullt af boðskap og skemmtun í bland. Hver er þar? Ýmsar þekktar persónur úr ævintýrum birtast óvænt. Sýningin er rétt undir klukkustund í flutningi og eftir hana er áhorf- endum boðið upp á pip- arkökur og djús. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012 Fyrrverandi kórfélagar Skólakórs Garðabæjar ætla að hittast og gera sér glaðan dag, horfa og hlusta á gamlar upptökur og rifja upp góðar stundir á sunnudaginn næstkomandi. Einnig er ætlunin að taka lagið og er draumur aðstandenda kórsins sá að hópurinn geti haldið tónleika saman síðar meir. Skólakór Garðabæjar var stofnaður árið 1976 og starfaði óslitið til ársins 2000 við frábæran orðstír. Stjórnandi kórsins var Guðfinna Dóra Ólafsdóttir en hún var sæmd hinni íslensku fálka- orðu fyrir starf sitt að menningar- málum barna. Kórinn fór í margar ut- anlandsferðir og gaf út hljómplötur og geisladiska. Ótal margir kórmeðlimir starfa í dag sem tónlistarmenn í hin- um ýmsu geirum tónlistar, þar má nefna Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðluleik- ara, Mörtu Guðrúnu Halldórsdóttur söngkonu, Ragnheiði Gröndal djass- söngkonu og Óskar Guðjónsson saxó- fónleikara sem örfá dæmi. Allir fyrr- verandi kórfélagar eru hvattir til að mæta og taka með sér myndir og ann- að sem gaman væri að skoða úr kór- starfinu. Endurfundirnir verða haldnir í Flataskóla í Garðabæ og standa frá kl. 16.00 til 18.00. Endurfundir Skólakórs Garðabæjar Morgunblaðið/Ómar Djasssöngkona Ragnheiður Gröndal var meðal kórmeðlima. Fyrrverandi kórfélagar geri sér glaðan dag og taki lagið Jóla- og tækifæriskort Skógræktar- félags Íslands eru komin út og er tré gróðursett fyrir hvert selt kort. Kortið prýðir vatnslitamynd eftir Sigurþór Jakobsson og er sérstök hvatning á kortinu, þar sem kemur fram að fyrir hvert selt kort gróð- ursetur félagið eitt tré. Ekkert er prentað inn í kortin, þannig að þau nýtast áfram eftir jól sem afmæl- iskort, boðsmiðar eða hvað sem fólki dettur í hug. Hægt er að nálgast kortin á skrif- stofu Skógræktarfélags Íslands, í Þórunnartúni (Skúlatúni) en einnig í gegnum síma félagsins eða með tölvupósti til skog@skog.is. Endilega… …gróðursetjið tré með korti Jólakort Vatnslitamynd Sigurþórs Jakobssonar prýðir kortin. er útgefandi American Express® samkvæmt leyfi frá American Express American Express ValidThru Member Since American Express ValidThru Member Since F ÍT O N / S ÍA Jólapottur American Express® Þú gætir unnið ferð til USA og 100.000 Vildarpunkta! Þú gætir unnið glæsilega vinninga ef þú notar Icelandair American Express til að versla fyrir jólin. Allir meðlimir sem nota kortið fyrir 5.000 kr. eða meira fyrir 15. desember fara í jólapottinn og því oftar sem þú notar kortið, því meiri möguleikar á vinningi! Sex heppnir meðlimir verða dregnir úr jólapottinum • 1x Flug fyrir tvo til Bandaríkjanna með Icelandair og 100.000 Vildarpunktar • 1x Flug fyrir tvo með Flugfélagi Íslands + gisting á Icelandair hótels í eina nótt. • 2x Yndislegt steinanudd fyrir tvo að verðmæti 30.000 kr. • 2x Gjafabréf á veglega máltíð að verðmæti 25.000 kr. American Express er skrásett vörumerki American Express.Kynntu þér málið nánar á www.americanexpress.is Hér til hliðar má sjá mynd af franska ostframleiðandanum Hervé Mons. Hann er enginn venjulegur ostagerðarmaður því hann ákvað að breyta gömlum járnbrautarlest- argöngum í ostageymslu. Þar liggja nú ótal ostar á hillum, eldast þar í rólegheitum og verða æ betri með hverjum deginum sem líður. Mons- ostagerðin er fjölskyldurekið fyr- irtæki sem stofnað var árið 1964 af Hubert Mons en sonurinn Hervé tók við rekstrinum árið 1983. Í dag eru Mons-ostarnir fluttir til 25 landa og rekur fyrirtækið fimm ostabúðir í Frakklandi. Frönsk ostalest AFP Framkvæmdastjóri Hervé Mons.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.