Morgunblaðið - 17.11.2012, Side 16

Morgunblaðið - 17.11.2012, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012 SVIÐSLJÓS Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Fjármál þjóðkirkjunnar voru með- al þess sem var efst á baugi á 49. kirkjuþingi þjóðkirkjunnar en hlé var gert á störfum þess á fimmtu- dagskvöld. Framundan eru við- ræður við ríkisvaldið um framlög þess til kirkjunnar, annars vegar framlag til Biskupsstofu sem kveð- ið er á um í svokölluðu kirkjujarða- samkomulagi frá 1997 og hins veg- ar sóknargjöld, sem ríkið innheimtir í formi tekjuskatts. Af þessum sökum var ákveðið að fresta frekari umræðu um fjármál kirkjunnar, þar á meðal tillögu um viðaukasamning við kirkjujarða- samkomulagið, sem veitir ríkinu undanþágu til þess að skerða fram- lagið sem grundvallast á sam- komulaginu. „Það sem við erum að ræða við ríkisvaldið er að reyna að fá leið- réttingu á sóknargjöldunum, því við lítum á þau sem félagsgjöld sem ríkið innheimtir fyrir okkur. Síðan í framhaldinu ætlum við að skoða kirkjujarðasamkomulagið og yfirfara það, hvort það þurfi að breyta einhverju í því,“ segir sr. Gísli Gunnarsson, sem situr í kirkjuráði þjóðkirkjunnar. Gísli segir að það hafi verið af- staða þeirra sem sátu þingið að skrifa ekki undir viðaukasamning- inn, og þar með skerðingu á fram- lögum til kirkjunnar, í fjórða sinn fyrr en niðurstaða hefði fengist um upphæð sóknargjaldanna. „Eftir hrun fannst okkur það skylda okkar að taka þátt í við- reisninni með því að taka á okkur þessar skerðingar. Í sjálfu sér gerðum við okkur ekki grein fyrir því að það væri verið að skerða meira hjá kirkjunni en hjá öðrum stofnunum innan t.d. innanrík- isráðuneytisins,“ segir Gísli. Hann segir að farið sé að sverfa að sóknum landsins. „Sóknargjöldin renna beint til sóknanna um landið, 270 sókna alls, og það er komið að ákveðnum þolmörkum þar eftir niðurskurð síðastliðinna þriggja ára,“ segir hann. Gísli segir að kirkjan hafi þurft að ráðast í ýmsar aðgerðir til að mæta niðurskurði á framlögum til hennar. Til dæmis hafi prestaköll verið sameinuð og ráðningum í lausar stöður, t.d. í Grafarvogi og Hafnarfirði, verið frestað. „Við höfum hreinlega bara ekki efni á að ráða í þessar stöður og við frestum því þangað til við sjáum hvað verður,“ segir hann. Hann segir of snemmt að segja fyrir um hver verði niðurstaða við- ræðnanna við stjórnvöld. „Mér finnst nú bara það, að þessar við- ræður skuli vera komnar í gang, benda til þess að fólk, og ríkið, vilji finna á þessu flöt sem hægt er að semja um og komast niður á.“ Sverfur að sóknum landsins  Viðræðurnar við ríkið snúast fyrst og fremst um leiðréttingu sóknargjald- anna  Ríkisvaldið á að greiða fyrir 138 embætti en greiðir nú fyrir 110 Sóknargjöld* Þróunsóknargjalda í þjóðkirkjunni 2008-2012 Breyting sóknargjalda í samræmi viðmeðaltal stofnana innanríkisráðuneytisins * Miðað við mánaðargjald sem einstaklingar 16 ára og eldri sem eru í þjóðkirkjunni greiða í félagsgjöld. ** Fjárlagafrumvarp 2013. *** Áætlað 2013. Heimild: Biskupsstofa 1.000 950 900 850 800 750 700 650 Kr. 2008 2009 2010 2011 2012 2013 87 2 83 3 76 7 69 8 70 1 72 8* * 87 2 99 3, 99 95 2, 57 90 6, 18 91 9, 44 95 8, 42 ** * Kirkjujarðasamkomulagið frá 1997 fól m.a. í sér að ríkið eignaðist flestar kirkjujarðir á landinu en skuldbatt sig í staðinn til að greiða árlega fyrir 138 embætti innan þjóð- kirkjunnar. „Nú er svo komið að ef þetta er reiknað í embætti, það sem ríkið er að greiða, þá eru þetta eitthvað um 110 embætti. Þannig að það er far- ið að vanta töluvert upp á að það sé staðið við upphaflega samninginn,“ segir Gísli. Hann segir að kirkjan hafi samþykkt skerðingar á fram- laginu í þrjú ár en nú sé ætl- unin að bíða aðeins með und- irritun þar til ljóst verður hvernig fer með sóknargjöldin. Gísli segir að viðræðurnar við ríkið snúist fyrst og fremst um það mál, þ.e. hvort ríkið sé tilbúið til að leiðrétta sóknar- gjöldin til samræmis við önnur framlög til stofnana, og að niðurstaða muni væntanlega liggja fyrir þegar kirkjuþing kemur aftur saman í desem- ber. Vantar tölu- vert upp á NIÐURSKURÐUR Hannabirna.isSími 499 1261 Kosningaskrifstofa Hönnu Birnu Kristjánsdóttur er opin alla daga kl. 10–22 í einu af bláu húsunum við Fákafen, Suðurlandsbraut 48. Komdu í kaffi og ræddu við frambjóðandann um stjórnmálin og framtíðina eða taktu þátt í kosningastarfinu. Stuðningsmenn 1. sæti » Reykjavík Hanna Birna „Það er alveg klárt að þetta verður kært,“ segir Sigurbjörn Ársæll Þor- bergsson, lögmaður Þorsteins Hjaltested, eiganda Vatnsendajarð- arinnar, og systkina hans. Í gær- morgun féll dómur Héraðsdóms Reykjaness á þann veg að jörðin teldist til eigna dánarbús Sigurðar K. Lárussonar Hjaltested sem lést árið 1966. Eignarrétturinn hefði aldrei verið fluttur til niðja Sigurðar á löglegan hátt. „Ég get ekki tjáð mig um þetta að öðru leyti en að þetta fer upp í Hæstarétt,“ segir Sig- urbjörn í samtali við mbl.is. Deilt hefur verið um eignarhald á jörðinni lengi og margir dómar fallið. Í málinu nú er það niðurstaða hér- aðsdóms að eignarrétturinn að jörð- inni hafi aldrei verið með löglegum hætti fluttur frá Sigurði, sem fékk jörðina í arf eftir föðurbróður sinn. Hafi eignarrétturinn aldrei flust til niðja Sigurðar, heldur eingöngu af- nota- og umráðarétturinn, eins og tekið hafi verið fram í erfðaskrá frá árinu 1938 að skyldi gera. Þegar Sigurður lést voru Magnúsi syni hans afhent yfirráð yfir jörð- inni. Magnús lést árið 1999 og árið 2000 tók elsti sonur hans, Þorsteinn Hjaltested, við jörðinni. Deilur milli erfingja Aðrir erfingjar Sigurðar kröfðust þess að bú hans yrði tekið til opin- berra skipta. Kvað Hæstiréttur upp dóm í því máli á síðasta ári og tók undir með erfingjunum, að ekki hefði verið sýnt fram á, að skiptum á dán- arbúinu, sem hófust í skiptarétti Kópavogs 1967, hefði verið lokið með formlegum hætti svo sem skylt væri að lögum. Hins vegar var tekið fram, að jörðin Vatnsendi væri ekki lengur meðal eigna búsins. Kópavogsbær hefur tekið hluta af Vatnsenda eignarnámi, síðast 864 hektara árið 2007 og greiddi þá fyrir það land 2,5 milljarða króna eða um 3,5 milljarða að núvirði. Fram kemur í úrskurði héraðsdóms að erfingjar Sigurðar Hjaltested telji að greiðslur fyrir einstaka hluta jarð- arinnar hafi átt að renna til dánar- búsins en ekki Magnúsar og Þor- steins en þeir hafi eftir sem áður tekið við greiðslum frá Kópavogsbæ vegna eignarnámsins. Þorsteinn Hjaltested hefur undanfarin tvö ár verið skattahæsti einstaklingur landsins. Vatnsendi sé hluti af eignum dánarbúsins  Hyggst kæra úrskurð héraðsdóms Morgunblaðið/RAX Byggð Lóðirnar í Vatnsendahverfi í Kópavogi eru margar dýrar. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Hvorki var gengið frá samkomulagi um veiðar úr norsk-íslenska síld- arstofninum né kolmunna á ársfundi Norðaustur-Atlantshafsfiskveiði- nefndarinnar (NEAFC) í höfuð- stöðvum nefndarinnar í London í vikunni. Meginástæða þessa munu vera kröfur Færeyinga um aukinn hlut úr stofni norsk-íslenskrar síld- ar. Þessi mál eru því í ákveðinni óvissu, en fundur verður haldinn um fyrrnefnda fiskstofna í desember. Ekki var að vænta samkomulags um makrílveiðar á þessum fundi og fundur um stjórnun makrílveiða hef- ur ekki verið boðaður. Í frétt frá atvinnuvegaráðuneyt- inu um fund NEAFC segir meðal annars: „Venja er að á ársfundinum séu staðfestir samningar strandríkja um stjórnun veiða úr deilistofnum. Þar sem samningum strandríkja um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum og kolmunnastofn- inum, sem og makrílstofninum, hef- ur ekki verið lokið var á fundinum ekki tekin afstaða til stjórnunar veiða úr þeim stofnum á árinu 2013.“ Talið er að hrygningarstofn norsk-íslenska síldarstofnsins muni minnka á næstu árum. Samkvæmt nýjasta mati er hrygningarstofninn í ár rúmar sex milljónir tonna, sem er tæpri milljón tonnum lægra en mat- ið í fyrra. Aflamark 2013 verður 619 þúsund tonn, skv. aflareglu, sem beitt hefur verið á undanförnum ár- um. Til samanburðar var aflamarkið 833 þúsund tonn í ár og hlutdeild Ís- lands 120 þúsund tonn. Ekki sam- komulag um síldina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.