Morgunblaðið - 17.11.2012, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012
Horfðu björtum augum fram á veginn
Sameinaði lífeyrissjóðurinn leggur áherslu á gagnsæi og öfluga
upplýsingagjöf sem tryggir þér auðvelda og skýra yfirsýn yfir öll
þín lífeyrismál.
Kynntu þér málin á lifeyrir.is eða fáðu upplýsingar hjá starfsfólki í síma 510 5000.
Sameinaði lífeyrissjóðurinn Borgartúni 30 105 Reykjavík www.lifeyrir.is
Á lifeyrir.is
• sérðu stöðu lífeyrisréttinda og séreignar
• finnur þú ítarlegar upplýsingar um rekstur sjóðsins
• geturðu kynnt þér fjárfestingarstefnu og eignir sjóðsins
• geta launagreiðendur skilað iðgjaldaskilagreinum á einfaldan og
öruggan hátt og myndað kröfu í netbanka sínum
Vefurinn okkar, lifeyrir.is, er aðgengilegur og notendavænn
bæði fyrir sjóðfélaga og launagreiðendur.
Afmælistónleikar Karlakórs Akur-
eyrar-Geysis fara fram í Hofi á Ak-
ureyri í kvöld í tilefni af 90 ára sögu
kórsins.
Karlakórinn Geysir var stofn-
aður 1922 og Karlakór Akureyrar
1929. Kórarnir voru síðan samein-
aðir í október 1990.
Saga kóranna verður sögð í tón-
um og tali í Hofi í kvöld og hefjast
tónleikarnir klukkan 20. Á tónleik-
unum syngur afmælisbarnið sjálft;
Karlakór Akureyrar-Geysir og fé-
lagar úr kórnum, einsöngvarar og
kvartett. Sérstakir gestir eru ten-
órarnir Kristján Jóhannsson og
Örn Viðar Birgisson, sem báðir
hafa tekið þátt söngstarfi kóranna.
Karlakór Akureyrar-Geysir á 90 ára afmæli.
Afmælistónleikar
á Akureyri í kvöld
Á hádegisverðarfundi Churchill-
klúbbsins sem verður haldinn á
Nauthól í dag, mun Hannes Hólm-
steinn Gissurarson prófessor fjalla
um Churchill sem stjórnmálaskör-
ung.
Í erindi sínu mun Hannes sér-
staklega ræða fjögur efni: rithöf-
undinn og ræðusnillinginn Churc-
hill, afstöðu hans til uppgangs
nasista fyrir stríð, afstöðu hans til
breska heimsveldisins, sérstaklega
Indlands, og hugmyndir hans um
Bretland eftir stríð, þar á meðal
andstöðu hans við víðtækan áætl-
unarbúskap.
Allir eru velkomnir á fundinn á
Nauthól sem hefst kl. 12 á hádegi
en skrá þarf þátttöku fyrirfram á
slóðinni www.aha.is/churchill4.
Hádegisverður er innifalinn í fund-
argjaldi.
Erindi um Churchill
Boðað er til minningarathafnar við
bráðamóttöku Landspítalans í
Fossvogi klukkan 11 á sunnudaginn
þar sem minnst verður fórnar-
lamba umferðarslysa og jafnframt
heiðraðar þær starfsstéttir sem
koma að björgun og aðhlynningu.
Öllum er velkomið að taka þátt í
athöfninni í Fossvogi. Farið hefur
verið þess á leit við trúfélög og
söfnuði að þeir minnist fórnar-
lamba umferðarslysa í hugleiðslu
og predikunum dagsins.
Minningardagur
fórnarlamba
umferðarslysa
Samtökin Ís-
lenskt þjóðráð –
IceWise – efna til
málþings á veit-
ingastaðnum Rú-
bín í Öskjuhlíð
við hliðina á
Keiluhöllinni
mánudaginn 19.
nóvember kl.
17:15.
Sérstakur
gestur verður breska þingkonan
Kate Hoey, þingmaður Verka-
mannaflokksins í Vauxhall í Lund-
únum. Fram kemur í tilkynningu að
Hoey sé skeleggur málssvari þess,
að efnt verði til þjóðaratkvæða-
greiðslu í Bretlandi um aðild að
Evrópusambandinu.
Einnig flytja Hallur Hallsson,
formaður Þjóðráðs, og Jón Kristinn
Snæhólm, varaformaður, erindi.
Evrópuþingmaður
flytur erindi um ESB
Kate Hoey.
STUTT
Viggó E. Maack skipaverkfræðingur er eini eftir-
lifandi stofnfélagi Lionsklúbbsins Fjölnis, sem
var stofnaður 4. maí 1955. Í tilefni af níræðis-
afmæli Viggós ákváðu félagar klúbbsins að veita
honum æðsta heiðursmerki Lions sem er Melvin
Jones-merki með demanti. Áður hafði Viggó
fengið Melvin Jones-skjöldinn sem Lionsklúbbar
veita félögum fyrir afburðastarf fyrir klúbbinn og
Lionshreyfinguna.
Með veitingu Melvin Jones-skjaldar leggur
klúbburinn 1.000 dollara í alþjóðahjálparsjóð
Lions, LCIF, Lions Clubs International Fo-
undation. Æðsta viðurkenningin er svo Melvin
Jones-merki með demanti þar sem klúbburinn
leggur fram sömu upphæð í hjálparsjóð Lions.
LCIF hefur með fjárframlögum komið að
hjálparstarfi á Ísland, svo sem í Vestmanna-
eyjagosinu 1973, snjóflóðunum í Súðavík og á
Flateyri og ýmsum öðrum verkefnum. Sjá nán-
ari upplýsingar á www.lions.is
Viggó fékk æðsta heið-
ursmerki Lionsmanna
Lions Viggó E. Maack og Ásta Maack, kona hans, í
neðri röð. Stjórn Fjölnis í efri röð, f.v. Þórhallur M. Ein-
arsson, Jón H. Magnússon formaður og Ottó Schopka.
Níræður og eini eftirlifandi stofnfélagi Fjölnis