Morgunblaðið - 17.11.2012, Síða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugard. 11–16, sunnud. 14–16
Gallerí Fold í 20 ár 1992–2012
Listmunauppboð
Keramikuppboð
Lýkur 19. nóvember
Síðustu forvöð til að koma verkum á uppboð
fyrir jól er mánudagurinn 19. nóvember
Fyrir viðskiptavini leitum við að verkum eftir Louisu Matthíasdóttur,
Þórarinn B. Þorláksson, Svavar Guðnason og Nínu Tryggvadóttur.
Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400
Erum einnig að taka á móti
gull- og silfurmunum á uppboð.
Bókauppboð
17. nóvember – 2. desember
Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra
viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið.
36 dagar til jóla
Opnunarhátíð jólasveinanna í
Dimmuborgum verður í dag klukk-
an 13-15. Munu jólasveinarnir taka
á móti gestum, spjalla, syngja og
segja sögur.
Ferðaþjónustan í Mývatnssveit
kemur sameiginlega að jólasveina-
verkefninu. Fram kemur í tilkynn-
ingu, að tekið verði gjald fyrir að
heimsækja jólasveinanna í Dimmu-
borgir, börn þurfa ekki að greiða
aðgangseyri en fullorðnir (eldri en
18 ára) greiða 1000 krónur. Jóla-
sveinarnir verða með bauk með sér
á Hallarflötinni sem gestir geta
greitt í.
Jólasveinarnir verða tíðir gestir í
Dimmuborgum fram að jólum.
Þann 8. desember fara sveinarnir
síðan í sitt árlega jólabað í Jarðböð-
unum kl. 17.
Jólasveinarnir koma í Dimmuborgir í dag
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Jólasveinar Sveinarnir birtast í Dimmu-
borgum í dag og verður mikið um dýrðir.
Jóla- og tækifæriskort Skógræktarfélags Íslands árið
2012 er komið út. Á kortinu er vatnslitamynd eftir
Sigurþór Jakobsson og prýðir sú mynd einnig forsíðu
2. heftis Skógræktarritsins 2012.
Sérstök hvatning er á kortinu, þar sem kemur fram
að fyrir hvert selt kort gróðursetur félagið eitt tré.
Fram kemur í tilkynningu, að ekkert sé prentað inn í
kortin þannig að þau nýtist áfram eftir jól sem afmæl-
iskort, boðsmiðar eða hvað sem fólki detti í hug.
Kortin eru seld 10 saman í búnti með umslagi á
1.000 krónur. Ef pöntuð eru 50 kort eða fleiri er veittur 25% afsláttur.
Hægt er að nálgast kortin á skrifstofu Skógræktarfélags Íslands, í Þór-
unnartúni (Skúlatúni) 6, 2. hæð. Einnig eru enn til nokkrar gerðir af
eldri kortum.
Þá er hægt að panta kortin í síma 551-8150 eða með tölvupósti til
skog@skog.is og fá þau póstsend en þá bætist við 250 króna afgreiðslu-
gjald.
Skógræktarfélag Íslands selur jólakort
Jólahefti Rauða krossins á Íslandi
eru borin í hús til allra heimila í
landinu þessa dagana. Býður Rauði
krossinn landsmönnum að styrkja
innanlandsverkefni félagsins með
því að kaupa heftið. Það inniheldur
að venju merkimiða á pakka, jóla-
merki á umslög og jólakort.
Myrra Leifsdóttir teiknaði mynd-
ina að þessu sinni. Myrra er fædd í
Gautaborg og ólst upp í Svíþjóð og
á Íslandi. Hún hefur myndskreytt
og hannað bækur og fengist við ým-
is önnur verkefni undanfarin sjö ár,
samhliða búninga- og leik-
myndahönnun fyrir kvikmyndir og
leikhús.
Um 3500 sjálfboðaliðar Rauða
krossins á Íslandi bera starfsemi fé-
lagsins uppi, að því er kemur fram í
tilkynningu. Árlega veitir Rauði
krossinn einstaklingum og fjöl-
skyldum um allt land aðstoð fyrir
jólin.
Jólahefti Byrjað er að dreifa jólahefti
Rauða kross Íslands í hús hér á landi.
Jólahefti Rauða
krossins borin í hús
Waldorfleikskólinn Ylur og Wal-
dorfskólinn í Lækjarbotnum halda
sinn árlega jólabasar í dag frá kl.
12-17 í Lækjarbotnum fyrir ofan
Lögbergsbrekkuna.
Í tilkynningu segir, að boðið
verði m.a. upp á brúðuleikhús,
barnakaffihús, veiðitjörn, eldbak-
aðar pizzur, jurtaapótek, tónlist á
vegum nemenda, tívolí auk muna
sem börn í skólunum hafa búið til.
Uppeldisfræði Waldorfskólanna
var þróuð af Rudolf Steiner og á sér
grundvöll í heimspeki hans og
mannspeki.
Jólabasar í Lækjar-
botnum í dag
Líf styrktarfélag gefur í ár út jóladagatal til
styrktar Kvennadeild Landspítalans.
Jóladagatalinu, sem unnið er í samvinnu við
margar þekktar persónur úr íslenskum barna-
ævintýrum, er ætlað að vekja börnin til marg-
víslegra leikja og stytta þeim stundir fram til jóla
en með því að fletta hverjum degi á jóladagatalinu,
opnast allskyns ævintýri, leikir og þrautir. Krakk-
arnir fá nýja mynd til að lita hvern dag þar sem við
sögu koma kunnar persónur út Latabæ og Ávaxta-
körfunni en einnig má finna þar Skessuna í fjallinu og Lilla apa úr
Brúðubílnum. Einnig gefst börnum tækifæri til að taka þátt í eldhús-
störfum.
Jóladagatal Lífs kostar 1.990 krónur og fæst í öllum verslunum Hag-
kaups og Samkaups. Sala hefst 20. nóvember.
Jóladagatal til styrktar kvennadeild
Eldri bæjarbúar á Seltjarnarnesi
halda flóamarkað og jólabasar í
dag klukkan 13-17 í félagsheimili
sínu við Skólabraut 3-5.
Á jólabasarnum verður til sölu
handverk, fatnaður og ýmislegt
fleira. Einnig er boðið upp á vöfflu-
kaffi.
Jólabasar á
Seltjarnarnesi
ÚR BÆJARLÍFINU
Djúpivogur
Andrés Skúlason
Um nokkra ára skeið hefur ver-
ið haldin sérstök hátíð til heiðurs
myrkrinu á Austurlandi. Hefur við-
burður þessi, sem stendur yfir í
heila viku í nóvember, gengið undir
heitinu Dagar myrkurs. Samfélagið
á Djúpavogi sem og burtfluttir ein-
staklingar hafa síðustu ár gert há-
tíð þessari sérstaklega hátt undir
höfði og varð sannarlega engin
breyting á að þessu sinni.
Hápunktur dagskrárinnar er
að venju svokölluð Sviðamessa sem
haldin er á Hótel Framtíð en þar
fer jafnan fram gráglettin skemmt-
un og dansleikur á eftir. Skemmtun
þessi verður vinsælli með hverju
árinu og til vitnis um það hefur
verið uppselt síðustu tvö árin.
Óvenjumikil umferð línubáta
hefur verið í Djúpavogshöfn það
sem af er þessu hausti og hefur því
verið mjög líflegt við hafnarkant-
inn. Þjónusta við fiskibáta sem
koma til Djúpavogshafnar þykir að
mati margra útgerðar- og
sjómanna framúrskarandi góð.
Jöfn og stöðug vinnsla hefur verið í
starfsstöð Vísis hf. á Djúpavogi
sem er sem áður kjölfestan í at-
vinnulífinu á Djúpavogi. Vænta má
að dragi úr umferð stærri línubáta
eftir áramót en síðan mun lífið
dafna aftur við höfnina undir vorið
þegar smábátar fara aftur á flot.
Áform um viðamikla upp-
byggingu í fiskeldi eru nú í burð-
arliðnum í Berufirði og á þessu ári
hefur þegar verið sleppt 50 þúsund
laxaseiðum í sjókvíar og þá hefur
einnig verið sleppt umtalsverðu
magni af regnbogasilungi.
Fiskeldið í Berufirði, sem er
stofnað til af fyrirtækinu Fiskeldi
Austfjarða ehf., stefnir á að vinna
afurðir í vistvænum anda og mark-
aðssetja þær á dýrari markaði en
hið hefðbundna eldi er á.
Á Djúpavogi er kraftmikið tón-
listarlíf og í þeim efnum má nefna
að Tónskóli Djúpavogs er full-
setinn en við hann starfa hæfi-
leikarík ungversk hjón, þau József
Béla Kiss og Andrea Kissné
Refvalvi sem hafa nóg að starfa
þessa dagana við að kenna ungum
og efnilegum börnum og ungling-
um við Tónskóla Djúpavogs. Þá
stjórnar Jozef einnig kirkjukór
Djúpavogs sem og karlakórnum
Trausta sem var stofnaður á síð-
asta ári.
Dagar myrkurs á Djúpavogi
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Skemmtun Dagar myrkurs hafa unnið sér fastan sess hjá íbúum Djúpavogs og atriðin eru oft mjög lífleg.
Disneyklúbburinn heldur um helgina
kökukeppni í Smáralind í samvinnu
við Morgunblaðið. Kökurnar verða
til sýnis fyrir framan verslun Hag-
kaups bæði laugardag og sunnudag.
Þemað í kökukeppninni eru teikni-
myndir Disney sem allir þekkja.
Fólk er hvatt til þess að nota ímynd-
unaraflið, útbúa glæsilegar kökur
með einhverjum af sínum uppáhalds
Disney-persónum og koma með þær
í keppnina. Keppt er í tveimur flokk-
um, fullorðinna og barna. Til mikils
er að vinna því 1. vinningur í fullorð-
insflokki er Kitchen Aid hrærivél,
eins árs Disney-áskrift, stóru Disn-
ey-matreiðslubækurnar og þriggja
mánaða áskrift að Morgunblaðinu. Í
flokki barna eru 1. verðlaun eins árs
Disney-áskrift, stóru matreiðslu-
bækurnar og þriggja mánaða áskrift
að Morgunblaðinu. Verðlaun eru
einnig veitt fyrir 2.-3. sæti í báðum
flokkum.
Kökukeppni Disney í Smáralindinni