Morgunblaðið - 17.11.2012, Side 33
FRÉTTIR 33Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
25 ár á Íslandi
20% afsláttur af öllum vörum alla helgina
• Happdrætti
• Blöðrur
• Gjafir
Laugardag kl 13-16 er boðið upp á:
• Djús/drykkir fyrir börn og fullorðna
• Nammipokar
Zagreb. AFP. | Tveimur króatískum
hershöfðingjum var í gær fagnað
sem þjóðhetjum í heimaborg sinni,
Zagreb, eftir að stríðsglæpadómstóll
Sameinuðu þjóðanna í Haag sýknaði
þá af ákærum um stríðsglæpi gegn
Serbum í Króatíu eftir að Júgóslavía
leystist upp.
Tugir þúsunda Króata söfnuðust
saman á torgi í Zagreb til að fagna
hershöðingjunum Ante Gotovina og
Mladen Markac.
„Smánarleg ákvörðun“
Mikil reiði var hins vegar í Serbíu
vegna sýknudómsins. Tomislav
Nikolic, forseti Serbíu, sagði að
niðurstaða dómstólsins væri
„smánarleg pólitísk ákvörðun“.
„Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu
þjóðanna hefur misst allan trú-
verðugleika,“ sagði serbneski ráð-
herrann Rasim Ljajic, sem hefur
yfirumsjón með samstarfi serb-
neskra yfirvalda við stríðsglæpa-
dómstólinn. Ráðherrann gaf til
kynna að dregið yrði úr samstarfinu
vegna sýknudómsins. Réttarhöldum
er ekki enn lokið í málum Radovans
Karadzic og Ratkos Mladic og fleiri
Serba sem hafa verið sakaðir um
stríðsglæpi í fyrrverandi lýðveldum
Júgóslavíu.
Hershöfðingjarnir voru fundnir
sekir í fyrra fyrir dráp á Serbum í
Króatíu. Gotovina fékk 24 ára fang-
elsisdóm og Markac 18 ára.
Eftir að dómunum var áfrýjað
komst stríðsglæpadómstóllinn að
þeirri niðurstöðu að hafna bæri
þeirri forsendu fangelsisdómanna að
sérhver stórskotaliðsárás á serb-
neska byggð, sem væri meira en 200
metra frá hernaðarlegu skotmarki,
teldist vera árás á óbreytta borgara
og þar með stríðsglæpur.
Króatar fagna
sýknudómi
Serbar reiðir út í dómstólinn í Haag
AFP
Fögnuður Króatar fagna sýknu-
dómnum í miðborg Zagreb.
Starfsmaður dýraverndarsamtaka gefur úf að éta eftir
að fuglinum var bjargað nálægt indversku borginni
Amritsar. Fuglinn hafði flækst í streng flugdreka. Yfir-
völd hafa bannað ákveðnar tegundir flugdreka á svæð-
inu vegna þess að sjaldgæfum fuglum stafar hætta af
þeim. Úfur er af ugluætt og fágætur á þessum slóðum.
AFP
Flugdrekar ógna indverska úfnum
Forsvarsmenn IKEA sögðust í gær
harma það að pólitískir fangar hefðu
verið í nauðungarvinnu fyrir nokkra
af birgjum fyrirtækisins í Austur-
Þýskalandi á tímum kommúnista-
stjórnarinnar.
Fjallað er um málið á vef breska
ríkisútvarpsins, BBC. Þar segir að
IKEA hafi fengið endurskoðunar-
fyrirtækið Ernst & Young til að
rannsaka málið. Skýrsla Ernst &
Young hefur verið birt og þar kemur
fram að fangar, þ. á m. pólitískir
fangar, hafi framleitt vörur fyrir
IKEA.
Niðurstöður skýrslunnar byggj-
ast á tugum þúsunda gagna úr
skjalasafni fyrirtækisins og þýskum
skjalasöfnum. Í skýrslunni segir
m.a. að forsvarsmenn fyrirtækisins
á þessum tíma hafi vitað um nauð-
ungarvinnuna og gert samkomulag
við stjórnvöld í Austur-Þýskalandi á
áttunda áratug aldarinnar sem leið.
Fram kemur á vef BBC að póli-
tískir fangar, sem voru í haldi Stasi,
austurþýsku öryggislögreglunnar,
segjast hafa komið að smíði hús-
gagna. Það varð til þess að IKEA fól
Ernst & Young að rannsaka málið.
Búist er við að fangarnir fyrrverandi
fái greiddar bætur. jonpetur@mbl.is
Nauðungarvinna
fanga afhjúpuð
IKEA biðst afsökunar á nauðungar-
vinnu pólitískra fanga í A-Þýskalandi
IKEA Merki fyrirtækisins á verslun í
Austur-Þýskalandi lagfært.
AFP