Morgunblaðið - 17.11.2012, Side 52
52 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012
ÁRBÆJARKIRKJA | Messa kl. 11.
Karlakór Kjalnesingja syngur undir
stjórn Örlygs Atla Guðmundssonar
ásamt kirkjukórnum. Organisti Kriszt-
ina K. Szklenár. Sr. Sigrún Ósk-
arsdóttir þjónar fyrir altari. Sunnu-
dagaskóli á sama tíma í
safnaðarheimilinu í umsjón Díönu og
Fritz. Kaffi og ávextir á eftir.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. Sr. Sigurður Jónsson sóknar-
prestur prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt Önnu Þóru Paulsdóttur guð-
fræðinema. Ása Laufey Sæmunds-
dóttir og Viðar Stefánsson guðfræði-
nemar annast samveru sunnudaga-
skólans. Fermingarbörn aðstoða. Kór
Áskirkju syngur, organisti er Magnús
Ragnarsson. Kaffisopi á eftir. Sjá
www.askirkja.is.
ÁSTJARNARKIRKJA | Léttmessa
og sunnudagaskóli kl. 11. Kór
Ástjarnarkirkju syngur gospellög undir
stjórn Helgu Þórdísar Guðmunds-
dóttur tónlistarstjóra. Prestur er sr.
Jakob Ágúst Hjálmarsson, fv. dóm-
kirkjuprestur. Sunnudagaskóli er und-
ir stjórn Hólmfríðar S. Jónsdóttur.
Hressing á eftir.
BESSASTAÐAKIRKJA | Kvöldmes-
sakl. 20. Sr. Hans Guðberg Al-
freðsson, Margrét Gunnarsdóttir og
Bjartur Logi Guðnason organisti leiða
stundina. Hljómsveitin Lærisveinar
hans leikur og Helga Vilborg Sig-
urjóndóttir kennir afríska söngva með
þátttöku fermingarbarna.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudaga-
skóli kl. 11 í Brekkuskógum 1. Um-
sjón hafa Karen Ösp, Axel og Finnur
Sigurjón.
BORGARNESKIRKJA | Messa kl.
11. Guðsþjónusta í Brákarhlíð kl.
13.50. Organisti Steinunn Árnadóttir
og prestur er Þorbjörn Hlynur Árna-
son.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl.
11. Prestur sr. Gísli Jónasson. Fé-
lagar úr Hljómeyki syngja, organisti er
Örn Magnússon. Sunnudagaskóli kl.
11 í umsjá Ólafar Margrétar Snorra-
dóttur. Kaffi og djús á eftir.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl.
11. Umsjón hafa Bára Elíasdóttir og
Daníel Ágúst ásamt organista Jónasi
Þóri og sóknarpresti. Guðsþjónusta
kl. 14. Kirkjukór Bústaðakirkju syng-
ur, organisti kantor Jónas Þórir. Prest-
ur er sr. Pálmi Matthíasson. Kaffi á
eftir.
DIGRANESKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Prestur sr.
Gunnar Sigurjónsson. Organisti Zbig-
niew Zuchowich., Kvennahópur kórs
Digraneskirkju syngur. Á eftir er há-
degisverður. Sjá digraneskirkja.is.
DÓMKIRKJAN | Djáknavígsla kl. 11.
Sr. Kristján Valur Ingólfsson vígir Guð-
mund Sveinbjörn Brynjólfsson til
djákna í Guðríðarkirkju. Dómkórinn
syngur, organisti er Kári Þormar.
Sunnudagaskólinn kl. 11. Æðruleys-
ismessa kl. 20. Sr. Hjálmar Jónson,
sr. Karl V. Matthíasson og sr. Bryndís
Valbjörnsdóttir þjóna. Bræðrabandið
sér um tónlistina. Sjá www.kirkjan.is.
FELLA- og Hólakirkja | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Prestur sr.
Svavar Stefánsson. Kór kirkjunnar
leiðir almennan safnaðarsöng undir
stjórn Ástu Haraldsdóttur organista.
Ungir nemendur úr Tónskóla Sig-
ursveins leika á fiðlu og píanó, ásamt
kennara sínum. Sunnudagaskóli er í
umsjá Hreins Pálssonar og Péturs
Ragnhildarsonar, boðið verður upp á
andlitsmálningu. Kirkjuvörður og
meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Kvöldvaka kl. 20.
Kór og hljómsveit kirkjunnar leiða
sönginn undir stjórn Arnar Arn-
arsonar. Organisti Skarphéðinn Þór
Hjartarson og bassaleikari Guð-
mundur Pálsson.
FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudaga-
skóli kl. 11. Hressing í lokin fyrir börn
og fullorðna. Samkoma kl. 13.30.
Greg Aikins prédikar og tónlistarhóp-
urinn leiðir lofgjörð. Boðið er upp á
aðstöðu fyrir börn. Kaffi á eftir.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Hjörtur Magni Jó-
hannsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Sönghópur Fríkirkjunnar í
Reykjavík leiðir tónlistina undir stjórn
Gunnars Gunnarssonar organista.
GRAFARVOGSKIRKJA | Útvarps-
guðsþjónusta kl. 11. Sr. Lena Rós
Matthíasdóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Kór kirkjunnar syngur, organisti
er Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli
kl. 11. Umsjón hefur Þóra Björg Sig-
urðardóttir, undirleikari er Stefán
Birkisson. Dagur orðsins. Tileinkaður
Elísabetu Jökulsdóttur. Erindi verða
flutt frá kl. 10-11.
Borgarholtsskóli Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sr. Vigfús Þór Árna-
son prédikar og þjónar fyrir altari. Vox
populi syngur, organisti Hilmar Örn
Agnarsson. Umsjón með sunnudaga-
skóla Gunnfríður Tómasdóttir.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður
kl. 10 og bænastund kl. 10.15.
Barnastarf kl. 11, umsjón hafa
Helga, Nanda María og Ingunn Huld.
Messa kl. 11. Altarisganga. Samskot
í líknarsjóð. Messuhópur þjónar.
Kirkjukór Grensáskirkju syngur og
organisti er Bjarni Jónatansson.
Prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Mola-
sopi á eftir. Hversdagsmessa með
Þorvaldi Halldórssyni á fimmtudag kl.
18.10.
GRINDAVÍKURKIRKJA | Kven-
félagsmessa kl. 14. Prédikari er Arn-
dís G. Bernhardsdóttir Linn. Stúlkna-
kór Grindavíkurkirkju leiðir sönginn
ásamt Kór Grindavíkurkirkju, stjórn-
andi er Bjartur Logi Guðnason org-
anisti. Kvenfélagið sér um kaffisölu
eftir messu og rennur ágóðinn til líkn-
armála. Sunnudagaskóli kl. 11.
Prestur sr. Elínborg Gíslasdóttir.
GRUND dvalar- og hjúkr-
unarheimili | Messa kl. 14 í hátíð-
arsal á vegum Félags fyrrum þjónandi
presta. Sr. Gísli H. Kolbeins þjónar
fyrir altari. Grundarkórinn leiðir söng
undir stjórn Kristínar Waage org-
anista.
GUÐRÍÐARKIRKJA | Sókn-
arbörnum, starfsmönnum og öðrum
velunnurum Guðríðarkirkju er boðið
að koma í Dómkirkjuna í tilefni vígslu
hins nýja djákna. Þetta er í fyrsta
sinn sem þjónn er vígður til safnaðar
í Grafarholti. Sr. Sigríður stimplar í
helgihaldsbækur fermingarbarna sem
vilja sækja heim Dómkirkjuna á þess-
um hátíðisdegi.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa
og barnastarf kl. 11. Félagar úr Bar-
börukórnum syngja, organisti er Guð-
mundur Sigurðsson. Sr. Toshiki
Toma, prestur innflytjenda, prédikar,
sr. Þórhildur Ólafs þjónar fyrir altari.
Umsjónarmaður barnastarfs er Nína
Björg Vilhelmsdóttir djákni. Messu-
hópur. Veitingar á eftir og uppboð á
klippimyndum Maríu Eiríksdóttur.
Ágóði rennur til hjálparstarfs í Japan.
Útgáfutónleikar Barbörukórsins kl.
17, stjórnandi Guðmundur Sigurðs-
son. Messa kl. 8.15 á miðvikudag.
Morgunmatur.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirs-
son prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt hópi messuþjóna. Fermingar-
börn aðstoða. Drengjakór Reykjavíkur
í Hallgrímskirkju syngur undir stjórn
Friðriks S. Kristinssonar. Organisti er
Björn Steinar Sólbergsson. Haukur
Ingi Jónasson, lektor og prestur, held-
ur erindi kl. 10, þar sem hann ræðir
um tengsl og stöðu guðfræði og
kirkju í samtímanum.
HAUKADALSKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 14. Aðalsafnaðarfundur
Haukadalssóknar og kaffiveitingar
verða að messu lokinni.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barna-
guðsþjónusta kl. 11. Páll Ágúst, Arn-
ar og Sólveig Anna taka á móti börn-
unum. Kirkjukórinn syngur undir
stjórn Kára Allanssonar organista,
prestur Tómas Sveinsson.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík |
Samkoma kl. 17. Áslaug Haugland
talar.
HJÚKRUNARHEIMILIÐ Ás | Mes-
sakl. 15.
HVERAGERÐISKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11.
INGJALDSHÓLSKIRKJA | Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11 sem er
bæði almenn guðsþjónusta og
sunnudagaskóli.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sam-
koma kl. 13.30. Lofgjörð og fyr-
irbænir. Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
prédikar. Barnastarf á sama tíma.
Kaffi á eftir.
KAÞÓLSKA kirkjan:
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl.
11 og laugardag kl. 18.
Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa
kl. 11. Virka daga er messa kl. 18.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa
kl. 10.30, virka daga kl. 18.30
(nema föstud.).
Karmelklaustur, Hafnarfirði |
Messa kl. 8.30 og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík | Messa
kl. 14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa
kl. 10.30, kl. 13.00 á pólsku og á
ensku kl. 18. Virka daga er messa kl.
18.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk |
Messa kl. 11 og virka daga kl.
18.30. Laugardaga er messa á
ensku kl. 18.30.
Orð dagsins:
Tíu meyjar.
(Matt. 25)
Morgunblaðið/Ásdís
Fríkirkjan í Hafnarfirði.
✝ Gunnar Sig-urður Sigurðs-
son fæddist í
Tungugerði á
Tjörnesi 22. nóv-
ember 1926. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Þing-
eyinga 9. nóv-
ember 2012.
Foreldrar hans
voru Sigurður
Árnason bóndi og
síðar verkamaður, f. 15. ágúst
1897, d. 1990, og k.h. María
Jakobína Sigurðardóttir hús-
freyja, f. 11. feb. 1905, d.
1931. Gunnar Sigurður ólst
upp frá fimm ára aldri á
Máná á Tjörnesi, fyrst hjá afa
sínum og ömmu, þeim Sigurði
Jónssyni og Guðrúnu Guðna-
dóttur, en síðan hjá frænda
sínum Jóhanni Agli Sigurðs-
syni og k.h. Dýrfinnu Gunn-
arsdóttur. Uppeldissystkini
hans á Máná voru þau Sig-
urlaug Guðrún Egilsdóttir, f.
1934, Aðalgeir Egilsson, f.
1936, og Hallfríður Ingibjörg
Egilsdóttir, f. 1945. Hálfsystir
Gunnars Sigurðar samfeðra
var María Sigurðardóttir, f.
1954, d. 2006.
Gunnar Sigurður kvæntist
er Halla Björg Albertsdóttir.
b) Hafrún, f. 1991, og c) Sæ-
þór, f. 1998. 3) Jón bóndi í
Árholti, f. 27. maí 1970.
Gunnar Sigurður var í
barnaskóla á Húsavík og
dvaldi þá hjá föður sínum
sem þar bjó. Hann vann frá
unga aldri öll almenn sveita-
störf eins og þau tíðkuðust í
þá daga heima á Máná og
festi þar yndi. Hann var í tvö
ár við almenn verka-
mannastörf á Húsavík og auk
þess var hann eina vetr-
arvertíð í Vestmannaeyjum.
Árið 1958 stofnaði hann ný-
býlið Árholt á Tjörnesi ásamt
eiginkonu sinni Ástríði Önnu
Sæmundsdóttur, þar sem þau
bjuggu til æviloka. Gunnar
hafði mikinn áhuga á sauðfé,
mjög fjárglöggur og með
mikið auga fyrir umhverfi
sínu. Fyrst um sinn stunduðu
þau hjón blandaðan búskap,
en sneru sér svo alfarið að
sauðfjárrækt. Gunnar sótti
sjóinn með Agli á Máná, fyrst
á árabát og síðan á trillu. Þá
stundaði hann grásleppu-
veiðar um árabil, lá á grenj-
um og vann nokkur haust á
sláturhúsi KÞ. Hann var for-
maður Búnaðarfélags Tjör-
nesinga í u.þ.b. 30 ár og
deildarstjóri fyrir Kaupfélag
Þingeyinga í sinni sveit.
Útför Gunnars Sigurðar
fer fram frá Húsavíkurkirkju
í dag, 17. nóvember 2012, og
hefst athöfnin kl. 14.
25. júní 1957
Ástríði Önnu Sæ-
mundsdóttur, f.
25. júní 1922, d.
2010. Foreldrar
hennar voru Sæ-
mundur Jónsson
bóndi, f. 4. ágúst
1893, d. 1966, og
Guðbjörg Bald-
vina Eggertdóttir,
f. 1. júlí 1891, d.
1951. Börn Gunn-
ars og Ástríðar Önnu eru: 1)
Guðrún búsett á Húsavík, f.
26. apríl 1959. Maður hennar
er Jósteinn Þór Hreiðarsson,
f. 1955. Þeirra synir eru: a)
Hreiðar Þór, f. 1979 í sambúð
með Sigrúnu Helgu Sigurð-
ardóttur, f. 1982. b) Gunnar
Sigurður, f. 1982, og c) Sig-
mundur Arnar, f. 1983, í sam-
búð með Margréti Sigríði Vi-
borg, f. 1983. Barn þeirra er
Nína Fanny, f. 6. júní 2011. 2)
Jakobína, búsett á Húsavík, f.
30. sept. 1961. Maður hennar
er Olgeir, f. 1963. Börn
þeirra eru a) Sigurður Valdi-
mar, f. 1985, í sambúð með
Ragnheiði Ingibjörgu Ein-
arsdóttur, f. 1989. Sonur Sig-
urðar Valdimars er Jakob
Gunnar, f. 2007. Barnsmóðir
Þegar sólin er á lofti allan
sólarhringinn fyllist lífið mikl-
um krafti. Þannig er sumarið á
Máná. Blómin sofna aldrei, ung-
ar skríða úr eggjum og lömb
hoppa saman í hópum í kvöld-
sólinni. Hver festir ekki yndi á
svona stað sem þar elst upp,
fyllist orku og tekur þátt í öllu
því sem er að gerast. Það hefur
alltaf verið gaman að sjá Gunn-
ar fullan af krafti og kæti, starf-
saman og stundandi sinn bú-
skap af miklum áhuga. Mann
sem tekur vel á móti gestum og
vill sýna það sem verið er að
gera. Oftar en ekki farið í fjár-
hús þar sem hann fer kró úr kró
og sýnir féð í húsunum. Margar
fallegar ær. Hann er léttur á
sér, lyftir sér eins og ekkert sé
yfir garðabönd, tekur í bak og
kann sögur af kindum. Þannig
er Gunnar. Auðvitað hefur það
ekki verið létt fyrir fimm ára
dreng að missa móður sína,
missa heimili sitt og þurfa að
fara til frændfólks. En í upp-
vextinum á Máná eignast hann
góða fjölskyldu og fóstursystk-
in. Það að hafa fengið svo gott
uppeldi er hluti af þeirri lífs-
orku og lífsgleði sem einkennir
hann í gegnum lífið. Honum
fellur ekki verk úr hendi þó ald-
urinn færist yfir. Það er alltaf
sjálfsagt að vinna og vera öðr-
um til hjálpar. Þannig er lífs-
skoðun Gunnars. Hann kann til
svo margra verka. Stundar sjó-
sókn og hefur sterk tök á ár-
unum í bátnum. Oft svo kalt en
hann gefst ekki upp. Hann vinn-
ur sín verk, vakinn og sofinn.
Hann stígur mörg gæfuspor.
Ástríður Anna sem er hans lífs-
förunautur verður honum ómet-
anleg hjálp í dagsins önn. Þau
stofna nýbýli og nýta hverja
stund til þess að byggja upp og
búa í haginn. Gunnar girðir og
ræktar ný tún, vinnur staura úr
rekaviði, dregur drumba á land.
Þau Ástríður byggja íbúðarhús
og fjárhús og brátt koma börnin
sem hann hefur alltaf með sér.
Hvert sem hann fer þó lítil séu
og hvað svo sem hann er að
gera, þau eru alltaf með. Þetta
er Gunnar. Skemmtilegur heim-
ilisfaðir, félagi og samstarfs-
maður. Hann kann rímur og
setur saman vísur. Leggur kap-
al á eldhúsborðinu og veitir
börnum sínum gott veganesti.
En hann safnar ekki veraldleg-
um auði. Nýtir bara tímann fyr-
ir nýbýlið. Samt er hann for-
ríkur. Forríkur af gleði og
gæsku, velvild og vinnusemi.
Hann er náttúrubarn. Hann
heillast af heiðinni, fagnar fugl-
unum. Þekkir hverja þúfu.
Kannast við hvar kindurnar
halda sig. Þekkir allar með
nafni. Beitir á veturna mestan
sinn búskap og hleypur við fót
eftir fénu. Er marglesinn í
markaskránni.
Gunnar hugsar um hag
bænda. Hann hefur skoðanir.
Svoleiðis er Gunnar. Gaman að
koma í kaffi og kökur eftir fjár-
húsaferð og ræða menn og mál-
efni. En enginn bóndi er svo
hraustur að ekki banki ellin upp
á. Engin löng banalega, bara
undirbúningur undir nýja ferð
um nýjar lendur. Hann skilur
eftir vinnulúinn líkamann, losn-
ar við alla þreytu og þrautir. Er
leiddur til vina og vandamanna
sem farnir eru. Fagnaðarfundir
verða með honum og Ástríði og
hver veit nema það verði stofn-
að nýbýli á stað þar sem sólin
skín allan sólarhringinn. Þar
munu blómin brosa, fuglarnir
fagna og búsmalinn beita sér í
grængresinu. Þá verður Gunnar
glaður.
Atli Vigfússon.
Sérhvert vinarorð vermir sem
vorsólarljós.
Sérhver greiði og góðvild
er gæfunnar rós.
Hvort sem leiðin þín liggur
um lönd eða höf
gefðu sérhverjum sumar
og sólskin að gjöf.
(Þ.Þ.Þ.)
Þessi orð lýsa vel þeim hjón-
unum, Ástríði og Gunnari í Ár-
holti og því veganesti sem þau
gáfu mér út í lífið. Gunnar lést
9. nóv. síðastliðinn og verður
jarðsunginn 17. nóv. Ástríður
lést 16. des. 2010 og var jarð-
sungin 22. des. það sama ár.
Mig langar að minnast þeirra
hjóna í sömu greininni þar sem
þau voru sem eitt í mínum huga.
Adda og Gunni eins og þau voru
kölluð voru ólík hjón en sam-
stiga og metnaðarfull í því sem
þau tóku sér fyrir hendur. Adda
var móðursystir mín, frá sjö ára
aldri og til 14 ára fór ég til
hennar og Gunna í sveit á sumr-
in. Þau tóku mér sem einu
barna sinna, hélst það alla tíð og
fjölskyldu minni var alltaf tekið
opnum örmum. Adda stjórnaði
innan húss af miklum myndar-
skap en Gunni sá um útiverkin.
Hjá þeim lærði ég mörg verk,
einnig að bera virðingu fyrir
hlutum, dýrum og mönnum.
Adda kenndi mér t.d. að það að
þurrka af er ekki alltaf það
sama og þurrka af. Ekkert hálf-
kák þýddi að þú áttir að taka
hlutinn upp, þurrka undir hon-
um, kringum hann, vandlega af
honum öllum og leggja hann
snyrtilega frá þér aftur. Vinna
verkin vel. Adda átti í mörg ár
við heilsuleysi að stríða, hún lét
það þó aldrei aftra sér og
plampaði um á sínum sáru fót-
um við heimilisverkin og lét sig
ekki muna um að hafa fullt hús
af börnum á sumrin. Áður en
Adda fór að búa var hún ljós-
móðir og tók á móti fjölda
barna, ég man hversu glöð hún
varð í hvert skipti sem eitthvert
þessara barna kom í heimsókn,
hún ljómaði öll. Hún var mjög
gestrisin enda félagslynd að eðl-
isfari. Hún hafði gaman af póli-
tík og rökræðum. Hún gat verið
hvöss á manninn og látið hátt en
undir bjó hlý og góð manneskja
sem mátti ekkert aumt sjá. Hún
var oft fyrst manna að hringja í
mig þegar erfitt var og gefa
mér styrk þó að langt væri á
milli okkar. Ég verð henni æv-
inlega þakklát fyrir það.
Gunni gekk rólega en ákveðið
til starfa og hugsaði mjög vel
um bú sitt. Kindur voru hans
uppáhaldsdýr enda starfaði
hann við sauðfjárrækt allt sitt
líf. Sveitin var hans líf og Tjör-
nesið hans hjarta. Hann skipti
sjaldan skapi en hafði ákveðnar
skoðanir. Hann hafði gaman af
kveðskap og orti oft vísur sjálf-
ur. Hann var ágætis eftirherma
þegar hann viðhafði og kom þá
skemmtilega glettinn svipur á
hann. Gunni var góður, traustur
og hjálpsamur, eitt skipti þegar
ég var á leið til þeirra í heim-
sókn sprakk á bílnum í bratt-
anum, hann var kominn, ásamt
Nonna, til hjálpar strax. Þrátt
fyrir veikindi lét hann það aldr-
ei stöðva sig og fór í fjárhúsin í
lengstu lög. Ég mun ævinlega
þegar ég hugsa um sólsetrið
eins og það gerist fallegast á
Tjörnesinu hugsa til þessara
góðu hjóna sem tóku mig upp á
sína arma.
Ég trúi því að nú séu Gunni
og Adda sameinuð aftur á betri
stað. Takk kærlega fyrir mig.
Elsku Gurra, Bína, Nonni og
fjölskyldur, Guð blessi ykkur og
styrki í sorg ykkar.
Guðbjörg Guðmundsdóttir.
Gunnar Sigurður
Sigurðsson
MESSUR Á MORGUN