Morgunblaðið - 17.11.2012, Síða 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012
Á Kjarvalsstöðum í dag, laugardag
klukkan 14, verður opnuð fyrsta yf-
irlitssýningin á verkum Ragnheiðar
Jónsdóttur myndlistarkonu. Yfir-
skrift sýningarinnar er Hugleikir
og fingraflakk – Stiklur úr starfs-
ævi Ragnheiðar Jónsdóttur. Sýn-
ingarstjóri er Eiríkur Þorláksson.
Á rúmlega fjörutíu ára ferli hef-
ur Ragnheiður skilað drjúgu dags-
verki og er myndverk hennar að
finna í fjölda safna hér á landi, og
grafíkmyndir hennar eru á söfnum
víða um heim, allt frá Færeyjum til
Egyptalands.
Ragnheiður hóf myndlistarfer-
ilinn sem málari en síðan var hún í
fararbroddi þess hóps sem setti
grafíklistina í öndvegi í myndlistar-
heiminum hér á landi á áttunda og
níunda áratug liðinnar aldar.
Myndefni þess tíma sótti hún gjarn-
ar í hversdaglífið og urðu þær að
táknmyndum fyrir samtímann,
einkum í kvennabaráttunni og um-
ræðu um sjálfsvitund einstaklings-
ins. Á þessum tíma barst hróður
Ragnheiðar víða um lönd og tók
hún þátt í fjölda grafíksýninga
heima og erlendis.
Fyrir tveimur áratugum tók
Ragnheiður að vinna með teikn-
ingar, þar sem frjálslegt línuspil á
stórum myndflötum skapar fjöl-
breytilegt mynstur og flæði. Síðan
hafa teikningarnar myndað kjarn-
ann í sköpun hennar.
Í tengslum við sýninguna verður
á morgun, sunnudag klukkan 14,
boðið upp á grafíska listsmiðju á
Kjarvalsstöðum, í samvinnu við fé-
lagið Íslensk grafík.
Morgunblaðið/Einar Falur
Yfirlitssýning Ragnheiður Jónsdóttir við nýjustu teikningar sínar. Á Kjarvals-
stöðum gefst nú tækifæri til að kynnast verkum frá öllum ferli listakonunnar.
Stiklur úr starfsævi Ragnheiðar
Viðamikil og fjölbreytt bókmenntadagskrá verður í ráð-
húsi Reykjavíkur um helgina sem Félag íslenskra bóka-
útgefenda og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO
standa að. Boðið verður upp á bókmenntaumræður með
menntamálaráðherra í borgarstjórnarsalnum, pólitík í
matsalnum, upplestra, ljóð og söng í kaffihúsinu, fjöl-
breytta barnadagskrá, bolta, bíla, mat og nýjar bækur,
að því er fram kemur í tilkynningu.
Útgefendur munu sýna nýjar bækur og geta lesendur
rætt við rithöfunda sem sækja sýninguna og árita bækur
sínar. Í fyrsta sinn verður boðið upp á bókmennta-
dagskrá í borgarstjórnarsalnum, þar verða umræður um
bókmenntir kl. 14-15 í dag og á morgun. Í dag fær Eirík-
ur Guðmundsson, rithöfundur og útvarpsmaður, til sín
rithöfundana Auði Övu Ólafsdóttur, Kristínu Ómars-
dóttir, Sigurbjörgu Þrastardóttur og Steinunni Sigurð-
ardóttur og munu þær ræða um nýútkomnar skáldsögur
sínar. Sjónum verður beint að ástinni í bókum þeirra.
Borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, mun ávarpa gesti
áður í upphafi dagskrár.
Á morgun mun Katrín Jakobsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, stýra umræðum um nokkrar
skáldsögur sem tengjast sögu eða sagnaarfi okkar Ís-
lendinga, að því er fram kemur í tilkynningu og mun hún
fá til sín rithöfundana Einar Kárason, Eyrúnu Ingadótt-
ur, Kristínu Steinsdóttur, Pétur Gunnarsson og Vilborgu
Davíðsdóttur.
Stjórnmál koma einnig við sögu um helgina, Guðni Th.
Jóhannesson mun ræða við þá Styrmi Gunnarsson og
Svavar Gestsson um bækur þeirra sem báðar fjalla um
íslenska stjórnmálasögu og fleiri bækur af sagn-
fræðilegum toga verða teknar fyrir. Bandaríski fant-
asíuhöfundurinn Ransom Riggs mun svo ræða við rithöf-
undinn Sjón.
Vestfirskir höfundar og sagnamenn mæta einnig í ráð-
húsið og verður auk þess boðið upp á ljóðadagskrá, tón-
listaratriði, vítaspyrnukeppni og upplestur. Þá verða á
boðstólum réttir úr nýjum matreiðslubókum. Dagskrána
má finna á vef Bókmenntaborgarinnar: bokmenntaborg-
in.is.
Morgunblaðið/Golli
Bókaormar Ýmislegt verður í boði fyrir unga lesendur í ráðhúsi Reykjavíkur um helgina.
Bókmenntaveisla í ráð-
húsi bókmenntaborgar
Fjölbreytt bókmenntadagskrá í boði um helgina