Morgunblaðið - 17.11.2012, Síða 68

Morgunblaðið - 17.11.2012, Síða 68
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 322. DAGUR ÁRSINS 2012 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 699 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Stúlkurnar í áfalli 2. Fundu lík og 200 kg af kókaíni 3. Fá greidda desemberuppbót 4. Fékk hjartaáfall við Heklu  Tökur á næstu kvikmynd Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, gamanmynd- inni Kalt vor, munu hefjast í maí á næsta ári á Vestfjörðum. Handrit myndarinnar skrifaði Hafsteinn með rithöfundinum Huldari Breiðfjörð en verið er að fjármagna gerð myndar- innar, að sögn Hafsteins. Bandarísk endurgerð á kvikmynd hans, Á annan veg, Prince Avalanche, verður frum- sýnd í Bandaríkjunum á næsta ári. Tökur á Köldu vori hefjast í maí  Fimm spaug- arar eru komnir í úrslit keppninnar Fyndnasti maður Íslands, þau Sig- urður Anton Frið- þjófsson, Gunnar Hrafn Jónsson, Ævar Már Ágústs- son, Gunnjón Gestsson og Elva Dögg Gunnars- dóttir. Úrslitin fara fram á föstudag- inn á skemmtistaðnum Spot í Kópa- vogi. Meðal þeirra sem hampað hafa titlinum er Pétur Jóhann Sigfússon. Fimm í úrslit Fyndn- asta manns Íslands  Kvikmyndin Órói hlaut verðlaun fyrir besta handrit á kvikmynda- hátíðinni Les gai cinema í Madrid á Spáni í vikunni. Hand- ritið skrifuðu leik- stjóri myndar- innar, Baldvin Z, og Ingibjörg Reynisdóttir og var það byggt á tveimur unglinga- bókum Ingi- bjargar. Órói hreppti verðlaun á hátíð á Spáni FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan- og norðvestan 10-18 og snjókoma eða él N-til, en sums staðar hvassari á annesjum. Hægari og allvíða bjartviðri syðra. Dregur heldur úr vindi á Vestfjörðum seint í kvöld. Frost 0 til 6 stig, en frostlaust á Austfjörðum í fyrstu. Á sunnudag Norðan- og norðvestan 8-15 m/s og snjókoma á N- og A-landi, él NV-til, en annars hægari og bjartviðri. Heldur hægari og úrkomuminna um kvöldið. Kólnandi veður. Á mánudag Norðaustan 8-13 m/s og él NA-til, en annars bjartviðri. Frost 1 til 10 stig. Handboltinn virðist ætla að ná að festa rætur á Bretlandi eftir vel heppnaða Ólympíuleika þar sem leik- irnir í íþróttinni voru mjög vel sóttir. Mark Hawkins, fyrrverandi leikmaður Aftureldingar, fer í skólana og kennir bæði áhugasömum krökkum og íþróttakennurum því handbolti er kominn á stundaskrána í mörgum skólanna. »2 Bretar bjartsýnir í handboltanum Skagastúlkan Inga Elín Cryer bætti Íslandsmet sitt í 400 metra skriðsundi á fyrsta keppnisdeginum á Íslandsmeistaramótinu í sundi sem hófst í Ásvalla- laug í Hafnarfirði í gær. Flest af besta sundfólki landsins er á meðal kepp- enda og heldur mótið áfram í dag og vonandi verða fleiri Íslandsmet bætt á mótinu. »1 Inga Elín bætti Íslandsmet sitt Jón Þorbjörn Jóhannsson segir að ís- lenski handboltinn standi alveg undir væntingum sínum. Hann kom heim frá Danmörku í sumar eftir langa dvöl þar og hefur átt drjúgan þátt í vel- gengni Hauka í vetur. Jón var í gær valinn besti varnarmaðurinn í fyrstu sjö umferðum Íslands- mótsins. »4 Íslenski handboltinn stóð undir væntingum Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Það er gaman að geta hjálpað börn- um í neyð og hvatt aðra til góðra verka um leið,“ segir Andrea Bene- diktsdóttir, 22 ára háskólastúdent, sem ber út Morgunblaðið í Kópavogi og hefur ákveðið að gefa öll blaðbera- launin mánaðarlega til UNICEF, barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, en hún hefur lengi verið heims- foreldri hjá samtökunum. Andrea stundar nám í lyfjafræði við Háskóla Íslands, vaknar klukkan fimm á morgnana til þess að bera út Moggann og vinnur auk þess um helgar á Grillinu á Hótel Sögu og Lava í Bláa lóninu. Hún segist vera venjulegur fátækur háskólanemi en hún sé rík í samanburði við krakka í öðrum heimshlutum sem þurfa að búa við stríð, náttúruhamfarir og mikla fátækt. „Flestir Íslendingar hafa það svo gott í samanburði við margt annað fólk, sem við sjáum sjaldan en heyrum um í fréttum,“ segir hún. Gaman að bera út „Ég hef lengi fylgst með UNI- CEF, þetta eru flott samtök og því ákvað ég að gerast heimsforeldri á sínum tíma. Mig langaði til þess að gefa eitthvað af mér og fannst þetta góð leið til þess,“ segir Andrea um stuðninginn við hjálparsamtökin. Andrea byrjaði að bera út fyrir um ári og blaðberastarfið hefur fyrst og fremst veitt henni mikla ánægju og drifkraft, en þessi aukna orka varð henni hvatning til enn frekari góð- verka. „Mér finnst svo gaman að bera út og fólk trúir mér varla þegar ég segi að ég beri út ánægjunnar vegna en ekki vegna peninganna. Það er svo gott að vakna snemma á morgnana og fá sér göngutúr, það gerir daginn betri. Vegna þessarar umræðu um launin datt mér í hug að þar sem ég ber ekki út fyrir peningana get ég gefið þá til þeirra sem virkilega þurfa á þeim að halda.“ Eftir að Andrea fékk þessa hug- mynd sendi hún UNICEF póst og sagðist vilja gefa samtökunum blað- beralaunin til viðbótar við mánaðar- lega styrkinn sem heimsforeldri. Erindinu var vel tekið og í fyrradag gerði hún sér ferð á skrifstofu UNI- CEF og gekk frá málunum. Andrea hefur fylgst nokkuð vel með starfi UNICEF með því að fara reglulega yfir heimasíðu samtakanna og lesa fréttabréf þeirra. Eftir að hafa kynnt sér starfsemi UNICEF nánar er hún enn ákveðnari en fyrr í því að heimsækja svæði þar sem neyðin er mikil. „Mér líst mjög vel á starfsemi UNICEF og sérstaklega hvað samtökin eru öflug hvað varðar bólusetningar. Mig langar mjög mik- ið að fara á þessar slóðir og get vel hugsað mér að starfa sem sjálfboða- liði á neyðarsvæðum síðar meir,“ segir Andrea og heldur áfram að forgangsraða verkefnum dagsins. Góðgjarn göngugarpur  Blaðberalaun Andreu fara óskert til UNICEF Morgunblaðið/RAX Færandi hönd Andrea Benediktsdóttir, blaðberi og heimsforeldri, til hægri, gengur ánægð frá styrktarmálum sín- um við Sólveigu Jónsdóttur, starfsmann UNICEF. Á milli þeirra er Lovísa Arnardóttir. UNICEF, barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur sinnt hjálparstarfi fyrir börn víðs vegar í heiminum í tæpa sjö áratugi. Samtökin sinna bæði langtímaþróunarsamvinnu og neyðaraðstoð. Lögð er áhersla á að ná til allra barna með það að leiðarljósi að öll börn eigi rétt á heilsugæslu, menntun, jafnrétti og vernd. UNICEF treystir eingöngu á frjáls framlög og heimsforeldrar (www.unicef.is/heimsforeldrar) gegna mikilvægu hlutverki. Þeir styðja hjálparstarfið með fram- lögum að eigin vali mánaðarlega. Á Íslandi eru mörg þúsund heims- foreldrar. Þeir styðja ekki við eitt ákveðið barn heldur renna fram- lögin til verkefna sem gagnast börnum um allan heim og er ráð- stafað eftir því hvar þörfin er mest hverju sinni. UNICEF lætur nú til sín taka í yfir 190 löndum. Heimsforeldrar mikilvægir UNICEF Í YFIR 190 LÖNDUM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.