Morgunblaðið - 24.11.2012, Page 26
26 Jólablað Morgunblaðsins
S N Y R T I S T O F A N
HAMRABORG 10
SÍMI 554 4414
TRYGGVAGÖTU 28
SÍMI 552 5005
Gjafakort
Alhliða snyrting fyrir
konur og karla
www.snyrtistofa.is
M
agneu Sverr-
isdóttur, kennara
og djákna, finnst
að fólk eigi að gera
það sem veitir því
mesta ánægju á aðventunni. „Fólk á
að baka fyrir jólin ef því finnst það
gaman en ekki af kvöð. Mér finnst að
fólk eigi að gera það sem því finnst
gaman á aðventunni, eitthvað
ánægulegt og uppbyggilegt. Eitt-
hvað sem byggir þig upp og fólkið í
þínu nærumhverfi og undirbýr þig
um leið fyrir fæðingarhátíð frels-
arans. Ég hef til dæmis gaman af
helgihaldi í kirkjum og rannsóknum
á glútenfríum smákökum og á að-
ventunni stunda ég hvort tveggja.“
Greindist með glútenofnæmi
fyrir átta árum
Magnea greindist fyrir átta árum
með sjálfsofnæmissjúkdóminn celi-
ak, sem er glútenofnæmi. Engin
lækning er til við sjúkdómnum en
Magnea segir að þó að sjúkdómurinn
hljómi hádramatískur sé alls ekki
svo. Af öllu sem maður getur fengið
sé lítið mál að vera með sjúkdóm sem
ekki þarf að taka lyf við og hægt er
að halda í skefjum með mataræði.
„Fyrir svona kerlingar eins og mig er
þetta bara skemmtileg áskorun, ekki
vandamál heldur verkefni,“ segir
Magnea
sem brá svolítið þegar hún fékk
fréttirnar en var fljót að sjá jákvæðu
fletina á málinu, enda er henni það
tamt. Heilsan snarbatnaði eftir að
hún byrjaði á glútenfríu fæði og það
kemur sér vel að matreiðsla er sér-
stakt áhugamál þar sem glúten
leynist víða í tilbúnum mat. Venjuleg
sojasósa getur til dæmis innihaldið
mikið glúten. Glúten er prótein sem
er í hveiti, spelti, rúgi, byggi og höfr-
um. Fólk með glútenofnæmi getur
því lítið sem ekkert borðað af til-
búnum mat heldur þarf það að útbúa
sinn mat sjálft. Fyrsta árið eftir að
fólk greinist með glútenóþol er al-
gengt að það sjáist í búðum með stækkunargler að lesa innihaldslýs-
ingar.
Erfitt fyrir börn
Magnea telur að glútenofnæmi sé
sérstaklega erfitt fyrir börn. Í
barnaafmælum er yfirleitt ekkert í
boði sem börn með glútenofnæmi
geta borðað. Unnar matvörur eru yf-
irleitt með einhverju glúteni og
Magnea segir það erfitt fyrir börn
að þurfa alltaf að taka með sér nesti í
afmæli og geta ekkert fengið sér af
því sem er í boði.
Jólamánuðurinn er sérlega erf-
iður fyrir fólk með glútenofnæmi en
þá er svo mikið af kökum og góðgæti
í boði sem það getur ekki borðað.
Magnea hefur notað tvö ráð sem
nýst hafa vel þegar hún fer í boð.
Annaðhvort borðar hún vel heima
áður en hún fer af stað eða tekur
með sér nesti.
Skyr til útlanda
Magnea ferðast mjög mikið en
það getur verið svolítill höfuðverkur
fyrir fólk með glútenofnæmi. Ástæð-
an er sú að á flugstöðvum er sjaldn-
ast að finna neitt sem fólk með
glútenofnæmi getur borðað. Það
hefur reynst Magneu vel að taka
skyr með sér í ferðalög.
„Ég fann heimasíðu þar sem ég
get prentað út setningu á öllum
heimsins tungumálum til að nota á
veitingastöðum: „Ég er með glúten-
ofnæmi, gætir þú eldað fyrir mig
mat sem ekki er með, hveiti, byggi
og svo framvegis.“ Þá get ég verið í
sveitaþorpi í Póllandi, rétt þennan
miða og allir eru með á nótunum.
Áður en þessir miðar komu til sög-
unnar fékk ég mér bara steikur,
mozarella og tómatsalat í útlönd-
um.“
Aðdáandi danskra jólablaða
Magnea er sérlegur aðdáandi
danskra jólablaða en uppskriftir í
þeim hefur hún notað sem grunn
fyrir sínar hávísindalegu, glútenfríu
smákökurannsóknir. Þaðan kemur
til dæmis uppskrift að möndluhjört-
um sem henni finnst sérlega góð.
„Svo er ég líka svo heppin að kók-
oskökur, uppáhaldssmákökurnar
mínar úr barnæsku, eru glútenfrí-
ar,“ segir Magnea.
Þessar uppskriftir og uppskrift að
glútenlausum ís fara hér á eftir en
það er von Magneu að þetta gleðji
fólk og sérstaklega þá sem eru með
glútenofnæmi.
Möndluhjörtu – glútenfrí
Þessi uppskrift var í dönsku jóla-
blaði.
250 g möndlur
3 eggjarauður
140 g flórsykur
Hýðislausar möndlur eru malaðar
í fínt duft.
Eggjarauður og flórsykur þeytt í
hrærivél í létt krem.
Möndludufti hellt rólega út í og
hrært rólega.
Flórsykur settur undir deigið á
borði og rúllað út ca 0,5 cm þykkt.
Deigið stungið út og það má alveg
vera smáflórsykur á kökunum þegar
þær eru settar í ofninn.
Bakað við 175 C í 8-10 mín.
Möggukökur
Gömlu góðu kókoskökurnar
3 eggjahvítur
150 g sykur
100 g kókosmjöl – gróft eða fínt
eftir smekk.
100 g suðusúkkulaði
1 tsk. edik
Stífþeytið eggjahvíturnar. Hrærið
helming af sykri við þar til blandan
verður seig, bætið þá ediki út í og
hrærið aftur vel. Afganginum af
sykrinum bætt við og hrært vel.
Súkkulaðið skorið smátt og blandað
varlega við með sleif ásamt kókos-
mjölinu. Búnar til litlar kökur með te-
skeiðum eða sprautupoka á bökunar-
pappír. Ofninn stilltur á 200 gráður,
kökurnar settar inn og fylgst vel með
þeim því þær brenna auðveldlega.
Teknar út þegar þær byrja aðeins að
dökkna.
Ísuppskrift frá Hótel Glym
Þó að á fæstir veitingastaðir taki
mið af fólki með glútenofnæmi er því
ekki þannig varið alls staðar. Eitt
sinn var Magnea á ferð á Hótel Glym
í Hvalfirði og var mjög fegin þegar
hún fékk þær upplýsingar að eft-
irrétturinn væri glútenfrír ís. Ísinn
þótti Magneu svo góður að hún hætti
ekki fyrr en hún fékk að hitta kokk-
inn til að þakka honum kærlega fyrir.
Þótt það sé alls ekki venjan fékk hún
meira að segja uppskriftina að ísnum
en hún birtist hér með í greininni
með góðfúslegu leyfi frá Hótel Glym.
Limeís
½ l rjómi
250 g sykur
5 egg
eitt og hálft lime
Raspið börkinn af limeinu og hafið
tilbúinn. Rjóminn er þeyttur og sett-
ur til hliðar, egg og sykur þeytt sam-
an í létta froðu. Setjið rjómann var-
lega út í eggjablönduna með sleif.
Blandið raspaða limeberkinum var-
lega út í. Bragðbætið með limesafa
eftir smekk. Uppskriftin er sér-
staklega góð á eftir þungum kjöt-
réttum. Sniðugt að frysta ísinn í
smærri form, t.d. sílikonmúffuform,
sem er hæfilegur skammtur.
halldorbachmann@gmail.com
Mótun Formin eru lögð á flatt degið svo úr má móta allskonar listaverk. Bakstur Hjörtun eru alltaf heit, einkum og helst nýkomin úr ofninum. Hrært Efniviður í góðar smákökur.
Rannsóknir á
glútenfríum
smákökum
Magnea Sverrisdóttir stundar helgihald í kirkjum
og rannsóknir á glútenfríum smákökum á meðan
hún undirbýr fæðingarhátíð frelsarans.
Ljósmynd/Halldór Bachmann
Girnilegt Afrakstur rannsókna á glútenfríum smákökum. Magnea Sverr-
isdóttir hefur lagt sig sérstaklega eftir að kanna þetta efni.
’Glúten er prótein sem er í
hveiti, spelti, rúgi, byggi
og höfrum. Fólk með
glútenofnæmi getur því
lítið sem ekkert borðað af
tilbúnum mat.