Morgunblaðið - 24.11.2012, Side 32

Morgunblaðið - 24.11.2012, Side 32
32 Jólablað Morgunblaðsins B est er að klára jólavín- kaupin sem fyrst því mín reynsla er sú að mörg af bestu vínunum koma í takmörkuðu upplagi og því eiga þau það til að klárast þegar líða fer á desember,“ segir Þorri. „Ekki bíða með að fara í vínbúðina á Þorláksmessukvöld, þá er eins víst að ekkert sé til sem fólk hafði hugsað sér að kaupa. Fordrykkur til alls fyrstur Ef það er ekki við hæfi að fá sér fordrykk á jólunum þá er það senni- lega aldrei við hæfi,“ segir Þorri og kímir. „Kampavín er auðvitað hinn fullkomni fordrykkur sem kitlar tunguna og æsir upp í manni hungr- ið, fyrir utan að vera alveg fram- úrskarandi gott. Það eru mörg kampavín til í vínbúðunum og flest þeirra mjög góð. Bleik kampavín eru sérlega hátíðleg að sjá en þessi venjulegu hvítu eru líka alveg eins góð. Verst hvað þau eru orðin dýr núna á seinni árum en ekki er verra að það fást nokkur framúrskarandi freyðivín sem geta alveg komið í staðinn fyrir kampavín.“ Aðspurður um tegundir í þessum efnum nefnir Þorri freyðivínið Ferrari Brut frá Ítalíu sem hann segir vel vera hægt að rugla saman við kampavín. „Eins eru til freyðivín frá Búrgúndarhér- aðinu í Frakklandi sem eru afar góð kaup. Prosecco frá Ítalíu er svo aftur á móti kannski ekki alveg í sama þungavigtarflokki og kampavín en þessi vín eru afar þokkafull og ljúf. Ég hvet lesendur til að prófa þetta nýja frá Pasqua, það er bæði mjög ódýrt og framúrskarandi gott! Berið kampa- eða freyðivínin fram í háum og uppmjóum kristalsglösum til að stemningin sé fullkomnuð!“ Þorri minnir á að kampavín og þyngri freyðivínin eru einnig mjög góð með matnum, þvert ofan í það sem margir telja. Forréttir og vín í stíl Forréttir á jólunum eru auðvitað margskonar og ólíkir frá einni fjöl- skyldu til annarrar. Þótt fiskneysla sé alla jafna ekki mikil á jólunum eru margir sem hafa humar og hörpuskel í forrétt enda er það úrvalshráefni sem hæfir árstíðinni. „Saltfiskur er borðaður á Spáni og í Portúgal á jól- unum en ég held að það séu fáir Ís- lendingar sem hafa tekið upp þann sið. Það er þó aldrei að vita,“ bætir Þorri við. Sumir hafa fiskisúpur og aðrir grilla eða baka humar og steikja hörpuskel en það breytir ekki öllu. Hægt er að finna framúrskar- andi vín sem hæfa þessu öllu, að sögn Þorra. „Hvítvín úr þrúgunni Char- donnay eru eins og sköpuð fyrir bragðmikla fiskrétti og feita fiska eins og humar og hörpuskel. Og nóg er úrvalið af þeim. Sjálfur myndi ég frekar halda mig við hvítvín frá Evr- ópu frekar en annars staðar úr heim- inum en þetta er auðvitað smekks- atriði,“ bætir hann við. „Vín frá Evrópu eru fínlegri, sýruríkari og alla jafna persónulegri. Þau eru líka oftar betri með matnum en þessi sem koma frá heitari svæðum. Frakkland er heimavöllur Chardonnay- þrúgunnar og vín frá Búrgúnd eða Chablis eru framúrskarandi með flestum uppáhaldsfiskréttunum sem menn galdra fram á jólunum. Eitt af mínum uppáhaldshvítvínum þessa dagana er reyndar Chardonnay frá Ítalíu, Isole e Olena sem getur skák- að mörgum búrgúndarhvítvínum.“ Þorri minnir ennfremur á að hvítvín- in frá Soave séu líka framúrskarandi, sérstaklega með hörpuskelinni. Vilji menn frekar ávaxtaríkari Char- donnay-vín bendir hann á vín frá Nýja-Sjálandi. „Ég sjálfur er afar hrifinn af franskri anda- eða gæsalifur, foie gras, og finnst varla komin jól ef ég fæ hana ekki í forrétt. Með henni verður auðvitað að vera sætt hvítvín og þau bestu koma frá Sauternes í Frakklandi. Einnig eru til nokkur sætvín frá öðrum heimshlutum og sum þeirra geta vissulega verið frá- bær fylginautur þessa réttar sem hægt og rólega er að smeygja sér á íslenska jólaborðið. Þeir sem hafa einu sinni smakkað fyrsta flokks gæsalifur og sætvín eru ekki samir eftir á.“ Í framhaldinu segir Þorri að pâté eða kæfur ýmiskonar sjáist líka á jólaborðinu sem forréttir og með þeim sé fínt að hafa hvítvín úr þrúg- unni pinot gris. „Þau bestu koma frá Alsace í Frakklandi en einnig er gott að hafa frekar einföld og ávaxtarík rauðvín með heimatilbúnum kæfum. Mér dettur í hug Crianza frá Rioja á Spáni, Valpolicella frá Ítalíu eða Beaujolais frá Frakklandi. Þurrt sérrí er líka frábært með kæfum, alls konar hráskinkum og sérlöguðum þurrkuðum pylsum.“ Hvað passar með aðalréttinum? Eins og margoft hefur borið á góma er vinsælasti jólamatur Íslend- inga, hamborgarhryggurinn, alveg hreint sérlega ó-vínvænn, eins og Þorri nefnir. „Það er ekki bara að sjálfur hryggurinn sé saltur og reyktur heldur er hann einnig gljáð- ur með sykri og meðlætið með hon- um gerir út af við flest vín. Rauðkál með ediki og brúnaðar kartöflur geta seint talist heppilegir fylginautar léttvína. Þess vegna þreytist ég seint á því að segja að malt og appelsín er sennilega það eina sem gengur með honum, hvað svo sem aðrir vínsnobb- arar segja.“ Vilji menn hins vegar fá eitthvað áfengt með hamborgar- hryggnum bendir Þorri á öl sem góð- an kost. „Fyrir þessi jól er til dæmis Giljagaur frá brugghúsinu Borg flottur með hamborgarhryggnum, nú eða að prófa að blanda smá appelsíni út í jóla-maltbjórinn. Aðrar bragð- miklar bjórtegundir, til dæmis frá Mikkel, eru mun heppilegri en vín með þessum erfiða mat. Sé hins veg- ar á mig gengið vil ég meina að hvít- vínið Pinot Gris frá Alsace sé einna best með hamborgarhryggnum, miklu heldur en rauðvín.“ Að sögn Þorra má segja það sama um hangikjötið – sjálfum dettur hon- um ekki í hug að drekka vín með því! „Malt og appelsín eða jólaöl og app- elsín er það eina sem ég hef verið reglulega ánægður með í gegnum tíð- ina.“ Kalkúnn sést nú oftar á íslenskum jólaborðum enda er fuglinn stór og því sjaldan að fjölskyldur leggi í að elda hann í heilu lagi nema mikið standi til. „Kosturinn við kalkún er ekki bara að hann er mun léttari í maga en hamborgarhryggurinn held- ur er hann líka alveg sérlega vín- vænn og í raun erfitt að finna vín sem ekki passar með honum,“ segir Þorri. „Það er því fínasta afsökun fyrir því að prófa einhver ný og spennandi vín hafi maður á annað borð ákveðið að hafa kalkún á jólaborðinu í ár. Sjálf- um finnst mér að bestu vínin með honum séu ekkert endilega þessi stóru og þungu heldur er um að gera að prófa þessi ávaxtaríku og léttu með svona ljósu kjöti, þótt meðlætið geti verið allavega. Hvítvín er fullt eins gott með kalkúninum og rauð- vín. Eikuð og bragðmikil Char- donnay-vín frá heitari löndum eins og Síle og Suður-Afríku smellpassa oft- ast nær með honum og þá ekki síður önnur eikarþroskuð hvítvín frá öðr- um löndum. Enn vil ég benda á hvít- vínin frá Alsace úr þrúgunum Pinot Gris, Riesling eða Gewurztraminer sem öll eru frábær með ljósu kjöti og það fer helst eftir meðlætinu hvað af þeim ég tæki framyfir annað.“ Einn er svo líka gullmolinn í hvítvínsflór- unni sem alltof fáir hafa reynt að því er Þorri segir, en það er Grüner Veltliner frá Austurríki. „Frábært vín með matnum, og líka fiskinum. Rauðvín í léttari kantinum finnst mér betri með kalkún, á borð við Chi- anti Classico frá Toskana eða þá Cri- anza-rauðvín frá Spáni, til dæmis úr héruðunum Rioja og Ribera del Duero. Pinot Noir frá nýja Síle er af- ar ávaxtaríkur og oftast frábær með öllu ljósu kjöti og ef menn eru í stuði fyrir rauð Búrgúndarvín þá eru þau líka framúrskarandi þótt þau séu oft- ast ekki eins áberandi ávaxtarík og þessi frá Nýja heiminum.“ Þótt rjúpum fari fækkandi hér á landi eru samt einhverjar þúsundir fjölskyldna á hverjum jólum sem snæða rjúpur eða aðra villbráð á að- fangadagskvöld. „Á mínu heimili var og er venja að hafa villigæs og svo er innflutta villibráðin, eins og krón- hjörtur og dúfur, farin að sjást á borðum þeirra sem tilbúnir eru til að víkja frá aldagömlum fjölskyldu- hefðum. Með villibráð og dökku kjöti er auðvitað ekki annað hægt en að hafa bragðmikil og glæsileg rauðvín. Þarna á ég auðvitað við kanónur á borð við Bordeaux, Rhône, Brunello di Montalcino, Ribera del Duero eða Piemont. Stóru, eikarþroskuðu rauð- vínin frá Argentínu, Suður-Afríku og Ástralíu úr þrúgum eins og Cabernet Sauvignon og Syrah (eða Shiraz) eru vissulega vel þess virði að hafa á há- tíðarborðinu þótt mér sjálfum finnist að þessi evrópsku séu glæsilegri og matarvænni. Enn og aftur vil ég benda fólki á að prófa ný vín á jól- unum sem það hefur ekki reynt áður og um leið og menn eru tilbúnir að borga 3.000 krónur eða meira fyrir vínflösku er næsta öruggt að vínið er hæft á jólaborðið.“ Að endingu minnir Þorri á mikil- vægt atriði sem alltaf ber að hafa í huga, hvert sem vínið er. „Góð vín- glös eru einn helsti þáttur í því að njóta góðra vína og í góðu vínglasi getur meðalgott vín orðið enn betra. Að sama skapi verður framúrskar- andi vín í slæmu vínglasi oftast nær heldur rislágur drykkur. Ef menn eiga ekki góð vínglös, eins og t.d. frá Riedel, þá er hér komin uppástunga að frábærri jólagjöf.“ jonagnar@mbl.is Jólavín með jólamat Jólin nálgast eins og óð fluga og þeim sem kjósa að bragða á góðu víni með jólamatnum er vandi á höndum, því úrvalið er gott og úr vöndu að ráða. Þorri Hringsson, listmálari og vínþekkjari með meiru, tók snúning á því sem hafa ber í huga við valið. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hátíðarmaturinn Kræsingarnar sem tilheyra jólahátíðinni eru alla vega, og eftir því misjafnt hvort kampavín, hvítvín, rauðvín eða bragðmikill bjór fer best með því sem á borðum er. Það eru vísindi kringum veigarnar. Kúnst Það er að mörgu að huga þegar vín eru valin með jólamatnum, eins og Þorri Hringsson útskýrir, og stundum er jólablandið best. ’Um leið og menn eru tilbúnir að borga 3.000 krónur eða meira fyrir vínflösku er næsta öruggt að vínið er hæft á jólaborðið. Osta- og ljúfmetisverslun Nóatúni 1 7 • Sími 551 8400 www.burid.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.