Morgunblaðið - 24.11.2012, Síða 116
Bragðgott Neytendur eru óðum að komast á bragðið hvað varðar bragð-
meiri osta,“ segir Erna Erlendsdóttir hjá Mjólkursamsölunni
M
ikil hefð er fyrir
ostaneyslu á Ís-
landi. Þótt við Ís-
lendingar kjósum
almennt frekar
bragðminni osta dags daglega er það
svo að jólahátíðin virðist vera undan-
tekningin frá reglunni og neytendur
eru óðum að komast á bragðið hvað
varðar bragðmeiri osta,“ segir Erna
Erlendsdóttir, verkefnastjóri hjá
Mjólkursamsölunni. „Jólaostarnir
ættu því að hitta í mark en þeir eru
sumir hverjir bragðmiklir og kalla á
að fólk sé nógu þroskað fyrir bragðið
eins og eitt af slagorðum okkar fyrir
bragðmikla osta hljómar.“
Jólaostur og Hátíðarostur
Ákveðið var að skyggnast bak við
tjöldin og kynnast nánar tveimur af
þessum ostum sem í boði eru; Jóla-
ostinum og Hátíðarostinum sem báð-
ir eru framleiddir norðan heiða.
Friðjón Jónsson, ostameistari hjá
MS á Akureyri, þar sem umræddir
ostar eru framleiddir, tekur undir þá
staðreynd að Íslendingar virðast
vera til í tilbreytingu frá bragðmild-
ari ostum yfir í nýja bragðmeiri osta
yfir jólahátíðina.
„Hátíðarosturinn er Gouda-
tegund sem við gerjum í dálítið lang-
an tíma,“ útskýrir Friðjón. „Það þýð-
ir að hann er um níu mánaða gamall
þegar hann fer í sölu, samanber um
þriggja mánaða gerjun á hefð-
bundnum Gouda. Þá er hann orðinn
töluvert bragðmeiri en venjulegur
brauðostur. Þá er hann meðhöndl-
aður á annan hátt með tilliti til hita-
stigs og annars. Þetta er stöðug
umönnun,“ segir Friðjón og kímir.
Hann segir áferðina annars áþekka
og á venjulegum Gouda-osti og því
henti hann ljómandi vel á brauð.
„En ég er nú sjálfur svo skrýtinn
að mér finnst svona bragðmiklir ost-
ar góðir með öllu! En af því þessi er
sérstaklega bragðmikill hentar hann
prýðilega með ávöxtum, rétt eins og
maður er vanur að njóta hefðbund-
inna desert-osta.“
Ostarnir fái að volgna upp
Friðjón minnir á að það skiptir
öllu máli, þegar desert-ostar eru
annars vegar, að leyfa þeim að jafna
sig þegar þeir koma út úr ísskápnum
Nauðsynlegt sé að þeir volgni aðeins
áður en þeirra er neytt.
„Það er til dæmis tvennt gerólíkt
að borða gráðost þegar hann hefur
fengið að volgna eða borða hann
harðan beint úr ísskápnum. Það er
stór munur þar á, bæði hvað bragð
og áferð varðar. Sérstaklega á þetta
við um osta á borð við gull-
gráðostinn, sem er feitari. Hann
verður nánast smyrjanlegur þegar
hann hefur fengið að volgna aðeins
upp.“
Hinn osturinn sem kominn er á
markað fyrir hátíðirnar er Jólaostur,
en þar er á ferðinni afbrigði af
Havarti-osti. „Hann er með papriku-
og laukkryddi sem ekki er notað í
neina aðra blöndun fyrir þessi jól,“
útskýrir Friðjón.
„Rétt eins og er með hefðbundna
danska Havartí-osta er hann með
mjúkri áferð og talsvert hár í fitu-
innihaldi. Og það er mikil handa-
vinna á bak við þennan ost hjá okkur
– það þarf að nostra talsvert við hann
enda gerum við hann ekki nema einu
sinni á ári,“ segir Friðjón Jónsson,
ostameistari MS á Akureyri.
jonagnar@mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Ostar Mjólkin er hráefni ótæmandi möguleika og er framleiðsla hverskonar mygluosta skýrt dæmi um það.
Fjölbreytt MS býður neytendum úrval osta og margt er raunar sérunnið
fyrir jólahátíðina, þegar þorri fólks leyfir sér munað í mat og drykk.
Ostameistari Mér finnst svona bragðmiklir ostar góðir með öllu,“ segir
Friðjón Jónsson sem er lykilmaðurinn í allri ostaframleiðslu MS.
Ostaveisla um jólin
Jólavörurnar frá MS hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár og nú
sem endranær framleiðir MS sérstaka osta fyrir hátíðirnar.
’Og það er mikil handa-
vinna á bak við þennan
ost hjá okkur – það þarf
að nostra talsvert við
hann enda gerum við
hann ekki nema einu
sinni á ári
116 Jólablað Morgunblaðsins
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/N
AT
61
88
5
11
/1
2 ...kemur með góða bragðið!
Settu hátíðarkraft í
sósuna með Knorr
– kraftinum sem þú
þekkir og treystir!
Hátíðarkrafturinn
kemur úr Knorr