Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2012, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.11. 2012
Föt og fylgihlutir
Í
ris Sveinsdóttir hefur kennt hár-
greiðslu í mörg ár bæði heima
og erlendis. Hún vann meðal
annars hjá Paul Mitchell í
Þýskalandi en þar bjó hún um ára-
bil.
„Ég er rakari, herraklippari,
upphaflega eins og pabbi og afi,“
segir hún en hárgreiðslurnar urðu
engu að síður hennar aðalsmerki
og í Þýskalandi gekk hún meira að
segja undir viðurnefninu upp-
greiðsludrottningin.
„Þetta er auðvelt“
„Mér finnst rosalega gaman að
kenna og það er aðalkveikjan að
því að vilja gefa öðrum af því sem
maður kann sjálfur. Það eru fimm
ár síðan ég fór að hugsa um að
gefa út bók en upphaflega hug-
myndin var að gefa út bók fyrir
fagfólk. En tískan er þannig í dag
að konur leyfa sér að hafa hárið
meira uppsett en áður,“ segir hún
og útskýrir að fyrir nokkrum árum
hafi tíðkast að konur væru helst
bara með uppgreitt hár við hátíðleg
tækifæri. „Mér fannst upplagt að
leyfa fólki að njóta þessa með mér.
Það eru svo margir sem halda að
þetta sé svo erfitt en þetta er auð-
velt ef maður kann vissa tækni.“
Í bókinni er líka að finna upp-
skriftir að hárnæringu, skoli og
fleiru. „Mér fannst mjög gaman
sem lítilli stelpu að drullumalla og
hef alltaf verið að drullumalla með
hárnæringu,“ segir Íris sem deilir
hér til hliðar þremur uppskriftum.
NÝ BÓK UM GREIÐSLUR OG GÓÐ RÁÐ
Gaman að
kenna
UPPGREIÐSLUDROTTNINGIN ÍRIS SVEINSDÓTTIR VAR AÐ
SENDA FRÁ SÉR BÓKINA FRÁBÆRT HÁR, SEM INNIHELDUR
FALLEGAR GREIÐSLUR OG GÓÐ RÁÐ FYRIR HÁRIÐ.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
1. Byrjið á að setja
hátt tagl í hárið.
2. Teygjan er falin með hárlokki. 3. Skiptið taglinu í tvo hluta. Byrjið að
flétta hægri hlutann efst og fléttið
fyrst nokkrum sinnum.
4. Dragið síðan hárlokka vinstra
megin úr taglinu inn í fléttuna og
reynið að hafa þá alla jafnþykka.
6. Nú er vinstra taglið fléttað alveg
eins og hið hægra, þó þannig að lokk-
arnir eru dregnir inn í fléttuna hægra
megin.
7. Þegar báðar flétturnar eru tilbúnar
eru þær lagðar jafnt báðum megin
svo að formið verði fallegt og þær
svo festar niður með spennum.
Þessi næring gefur fínu og þunnu
hári meiri fyllingu. Setjið hálfan
lítra af mjólk, tvær matskeiðar af
sykri og hundrað grömm af hesli-
hnetum í blandara og hrærið vel
saman. Blandan er borin í hárið
eftir þvott og látin standa í því í
u.þ.b. tvær mínútur áður en hún
er skoluð vandlega úr.
Heslihnetu-
næring
Fyrir dökkhærða er upplagt að
nota kalt kaffi til að skola hárið
eftir þvott. Hægt er að blanda
dálitlu af volgu vatni út í kaffið og
hella yfir hreint hárið. Það má
jafnvel láta vera að skola það úr
hárinu. Ef þetta er gert oft fær
hárið fallegan dökkan gljáa og
ekki spillir blessaður kaffiilmur-
inn.
Kaffiskol
Sjávarsaltsskol er gott fyrir feitan
hársvörð en gefur hárinu einnig
gljáa. Kúfuð matskeið af sjávar-
salti er hrærð út í tvo bolla af
vatni og vökvanum síðan hellt í
hárið.
Gott er að setja vökvann í
tóma plastflösku, þá er auðveld-
ara að hella honum yfir hárið.
Látið saltvatnið standa í hárinu í
15 mínútur og skolið síðan ræki-
lega. Til að byrja með er ágætt
að gera þetta einu sinni í viku og
síðan eftir þörfum.
Sjávarsaltskúr
Ein greiðsla Írisar úr bókinni: „Fiðrildið er greiðsla sem vekur alltaf athygli og lítur út fyrir að
vera flókin en er í sjálfu sér ósköp einföld. Ég byrja á að greiða allt hárið í frekar hátt tagl. Tek
síðan einn lokk, vef honum um teygjuna og festi með einni spennu og hárlakki. Til þess að
áferðin verði sem fallegust er gott að nota gelkrem í hárið. Það er gel sem harðnar ekki, gefur
festu en helst mjúkt þótt það þorni. Ég skipti taglinu svo í tvo jafna hluta. Ég byrja að
flétta hægri hlutann, tek lítinn lokk efst við taglið og skipti honum í þrjá jafna hluta og
flétta fjórum sinnum. Þá byrja ég að taka jafnþykka lokka úr taglinu og setja þá inn í
fléttuna vinstra megin. Mikilvægt er að halda fléttunni alltaf á sama stað, sem sagt
að flétta hana alltaf í beinni línu. Þegar engin hár eru eftir í hægri taglhelmingnum
flétta ég allt hárið niður í enda og festi svo með lítilli teygju.
Vinstra megin geri ég nákvæmlega það sama, en tek lokka úr taglinu hægra
megin inn í fléttuna. Nú er hægt að leggja flétturnar á marga vegu og festa með
spennum.
Það er mikilvægt að setja mjúkt gel í hárið ef þið viljið að áferðin verði hrein
og regluleg.“
5. Fléttan er fléttuð alveg niður og
haldið beinni allan tímann þannig að
draga þarf síðustu lokkana langt inn í
fléttuna. Setjið glæra teygju í endann.
Ljósmyndir/Bernd Siegel
Fiðrildið