Morgunblaðið - 08.12.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2012
Fríkirkjan í Reykjavík
AÐVENTUKVÖLD sunnud. 9. desember kl. 20.00
Hugljúf jólastemmning. Ræðumaður er Jakob Frímann Magnússon,
tónlistarmaður og framkvæmdastjóri miðborgar.
Sigurður Guðmundsson úr hljómsveitinni Hjálmum flytur ljúf lög.
Jazzhljómsveit Gunnars Gunnarssonar ásamt sönghópi Fríkirkjunnar
auk blásarakvartetts.
Sunnud. 16. Des. kl. 14.00. Jólatrésskemmtun.
Aðfangadagskv. kl. 18.00. Aftansöngur fyrir alla fjölskylduna.
Miðnætursamvera á jólanótt, kl. 23:30.
Páll Óskar og Monika Abendroth ásamt
strengjasveit með tónlistarfólki Fríkirkjunnar.
Mætið tímanlega til að fá góð sæti!
Hátíðarguðsþjónusta á jóladag kl. 14.00
Ljósanna hátíð fagnað með rísandi sól.
Egill Ólafsson söngvari syngur og spjallar
um tónlistarval sitt. Gunnar Gunnarsson organist
ásamt sönghópi Fríkirkjunnar.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Slökkviliðið í Reykjavík bjargaði
manni af þriðju hæð fjölbýlishúss
við Laugaveg 51 þegar eldur kom
upp á annarri hæð hússins um há-
degi í gær. Slökkviliðið þurfti að
leggja stiga við húsvegg svo íbúinn
kæmist út. Hann var fluttur á brott
með sjúkrabíl og er talinn hafa
fengið vott af reykeitrun.
Jafnframt var konu fylgt af
fjórðu hæð hússins en hún gat not-
að stigaganginn eftir að hafa fengið
sérstakan björgunarmaska.
Íbúðirnar brunagildra
Í húsinu eru fjölmörg rými sem
nýtt hafa verið til útleigu, en þau
standast ekki byggingarreglugerð
að mati íbúa. Þeir hafa ítrekað
kvartað undan þessu og bent á að
brunavörnum sé ábótavant í húsinu.
Þeir hafa margsinnis beðið borg-
aryfirvöld að taka í taumana en
upphaflega var þarna skrifstofuhús-
næði, sem breytt var í leigu-
herbergi.
„Ég hef staðið í bréfaskriftum við
byggingarfulltrúa og setið fjölda
funda frá árinu 2005. Ég hef marg-
sinnis bent á að þessar íbúðir eru
brunagildra og í þeim eru engir
neyðarútgangar. Þessi drengur
komst naumlega lífs af og ég spyr
hver hefði borið ábyrgð ef verr
hefði farið. Er það ég sem eigandi í
húsinu, er það Seðlabanki Íslands
sem á þetta rými sem hann leigir
eða eru það borgaryfirvöld,“ segir
Friðrik Guðmundsson, formaður
húsfélagsins á Laugavegi 51.
Ekkert gert
„Við höfum talað við borgarfull-
trúa fyrir daufum eyrum og ekkert
hefur verið gert í öll þessi ár. Við
höfum bent þeim á að þau hafi
heimild til að rýma húsnæðið en
það hafa þau ekki gert,“ segir Frið-
rik.
„Það er algjör skandall að borg-
aryfirvöld skuli ekki hafa séð sóma
sinn í að bera fólk út sem þarna býr
í skrifstofurýmum því engir neyðar-
útgangar eru fyrir hendi. Við höf-
um verið að berjast við yfirvöld í
mörg ár,“ segir Bolli Kristinsson,
sem á eign í húsinu.
Í húsinu eru jafnframt verslanir
og hætt er við að tjón hafi orðið
vegna vatns og mikils reyks sem
myndaðist í eldinum.
Ítrekað verið bent á
ónógar brunavarnir
Eldur kom upp á hádegi í fjölbýlishúsi við Laugaveg
Morgunblaðið/Júlíus
Bruni Hætta skapaðist í bruna á Laugavegi 51. Snör handtök slökkviliðsins leiddu til þess að manni var bjargað.
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Sértæk opinber gjöld á flugrekend-
ur í innanlandsflugi munu hækka
um 70-80 milljónir króna á næsta
ári, segir Árni Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Íslands og
formaður Samtaka ferðaþjónust-
unnar. Hann segir gjöldin þá hafa
hækkað um nær 300 milljónir króna
á rúmum þremur árum, eða frá
2009, þegar þau námu alls um 200
milljónum króna.
Á fundi Isavia með flugrekstrar-
aðilum 3. desember síðastliðinn kom
fram að farþegaskattar frá Reykja-
víkurflugvelli myndu hækka um
41% og lendingargjöld flugvéla um
33%. Leiðarflugsgjald, sem lagt var
á um mitt ár 2010, verður hins veg-
ar lækkað um tæpan helming og
jafnar nokkurn veginn út hækkun
lendingargjaldanna, að sögn Árna.
Flugrekstraraðilar gagnrýna
hækkunina harðlega og segja hana
koma niður á rekstrarafkomu al-
mennra flugsamgangna og stuðla að
frekari fækkun flugfarþega.
Samráð um fjárfestingar
„Fyrsta apríl síðastliðinn hækk-
uðu lendingargjöld um 70%, far-
þegagjöld um 70% og flugleiðsögu-
gjald um 22% og frá þeim tíma
hefur farþegum fækkað. Þeim hafði
fjölgað um 5% fyrstu þrjá mánuðina
á þessu ári en frá þessum tíma í
apríl hefur þeim fækkað aftur um
4-5%,“ segir Árni.
Í tilkynningu frá Samtökum
ferðaþjónustunnar er talað um
gjöldin sem landsbyggðarskatt og
gagnrýnt að framlög til rekstrar
flugvalla skuli hafa verið skorin
stórlega niður á sama tíma og fram-
lög til annarra almenningssam-
gangna hafa verið aukin.
Árni segir eina forsendu hækkan-
anna þá að fjárfesta þurfi í kerfinu,
s.s. flugbrautum, en hann segir eðli-
legt að flugrekendur eigi hlut að
ákvörðunum um slíkar fjárfesting-
ar.
„Við teljum að ef þessir peningar
eiga að koma frá okkur ættum við
að hafa eitthvað um það að segja
hvernig þeim er eytt. Og forgangs-
röðun verkefna verði þá á faglegum
forsendum en ekki pólitískum,“ seg-
ir Árni.
Skattar og gjöld
í innanlands-
flugi hækka enn
70-80 milljóna hækkun á næsta ári
Morgunblaðið/Ernir
Flug Árni segir líkur á að farþegum
muni enn fækka í kjölfar hækkana.
Norðurál undirritaði í gær verk-
samning við ÍAV um byggingu 1.600
fermetra mannvirkja við álverið á
Grundartanga. Um er að ræða
fyrsta áfanga í fimm ára fjárfesting-
arverkefni Norðuráls þar sem mark-
miðið er að auka framleiðni og
rekstraröryggi og framleiðslu um
allt að 50 þúsund tonn af áli á ári.
Landsnet flytur rafmagn til ál-
versins með þremur háspennulínum.
Fyrirtækið stendur nú í fram-
kvæmdum á Grundartangasvæði
sem munu auka flutningsgetu um
u.þ.b. 70MW eða um nærri 10 pró-
sent.
Heildarkostnaður við verkefnið
verður á annan tug milljarða ís-
lenskra króna en kostnaður við
fyrsta áfangann nemur um þremur
milljörðum. vidar@mbl.is
ÍAV sér um stækk-
un á Grundartanga
50 þúsund tonna framleiðsluaukning
Morgunblaðið/RAX
Grundartangi Framkvæmdir hefj-
ast brátt við stækkun álversins.
Magnús Sædal Sævarsson starf-
ar fyrir skipulags- og bygging-
arsvið Reykjavíkurborgar í sér-
verkefnum en hann var
byggingarfulltrúi í rúm 17 ár en
lét af starfi árið 2011. Hann
þekkir vel til erinda íbúa hússins
á Laugavegi 51.
„Þetta fór saman við há-
marksannatíma hjá bygging-
arfulltrúa fyrir og eftir hrun,“
segir Magnús og bendir á að ekki
hafi gefist stund til að sinna
málinu. „Byggingarfulltrúi hefði
vissulega mátt sinna þessu máli
betur,“ segir Magnús.
Að sögn hans getur verið erf-
itt að framfylgja lögum í slíkum
tilfellum. „Þótt verið sé að
fremja lögbrot er ekki öllum
málum fylgt eftir,“ segir Magn-
ús.
Ekki hegnt
fyrir lögbrot
FV. BYGGINGARFULLTRÚI
Embætti landlæknis telur að frum-
varp til laga um breytingar á lögum
um vörugjald á matvælum gæti
aukið neyslu á sælgæti. Í umsögn
landlæknis segir að ekki verði séð
að það markmið að hækka vöru-
gjöld til að hafa áhrif á manneld-
issjónarmið náist með þessum
breytingum. Samkvæmt frumvarp-
inu hækka vörugjöld á sykri úr 60 í
210 kr./kg og taka vörugjöld af
öðrum vörum mið af hlutfalli við-
bætts sykurs og sætuefna í viðkom-
andi vöru.
„Þetta leiðir til þess að afnumið
verður vörugjald af kolsýrðu vatni
og hreinum ávaxtasafa og er það
mjög jákvætt skref í rétta átt. Hins
vegar mun vörugjald á gosdrykki
einungis hækka lítillega, eða um 5
krónur á lítra eða 2,5 krónur á hálf-
an lítra, en vörugjald á súkkulaði
kemur til með að lækka um 16
krónur á kíló, einnig á ýmsu öðru
sælgæti og kexi,“ segir m.a. í um-
sögn landlæknis. Þetta eru þær
vörutegundir sem vega hvað
þyngst í sykurneyslu landsmanna.
Breytt vörugjald gæti aukið sælgætisneyslu
Eldri kona
varð fyrir
strætisvagni í
Kópavogi í
gærmorgun
og slasaðist
alvarlega. Slysið varð á Nýbýlavegi,
á milli Túnbrekku og Þverbrekku,
og var konan fótgangandi á leið yfir
götuna þegar hún varð fyrir vagn-
inum. Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu óskar eftir vitnum að slys-
inu.
Fjórtán ára piltur varð fyrir bif-
reið austarlega á Nýbýlavegi í Kópa-
vogi um klukkan 14 í gær samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu. Pilturinn var
fluttur með sjúkrabifreið á bráða-
móttöku Landspítalans í Fossvogi.
Varð fyrir
strætisvagni
í Kópavogi