Morgunblaðið - 08.12.2012, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 08.12.2012, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2012 Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is Uppboð á listaverkasafni Gallerí Fold 1992–2012 sunnudaginn 9. desember kl. 16 og mánudaginn 10. desember kl. 18 Sérstakt uppboð á listaverkum úr búi Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis verður haldið í Gallerí Fold. Verkin verða sýnd laugardag 11–17, sunnudag 12–15 og mánudag 10–17. Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Silfur- og speglauppboð 1. – 12. desember Myndlistaruppboð 8. – 17. desember Jóhannes S.Kjarval Opnun laugardag 8. desember kl. 15 Allir velkomnir Sýning í Forsalnum Elísabet Ásberg 8. – 23. desember Jón Stefánsson Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is B jallan hringir þegar dyrnar eru opnaðar hjá Spilavinum við Lang- holtsveg. Það er reyt- ingur af fólki þrátt fyr- ir að klukkan sé aðeins rétt rúmlega tíu. „Við opnum ekki fyrr en klukk- an ellefu en við segjum ekki nei við fólk ef við erum mætt,“ segir eig- andi verslunarinnar. Viðmælandinn, Sigursteinn Jóhannes Gunnarsson, leiðbeinir áhugasömum kaupanda. Tommi og Jenni sem eru búsettir á bol Sigursteins hjálpa gestum að hverfa aftur til ánægjustunda æsk- unnar. Sigursteinn hefur frá barns- aldri haft mikinn áhuga á hvers kyns spilum. „Við fjölskyldan spil- uðum alltaf jólaspil, það var púkk í jólaboðum og svo vorum við systk- inin að spila allt árið um kring. Ég datt líka inn í tölvuleiki og leiklist- arleiki. Þannig að allir leikir hafa verið mér hugleiknir. Ég var í leik- list í MH en mamma mín kennir leiklist þar. Það var samt bara mjög gaman að vera í tímum hjá mömmu enda er hún bráðskemmtileg. Ætli ég fái ekki leikháhugann frá mömmu og skriftaráhugann frá pabba en hann er rithöfundur. For- eldrar mínir sameinast í mér,“ segir Sigursteinn og dregur fram brúnan kassa sem inniheldur útskrift- arverkefnið hans úr Háskólanum. Árið 2011 fengu Sigursteinn og vin- ur hans styrk frá Evrópu unga fólksins til að halda uppi Borðs- pilamiðstöð til kynna fólk fyrir fjöl- breytileika og ævintýraheimi borðs- pilanna. „Við héldum spilahönnunarvinnustofu þar sem við vorum með fyrirlestra og við vorum með spilakvöld reglulega í meira en ár til að reyna að efla spila- menningu í landinu.“ Reykjavík bjargað Sigursteinn er einn af fáum sem útskrifast með BA-gráðu í rit- list úr Háskólanum en það nám hef- ur nú verið fært á meistarastig. Út- skriftaverkefni hans var nokkuð sérstakt en kannski ekki ef tekið er tillit til áhugasviðs hans. Hann útbjó borðspilið Valborg undir dyggri leið- sögn leiðbeinanda síns Rúnars Þórs Þórarinssonar og hlaut ágætis ein- kunn fyrir. „Þetta varð aðeins viða- meira en ég bjóst við í upphafi og síðustu tíu dagana fyrir skil var lítið sofið. Ég var svo heppinn að finna Rúnar Þór en hann gerði á sínum tíma spilin Askur Yggdrasils og Æv- intýralandið. Það var því frábært að fá mann sem er búinn að vera leikja- hönnuður í 20 ár og er auk þess bók- menntafræðimenntaður,“ segir Sig- ursteinn og opnar brúna kassann. Upp úr honum tekur hann stórt spjald með korti af Reykjavík, og leggur á borðið ásamt fjölmörgum spilum í ótal flokkum. Hann tekur líka upp þykka bók sem inniheldur ritgerðina sjálfa. „Ég hef alltaf haft mjög mikinn áhuga á spilum og þetta verkefni tengist beint inn á það áhugasvið. Svo hef ég líka haft áhuga á leikjahönnun og geri ráð fyrir að ég fari út í hana í framtíð- inni. Mig langaði þess vegna að loka- verkefnið mitt væri eitthvað meira en bara saga. Þetta er í rauninni Bjó til borðspil og útskrifaðist úr HÍ Sigursteinn Jóhannes Gunnarsson útskrifaðist nýverið úr ritlist frá Háskóla Ís- lands. Lokaverkefni hans hefur vakið eftirtekt en það var afar óvenjulegt borðspil sem byggist á samvinnu og því mikilvæga verkefni að bjarga Reykjavík. Valborg Spil Sigursteins snýst um að bjarga Reykjavík. Mósaík Spilið sem varð til á meðan vinna við lokaritgerðina stóð sem hæst. Árleg aðventuhátíð Bergmáls, líknar- og vinafélags, verður haldin í Háteigs- kirkju sunnudaginn 9. desember kl. 16.00. Þar mun Guðmundur Þórhalls- son, kennslustjóri í Borgarholtsskóla, halda hugvekju. En auk þess verður á dagskrá einsöngur tveggja nemenda úr Söngskóla Sigurðar Demetz, kór- söngur og almennur söngur jólasálm. Veitingar verða í boði Bergmáls í safn- aðarsal að lokinni samveru í kirkjunni og eru allir hjartanlega velkomnir. Endilega… Bergmál Góður hópur í sumarferð í Kerlingafjöll síðastliðið sumar. …sækið aðventuhátíð Bergmáls Rúmlega 20 skógræktarfélög um land allt bjóða fólki að koma í skóginn á að- ventunni og höggva eigið jólatré gegn vægu gjaldi. Þetta er um þriðjungur allra skógræktarfélaga á landinu og hefur þeim fjölgað nokkuð frá síðasta ári þegar ein 15 félög buðu upp á þessa þjónustu. Þessi siður nýtur æ meiri vinsælda hér á landi og er orðinn ómissandi liður í jólaundirbúningi margra fjölskyldna. Börn sem full- orðnir njóta þess að halda saman út í skóg til að leita að draumatrénu fjarri amstri og streitu hversdagsins. Fáein skógræktarfélög spara tímabundnu fólki þó ómakið og bjóða upp á söguð tré af ýmsum stærðum og gerðum. Þá er sums staðar einnig hægt að kaupa tré í pottum, tröpputré, eldivið, grein- ar og aðrar viðarafurðir. Útivist- arskógar skógræktarfélaganna eru öll- um opnir og í flestum þeirra hafa verið lagðir stígar, komið upp áning- arstöðum og annarri aðstöðu. Ágóði af jólatrjáasölu skógræktarfélaganna rennur allur til ræktunar og umhirðu þessara skóga og uppbyggingar að- stöðu í þeim. Almenningur nýtur því góðs af jólatrjáasölu skógræktarfélag- anna en fyrir hvert jólatré sem selt er má reikna með að hægt verði að gróð- ursetja 30-40 ný tré. Sérstök athygli er vakin á því að mismunandi er milli skógræktarfélaga hvenær jólaskóg- arnir eru opnir og því gott að kynna sér það áður en lagt er af stað á vef- slóðinni www.skog.is. Jólatrjáasala styrkir útivistarskóga Jólaleg fjölskyldustund Morgunblaðið/Kristinn Fengur Það er gaman að skunda heim með jólatré sem maður heggur sjálfur. Morgunblaðið/Golli Jólatré Mörg tré finnast í skógum landsins og margir höggva eigið tré.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.