Morgunblaðið - 15.12.2012, Qupperneq 34
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2012
Lima. AFP. | Keppni í fuglaskoðun
kann að hljóma ankannalega í eyrum
margra – þó ekki fuglaáhugamann-
anna sem tóku þátt í sex daga mara-
þonkeppni um titilinn besti fugla-
skoðarinn.
„Ég er með fuglabit um allan lík-
amann, er að drepast í fótunum, auk
þess sem ég fékk hæðarveiki og
kastaði upp,“ segir Ryan Terrill, 26
ára félagi í vinningsliðinu sem kom
frá Bandaríkjunum. „Þrátt fyrir allt
þetta er ég himinlifandi vegna þess
að ég sá alla fuglana sem ég hef allt-
af viljað sjá.“
Tuttugu og fjórir þaulvanir fugla-
skoðarar og sérfræðingar frá Bret-
landi, Suður-Afríku, Brasilíu, Spáni
og Bandaríkjunum tóku þátt í mara-
þonkeppninni. Þeir voru léttklæddir,
með sjónauka og myndavélar um
hálsinn, og virtust vera eins og
hverjir aðrir ferðamenn á leiðinni til
Macchu Picchu, fornu inkaborgar-
innar sem stundum er nefnd „Týnda
borgin“.
Þetta voru þó engir venjulegir
fuglaáhugamenn, heldur ofur-
sérfræðingar. Nokkrir þeirra eru á
meðal þekktustu og virtustu fræði-
manna heims á sviði fuglalífs.
Þeir vöknuðu allir fyrir klukkan
fimm á morgnana til að ganga í
gegnum skóga á náttúruverndar-
svæðinu í Tambopata og allir höfðu
þeir sama markmið: að finna eins
margar fuglategundir og mögulegt
var.
Þeir sáu meðal annars andes-
klettahana (rupicola Peruviana) sem
margir líta á sem þjóðarfugl Perú.
Meðal bestu fugla-
skoðunarsvæða heims
Nokkrir keppendanna fylltust svo
miklum eldmóði frammi fyrir þessu
fágæta og fallega náttúrulífi að það
jaðraði við þráhyggju. „Perú er á
meðal bestu svæðanna í heiminum
fyrir fuglaskoðun, bæði hvað varðar
fjölbreytileika fuglalífsins og að-
stæður til skoðunar,“ sagði Jordi
Sargatal, spænskur fuglafræðingur
sem hefur skrifað nokkrar bækur
um fuglalíf.
Lið Sartagals varð í síðasta sæti
en var samt ánægt með ferðina og
ætlar að búa sig betur undir keppn-
ina á næsta ári.
Í sigurliðinu „Tigrisomas“ voru
fjórir doktorsnemar í fuglafræði við
Ríkisháskóla Louisiana í Baton
Rouge. Liðið fór yfir stærra svæði
en keppinautarnir á þessum sex
dögum og sá hvorki meira né minna
en 493 fuglategundir.
Keppninni í ár lauk í bænum
Aguas Calientes, nálægt Macchu
Picchu. „Venjulega stendur fugla-
skoðunarkeppnin aðeins í einn dag,
en við vildum beina athyglinni að líf-
fræðilegum fjölbreytileika Perú. Í
landinu eru 1.800 skráðar fuglateg-
undir, þar af eru 117 tegundir sem
aðeins er að finna í Perú,“ sagði
Dennis Osorio, sem skipulagði
keppnina. „Á svæðinu í grennd við
Macchu Picchu eru um 700 fuglateg-
undir og margar þeirra eru hvergi
annars staðar.“
AFP
Ofursérfræðingar Keppendur í fuglaskoðunarkeppni leita að fuglum nálægt bænum Aguas Calientes í Perú.
Vinningsliðið sá 493
tegundir í fuglaparadís
AFP
Lítill þytfugl Kólibrífugl á grein í skógi nálægt Macchu Picchu.
AFP
Þjóðarfugl Andes-klettahani á verndarsvæði þar sem keppnin fór fram.
Keppt í fugla-
skoðun á inka-
slóðum í Perú
Um 1.800 fuglategundir
» Claudia Cornejo, aðstoðar-
ferðamálaráðherra Perú, segir
að stefnt sé á því að landið laði
til sín fleiri fuglaskoðara en
nokkurt annað land í heim-
inum.
» Stefnt er að því að tekjur
Perú af ferðaþjónustu við
fuglaskoðara nemi að minnsta
kosti 50 milljónum dollara á
ári, eða jafnvirði 6,3 milljarða
króna.
» Í Perú eru um 1.800 teg-
undir fugla, þar af 117 sem eru
hvergi annars staðar.