Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Page 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.1. 2013 Það eru pólitísk tíðindi að GuðfríðurLilja Grétarsdóttir ákveði að hættaþingmennsku og hverfa á braut áður en kjörtímabilinu lýkur. Það segir meira en mörg orð um ástandið hjá Vinstri grænum að þingmaður sem hefur breitt bakland og þverpólitíska skírskotun skuli ekki eiga samleið með flokknum. Ekki þarf annað en að rifja upp sameiginlegt próf- kjör flokksins á öllu höfuðborgarsvæðinu fyr- ir kosningarnar 2007 til að átta sig á hversu mikils stuðnings hún nýtur, en þá bauð hún sig fram í 2. sæti í einu kjördæmanna þriggja og varð hlutskarpari en þingmenn- irnir Álfheiður Ingadóttir og Árni Þór Sig- urðsson. Guðfríður Lilja er fjórði þingmaðurinn af fjórtán manna þingflokki sem hverfur á braut á kjörtímabilinu. Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir starfa utan flokka og Ásmundur Einar Daðason er genginn til liðs við Fram- sókn. Katrín Jakobsdóttir, varaformaður flokksins, gerði þó lítið úr þessum hrær- ingum á RÚV: „Þetta er búið að vera mjög viðburðaríkt kjörtímabil og mikið gengið á í pólitíkinni, ekki bara hjá Vinstri grænum heldur fleiri flokkum.“ En hvað skyldi valda því að Guðfríður Lilja velur þennan tímapunkt til að segja skilið við Vinstri græna? Ef til vill er hún ekki til í að marsera í takt við ríkisstjórnina og kýs því að hverfa af vettvangi, en þar eru mörg stór mál á teikniborðinu, örskammur tími til stefnu, kosningaloforð bíða í hrönn- um og meirihlutinn hangir á bláþræði. En óhætt er að segja að ákvörðunin um að fara ekki aftur fram eigi sér lengri aðdraganda. Orrustan um Icesave Upphafið má rekja til þess að Ögmundur Jónasson og Guðfríður Lilja fóru fyrir þeim hópi innan Vinstri grænna sem ekki vildi að Alþingi samþykkti Icesave-samningana, í fyrstu óséða. Þar tóku þau harðan slag við formanninn, Steingrím J. Sigfússon, og það átti eftir að reynast afdrifaríkt. Eftir mikla orrahríð og lengstu umræður þingsögunnar tókst Steingrími og Jóhönnu Sigurðardóttur að berja samning um Icesave í gegnum þing- ið, en þjóðin felldi hann síðan í þjóð- aratkvæðagreiðslu. Áður boluðu þau Ög- mundi úr ríkisstjórn – í bili. Og þegar Guðfríður Lilja sneri aftur úr fæðingarorlofi var hún sett af sem formaður þingflokksins. En fleira hangir á spýtunni. Það hefur verið ákveðinn grundvallarágreiningur innan flokksins frá byrjun kjörtímabilsins eða jafn- vel fyrir það. Ein birtingarmyndin var að- koma Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem for- ystan hreykti sér af en aðrir höfðu efasemdir um. Í kjölfarið fylgdi deilan um Magma. Eins var ágreiningur um hversu langt ætti að ganga í niðurskurði í velferðarkerfinu og til að leysa úr skuldavanda heimilanna, en lofað hafði verið skjaldborg um heimilin. Allt kynti þetta undir eldinum. Þá spilaði inn í hvernig staðið var að landsdómsmálinu, þó að þau átök hafi verið meira á bakvið tjöldin. Steingrímur er gagnrýndur fyrir að raða já-fólki í kringum sig, öðrum sé ýtt til hliðar eða þeir hverfi af vettvangi. En á móti er bent á að í umræðu innan flokksins á stórum vettvangi verði forystan oft undir. Þá komi fram sjónarmiðin sem reynt sé að halda niðri. En lítið sé gefið fyrir það og fyrir vikið sé baklandið að þrengjast, margir hættir að mæta og kjósi ekki flokkinn. Líklega vegur ESB einna þyngst, en eitt höfuðmálið fyrir kosningar var að hafna að- ild. Steingrímur hefur nú sagt að endurmeta þurfi stöðu viðræðnanna og að vilji þjóð- arinnar þurfi að varða veginn. Innan flokks- ins telja menn það benda til að hann leiti að flóttaleiðum. Það blasi við að ekki sé hægt að fara í kosningar með óuppgerð ESB-mál. „Þá geta þeir bara sett við sig krossmark.“ Morgunblaðið/Kristinn Guðfríður Lilja stígur af sviðinu GRUNDVALLARÁGREININGUR UM STEFNU VINSTRI GRÆNNA ALLT KJÖRTÍMABILIÐ VELD- UR ÞVÍ AÐ FJÓRÐI ÞINGMAÐURINN HVERFUR Á BRAUT OG JÓN BJARNASON HUGSAR SIG UM. Þingmenn á fundi um Icesave. Nú er Ásmundur Einar farinn í Framsókn, Jón Bjarnason óskrifað blað, Lilja utan flokka, Ögmundur náði kjöri í kraganum eftir harða rimmu og Guðfríður er hætt. Morgunblaðið/Ómar * „Þetta snýst fyrst og fremst um að það verður eftirsjá að [GuðfríðiLilju], bæði fyrir okkar hreyfingu og Alþingi en þetta ætti ekki aðbreyta neinu fyrir ríkisstjórnarsamstarfið eða flokkinn í sjálfu sér.“ Katrín Jakobsdóttir Þjóðmál PÉTUR BLÖNDAL pebl@mbl.is Jón Bjarnason var ómyrkur í máli um stöðu VG í færslu á bloggsíðu sinni á fimmtudag, en þá hafði flokkurinn mælst með 9,1% fylgi í könnun Gall- up, undir helmingi af fylginu frá síðustu kosningum: „Þingmenn, forystufólk í félögum VG vítt og breitt um landið hafa séð sig knúna til að yfirgefa flokkinn, og stuðn- ingsfólki sem treysti á VG hefur verið fórnað á altari ESB – einsmálsstefnu Samfylking- arinnar.“ Jón segir flokkinn ekki eiga neitt val, losna verði úr þessum álögum Samfylkingarinnar þegar í stað. „Hér dugar enginn „heimiliskattaþvottur“, svo gengið sé í smiðju forsætisráðherra Sam- fylkingarinnar. Forysta Vinstri Grænna, sem þarna á í hlut, verður einfaldlega að stíga fram og biðja þjóð- ina og kjósendur VG afsökunar fyrir að hafa gengið undir þessi álög ESB og Samfylking- arinnar.“ Þegar þetta er ritað er enn beðið ákvörð- unar Jóns um hvort hann gefur kost á sér í Norðvesturkjördæmi og er ólíklegt að hann tilkynni hana fyrr en eftir helgi. „Það hefur legið við borð eftir að ljóst var að Guðfríður væri að hætta að mjög er veist að Jóni, sem er eig- inlega síðasta móhíkaninn,“ segir Bjarni Harðarson. Aðrar heimildir herma að óvíst sé hvort Jón sjálfur hafi ákveðið hvort hann haldi áfram, en frestur til að til- kynna ákvörðun rennur út á miðnætti mánu- daginn 7. janúar. Viðmælendur benda á að vandséð sé hvernig það geti samrýmst stefnu Jóns að beita sér undir merkjum flokks sem rekur öndverða stefnu við hann varðandi ESB. Þá er togstreitan einnig mikil við Steingrím J. Sigfússon, formann flokksins, um fiskveiði- stjórnunarmálin, en þar eru hagsmunir kjör- dæmanna í norðvestur og norðaustur gjör- ólíkir. Hvað gerir Jón? Það má heyra á þingmönnum allra flokka að gott hafi verið að eiga sam- starf við Guðfríði Lilju, þó að skoðanirnar færu ekki alltaf saman eins og nærri má geta. Hjörleifur Guttormsson, fyrrv. ráðherra, segir hana óvenju hæfileikaríkan einstakling með fjölbreytta menntun og sýn til mála langt út fyrir landsteinana sem varða miklu til lengri tíma litið, t.d. norðurslóða. „Hún breikkaði verulega sveitina sem kjörin var á þing í kjölfar hrunsins. Ég var mjög sáttur við hennar framgöngu og viðleitni til þess að brúa bilið á milli andstæðra fylkinga í þinginu, sem menn hafa nú kannski verið óþarflega latir við að rækta til að komast hjá hatrömmum átökum.“ BREIKKAÐI FORYSTUNA

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.