Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Blaðsíða 51
6.1. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
Afsláttur gull-, silfur- og bronslykils bætist ekki við annan afslátt. Afsláttur vegna markatölu bætist ekki við annan afslátt.
Kíktu inn á Facebook-síðu ÓB og kynntu þér skemmtilegan
leik sem gefur þér möguleika á enn meiri afslætti!
ÓB-BRONSLYKILL
-10 kr.
af lítranum
í 10 skipti
ÓB-GULLLYKILL
-20 kr.
af lítranum
í 10 skipti
ÓB-SILFURLYKILL
-15 kr.
af lítranum
í 10 skipti
HM-leikur ÓB – Giskaðu og þú getur unnið
ég búinn að vera á vakt samfleytt í tvo sól-
arhringa.“
Þakkar íbúum fyrir
að spara rafmagn
50-60 staurastæður eru brotnar í Ólafsvík-
urlínu og þarf að byggja hana upp frá
grunni á stórum kafla. Stefnt er að því að
þeirri vinnu ljúki á sunnudag.
„Þetta er 1.800 manna samfélag sem við
höldum orku á. Við erum heppin núna því
að það hefur hlýnað í veðri. Hér er rafhit-
un, sem þýðir að við notum um 85% meira
rafmagn en þar sem er hitaveita,“ segir
Sigþór.
Ekki hefur þurft að skammta rafmagn í
Snæfellsbæ síðan rafmagnið komst á.
Nokkurn tíma tók að koma því á, m.a.
vegna seltu á endabúnaði á línum. Slökkvi-
liðið aðstoðaði við að þrífa búnaðinn. Síðan
hefur allt gengið vel og ekki þurft að
skammta rafmagn. Þó kom upp smábilun í
nótt þegar rafmagn fór af að hluta í um
eina klukkustund. M.a. fór rafmagn af fang-
elsinu á Kvíabryggju.
Vill að hitunarkostnaður verði
jafnaður líkt og símakostnaður
Fiskvinnslan í Snæfellsbæ er komin af stað
með sína starfsemi eftir jólafrí. Sigþór segir
að það hafi gengið vel. „Íbúar hérna hafa
tekið alveg sérstaklega vel í tilmæli um
orkusparnað og án þeirra væri þetta ekki
hægt. Gamlárskvöld er orkufrekasti dagur
ársins hjá okkur, en það var aðdáunarvert
hvað íbúar á svæðinu gátu dreift notk-
uninni. Það urðu því engin vandamál út af
því. Ef gamlárskvöld er undanskilið hefur
notkunin þessa daga ekki verið meiri en á
góðum sumardegi,“ segir Sigþór.
Hann er óhress með að ekki skuli hafa tek-
ist samstaða um að jafna kostnað við rafhit-
un milli landsmanna. „Við höfum barist lengi
fyrir því að jafna hitunarkostnað milli lands-
manna, en við höfum talað fyrir daufum eyr-
um meðal ráðamanna hingað til. Á sínum
tíma var símakostnaður jafnaður milli lands-
manna og sama er með eldsneytisverð.
Bensínið kostar jafnmikið í Ólafsvík og
Reykjavík. Það þykir sjálfsagt í dag að
menn borgi það sama fyrir síma og elds-
neyti hvar sem þeir eru staddir, en það
sama virðist ekki mega gilda um húshitun.
Þetta er ekki stór hluti landsmanna sem
býr við þessar aðstæður; kannski 10%. Þetta
eru sveitabæir og nokkrir þéttbýlisstaðir.
Raforkan er smávægilega niðurgreidd í dag.
Meðaleinbýlishús hér í Ólafsvík borgar 40
þúsund krónur fyrir rafmagn og hita,“ segir
Sigþór.
Um 60 dísilrafstöðvar eru um allt land,
sem eru sambærilegar þeim sem Sigþór
Guðbrandsson hefur haldið gangandi í
Ólafsvík samfleytt í tvo sólarhringa.
Um 30 tonn af olíu þarf á sólarhring
til að keyra þær dísilrafstöðvar sem nú
sjá Ólafsvík fyrir rafmagni, sem gerir
kostnað upp á tæpar fimm milljónir á
sólarhring.
Fullkomin dísilrafstöð af stærri gerð-
inni kostar 50-60 milljónir króna en litl-
ar vélar er hægt að fá á 20 milljónir. „Við
erum með þessar vélar ýmist fastar eða
lausar á vögnum,“ segir Skarphéðinn
Ásbjörnsson, deildarstjóri varaafls-
deildar hjá Rarik en kostnaðurinn fer
eftir því hvernig stöðvarnar eru útbúnar.
„Það eykur kostnaðinn að hafa þær í
veðurvörðum gámum og svo er líka
komin upp krafa um hljóðeinangrandi
gáma nú á tímum, það er leiðigjarnt að
hlusta á hljóðið í þessu.
En við þurfum að fara að þjálfa upp
nýja menn til að taka við af Sigþóri, því
þetta eru oft ólíkar vélar. Ástæðan fyrir
hans tveggja sólarhringa vakt var að-
allega sú að það vildi svo óheppilega til
að sá sem er með dísilrafstöðvarnar í
Ólafsvík með honum er í fríi í Noregi,“
segir Skarphéðinn.
Stefnt á að bæta við fær-
anlegum vélum
„Áður fyrr þegar raforkukerfið var veik-
ara voru settar upp fastar stöðvar á
nánast öllum þéttbýlisstöðum á landinu.
En eftir að kerfið hefur styrkst er notast
meira við þessar vélar til varaafls og
þess vegna er þetta að færast frekar á
vagna. En við eigum svosem ekkert
margar á vögnum ennþá. Við erum með
tvær á vögnum og svo fjórar í gámum
sem við getum sett á vagna. En við
stefnum að því að bæta frekar við fær-
anlegar vélar en fastar.
En einu vélarnar sem við keyrum alla
daga ársins eru í Grímsey og á Gríms-
stöðum á Fjöllum.“
Spurður um þörfina fyrir svona vélar
og hvers vegna þær hafi klikkað á Ísafirði,
eins og fram hefur komið í fréttum, segir
hann að það sé þörf fyrir svona vélar og
sambærilegar, þar sem það verði alltaf
þörf fyrir varaafl. „En þetta voru fjórar
stórar vélar sem voru til vara á Ísafirði og
ég veit ekki til þess að það sé skýring á því
hvers vegna þær virkuðu ekki.
En þessu er vel haldið við og við keyr-
um vélarnar alltaf einu sinni í mánuði í
klukkutíma undir álagi til þess að halda
þeim liðugum og tilbúnum,“ segir Skarp-
héðinn. borkur@mbl.is
5 MILLJÓNIR Á SÓLAR-
HRING Í OLÍU