Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Blaðsíða 23
6.1. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Kæru landsmenn, nú þegar hláka er um allt land er um að gera aðláta þíðuna ná lengra en til gróðurs jarðar, hleypið henni hiklaustinn fyrir skinn og látið hana bræða allan klaka sem á nýliðnu ári
hefur mögulega sest að hjartanu. Það er nefnilega ekkert vit að fara inn
í nýtt ár án þess að huga að hjartans málum. Langtímafrosthörkur á
þeim slóðum eru afar óheppilegar og áríðandi að koma í veg fyrir sí-
frera. Fólk ætti á nýbyrjuðu ári að stefna fölskvalaust að því að bræða
ís í eins mörgum hjörtum og mögulegt er,
hvort sem það er hjá nákomnum eða lítt
skyldum, því nóg er af grimmd í heimi hér en
aldrei nóg af ást og hlýju. Og þar sem ævin-
lega er best að jafnvægi sé sem mest í því að
gefa og þiggja, þá ætti fólk jafnframt að leyfa
funheitum lúkum annarra að umvefja allt það
viðkvæma sem í brjóstunum býr. „Komdu og
bræddu ísinn, ó, dísin mín dýra …,“ syngja
þeir stundum karlarnir, og þær konur sem
upplifað hafa slíkan söng í návígi vita hversu
sterk hún verður þá löngunin til að einhenda
sér í ísbræðslu. Ef svekkelsi vegna fyrri ástarmála eða eitthvað annað
hefur vakið ótta við ástina í sálum landsmanna á liðnu ári, þá er farsæl-
ast að víkja nú þegar af þeirri braut og vaða með hugrekkið að leiðar-
ljósi til móts við rómantíkina á nýju ári.
Einnig má nota alla þessa hláku til syndaþvottar, ef svo ólíklega vill
til að einhverjum finnist hann syndum hlaðinn. Alveg er það kjörið að
kasta smásyndum og misstignum skrefum út í lækinn sem bunar undan
skaflinum og láta allt heila klabbið fljóta til hafs eða niður til heljar.
Skvetta svo framan í sig leysingarvatni og horfa nýþvegnum augum til
nýrra ævintýra. Því árið sem framundan er virðist eftir því sem fróðir
segja vera fjarska álitlegt. Ef horft er á handskrifað ártalið 2013 aftan-
frá þá stendur þar sjálfur ástarguðinn: Eros. Og ekki nóg með það,
summan af 2013 er 6. Og fyrir hvað stendur sú tala? Jú, hún stendur
fyrir ást og rómantík. Hún stendur líka fyrir kvenlegt eðli, samkennd
og peninga. Drottinn minn dýri hvað við getum öll hlakkað til að ganga
með Venus okkur við hlið á nýju ári, með heitan slátt í hjarta, finnandi
til með öðrum og alveg forrík. Að lokum má ég til með að deila með ykk-
ur áramótadraumi vinkonu minnar: Hún hljóp vegvillt um flugvallar-
byggingu í allt of stuttum kjól og engum nærbuxum. Og hún datt í öðru
hverju skrefi. Hvað ætli það boði? Spyr sá sem ekki veit.
HLÁKA
Í HJARTANU
KRISTÍN HEIÐA
Stigið í
vænginn
algjör undirstaða og maður verður að vanda
sig mikið þegar kemur að næringu. Maður
getur ekki sett dísilolíu á bensínbíl. Svo
verður maður að hreyfa sig markvisst og síð-
ast en ekki síst verður maður að vera já-
kvæður og velja viðhorf sitt. Ég set mér ekki
nein áramótaheit og er meira í að setja mér
markmið. Markmiðasetning þarf ekki að
vera flókin en hún þarf að vera SMART en
það er nokkuð sem ég hef tileinkað mér úr
Dale Carnegie-fræðunum. Þá stendur S fyrir
sértæk og skrifleg, M fyrir mælanleg, A fyr-
ir aðlaðandi, R fyrir raunhæf og T fyrir
tímasett. Ef fólk fer eftir þessu þá mun það
ná árangri.“
Sigurbjörg segir góðan og breyttan lífsstíl
ekki vera neitt sem fólk tileinkar sér á einni
nóttu. „Þegar fólk er að byrja verður það að
átta sig á að þetta er langhlaup, ekki sprett-
hlaup. Það er gott að taka lítil skref og ætla
sér ekki of mikið í einu. Það er líka tilvalið
að nýta sér netið en þar er mikið af æfinga-
myndböndum og öðrum fróðleik.
Það er hvatning að æfa með vini og gera
eitthvað sem manni finnst skemmtilegt að
gera. Svo er lykilatriði að nálgast ný við-
fangsefni með jákvæðni og gefast alls ekki
upp þó að allt fari ekki eins og lagt var upp
með í upphafi. Málið er að halda ótrauður
áfram.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
* Svo er lykilatriði að nálgast ný viðfangsefni með jákvæðni og gefastalls ekki upp þó að allt fari ekki eins og
lagt var upp með í upphafi.
Sigurbjörg Ágústsdóttir
fór að hlaupa til að sýna
kúnnum sínum stuðning.