Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Blaðsíða 13
6.1. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
eða skoðað mig um í skógi. Ég tala
nú ekki um ef ég kemst á uppá-
haldsstaðina mína, Melrakkasléttu
eða Mývatnssveit. Einn dagur þar
er eins og vikufrí; þögnin allsráð-
andi en samt iðandi líf allt í kring-
um mann. Sem ljósmyndari sér
maður umhverfið allt öðruvísi en
annars, ekki bara fuglalífið heldur
skýjafar og annað sem maður er
ekki að hugsa um venjulega.“
Eyþór segir ljósmyndunina tví-
þætta: „Ég reyni fyrst og fremst
að taka fallegar myndir en eltist
líka við ákveðnar tegundir. Ég
safna til dæmis flækingum. Ef ég
frétti af sjaldgæfum fugli bíð ég
stundum tímunum saman en er þó
meira fyrir að ganga og taka
myndir af því sem birtist fyrir
framan mig. Stundum fer ég í
langa gönguferð til að ná mynd af
ákveðnum fugli; ég geng til dæmis
einu sinni á ári á fjall hér í ná-
grenni Akureyrar til að taka
myndir af himbrimapari sem er
þar. Það fer ekki mjög langur tími
í þá myndatöku sjálfa en fuglalífið
er mikið á leiðinni auk þess sem ég
mynda líka skordýr og landslag.“
Eyþór segist hafa mjög gaman
af því, sem tónlistarmaður, að
reyna sig á öðrum sviðum. „Ég fæ
ofsalega mikið út úr því að ná
góðri mynd. Hlakka þá mikið til að
komast heim og laga hana aðeins
í tölvunni. Annars fótósjoppa ég
myndir mjög lítið; laga þær bara
aðeins. Veiðimaður fær ákveðið
kikk þegar hann fangar bráð en ég
held ég fái meira kikk að ná góðu
skoti núna.“
Eyþór bjó í Dalasýslu til 18 ára
aldurs. Fór þá á flakk; var við nám
og tónlistarstörf á Akranesi í tvö
ár og nam að því loknu orgelleik í
þrjú ár í Reykjavík en var áfram
búsettur á Skaganum. Eyþór var
síðan í sjö ár í orgelnámi í Svíþjóð,
byrjaði að leysa af í Akureyr-
arkirkju 1998 en hefur verið í fullu
starfi við kirkjuna síðan 2003.
Desember var annasamur að
vanda. „Það er brjálað að gera í
desember og raunar í nóvember
líka við undirbúning, en rosalega
skemmtilegt. Hér er líf og fjör,
mikið um alls konar tónleika og
kórarnir syngja við ýmsar uppá-
komur og svo er helgihaldið um jól
og áramót.“ Sex kórar eru við
kirkjuna, og þau stjórna þremur
hvort, Eyþór og starfssystir hans,
Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.
Eyþór segist varla þora að svara
þeirri samviskuspurningu hvort
hann fái jafn mikið út úr því að ná
góðri mynd og að leika vel á org-
elið! „Ég hef eytt meirihluta æv-
innar í að læra á orgel og starfa
sem organisti og sennilega gefur
mér ekkert meira en að spila tón-
verk á orgel á tónleikum í fallegri
kirkju. Það er ofboðslegt kikk þeg-
ar vel tekst til og maður fær mikil
viðbrögð. En að ná fallegri ljós-
mynd, sérstaklega ef það er sjald-
gæfur fugl og honum fylgir ein-
hver skemmtileg saga, er líka mjög
góð tilfinning. Öðruvísi, en jafn
góð.“
Kría færir björg í bú. Líklega uppáhaldsmynd Eyþórs Inga, ef hann þyrfti að velja úr öllum þeim fjölda sem hann hefur tekið!
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Steindepill.
Humla.
* Einn dagur í Mývatnssveiteða á Melrakkasléttu er eins og vikufrí
Lómur.
Steindepill.