Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Blaðsíða 33
Morgunblaðið/Golli
Anna Eygló eys súpu á disk hjá
æskuvinkonu sinni Margréti Kaaber.
6.1. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
Uppskrift (fyrir 6):
500 g langa, skorin í bita
500 g þorskur, skorinn í bita (ég notaði þorsk-
hnakka)
300 g rækjur
3 hvítlauksrif, söxuð
3-4 gulrætur, sneiddar
1 stk. laukur, saxaður í meðalstóra bita
1 rauð paprika, skorin í meðalstóra bita
1 gul eða appelsínugul paprika, skorin í með-
alstóra bita
2-3 msk tómatpúrra
1 dós niðursoðnir tómatar
3 dl vatn
1 teningur fiskikraftur
½ teningur hænsnakraftur
1 tsk. tandoori masala
½ tsk. karrí
¼ tsk. hvítur pipar
6 sólþurrkaðir tómatar, sneiddir
4 msk. mango chutney
1 dl sæt chilisósa
2 fernur matreiðslurjómi
Ein matskeið olíu hituð í potti og hvítlaukurinn
steiktur í skamma stund. Áður en hann byrjar að
brenna er hann tekinn upp úr og settur til hliðar.
Tveimur matskeiðum af olíu bætt við í sama pott og
gulrætur, laukur og paprika brúnuð. Því næst er
tómatpúrru, niðursoðnum tómötum, vatni, fiski-
krafti, hænsnakrafti, tandoori masala, karríi og hvít-
um pipar ásamt hvítlauknum bætt út í. Strax á eftir
eru sólþurrkuðu tómatarnir sneiddir niður og þeim
ásamt mango chutney, sætu chilisósunni og mat-
reiðslurjómanum bætt við. Möluðum svörtum pipar
bætt við eftir smekk og látið sjóða niður í um það bil
fimmtán mínútur. Þá er slökkt undir pottinum. Þegar
borðhaldið fer að nálgast er vermt undir pottinum
og þorskinum og löngunni bætt út í. Látið standa í
fimm mínútur. Rétt áður en súpan er borin fram er
rækjum bætt út í. Skreytt með smátt skorinni stein-
selju. Súpan er borin fram með góðu brauði.
Fiskisúpa
að vestan