Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Blaðsíða 30
Konungur
vildi nart með
drykknum
ÞEGAR KEMUR AÐ SPÆNSKUM SMÁRÉTTUM - TAPAS -
ER UM AUÐUGAN GARÐ AÐ GRESJA. SUMIR
RÉTTIRNIR ERU BORNIR FRAM HEITIR, AÐRIR KALDIR.
MEÐ SUMUM GENGUR GLAS AF KÖLDUM BJÓR, MEÐ
ÖÐRUM ER EÐALVÍN VIÐEIGANDI.
Steinunn Fjóla Jónsdóttir sfjola@gmail.com
MATARGERÐVIÐ MIÐJARÐARHAFIÐ
Ljósmyndir/Abel Gil | Myndvinnsla/Barbara Birgis
M
unum að hefðin með tapas er sú að deila með öðrum. Einn
diskur af hverju á miðjuna og gaffall á mann. Í þetta sinn
er ég stödd á La Ermita sem er vinsæll veitingastaður í
þorpinu sem ég bý í á Spáni og Maite, kokkurinn á staðn-
um, er meira en tilbúin að útbúa fyrir okkur eitthvað girnilegt.
RÆKJUR Í HVÍTLAUKSOLÍU
-gambas al ajillo
Hrárri rækju er komið fyrir í lítilli pönnu og hvítlaukur í þunnum sneið-
um settur saman við. Fersk steinselja smátt skorin og þurrkað chili af
minni gerðinni sett út í, saltað og ólífuolíu hellt yfir allt saman, þar til
flýtur yfir rækjuna. Kveikt undir og olían látin krauma þar til rækjan er
tilbúin. Borið fram í olíunni, gafflinum stungið í rækju og upp í munn.
Karfa af hvítu brauði er nauðsynleg með. Og glas af góðu víni.
SALAT KENNT VIÐ MURCIA
-ensalada murciana
Klassískur og vinsæll réttur, einfaldur að útbúa. Innihaldið er heilir nið-
ursoðnir tómatar skornir í bita, hvítur laukur skorinn smátt, niðursoðin
þistilhjörtu skorin í strimla, túnfiskur í ólífuolíu, harðsoðin egg, svartar
ólífur, ólífuolía og salt. Öllu blandað saman og salatið borið fram með
brauði. Ferskt og bragðgott með glasi af bjór svona hversdags. Víni á
sparidögum ef borða á meira í kjölfarið.
NAUTALUND Í RÚSÍNUSÓSU -
solomillo en salsa de pasas
Algjör gourmet-réttur, bara fyrir sælkera. Nautalundin er brúnuð í me-
dalíum og tekin af pönnunni. Olíu bætt á pönnuna og rúsínurnar settar
út á. Þegar þær eru farnar að bólgna er sérríi hellt á pönnuna og þessu
leyft að sjóða niður þar til sósan nær þeirri þykkt sem sóst er eftir.
Sumir vilja hana þunna, aðrir þykka. Bráðnar í munni, guðdómlega
bragðgott. Og aftur hvítt brauð í körfu, glas af góðu rauðu víni.
Í sögunni segir af konungi, Alfonso tíunda, og þeirri kröfu sem hann
gerði á börunum um að drykknum fylgdi eitthvað til að narta í svo að
alkóhólið stigi mönnum ekki til höfuðs. Þær eru margar sögusagnirnar
um uppruna þessarar hefðar, flestar geta þær þess að glösunum hafi
verið lokað með sneið af skinku eða osti, einhverjum smárétti, til varnar
flugum eða sandi. Hver svo sem sannleikurinn er, er þessi siður mér að
skapi.
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.1. 2013
Matur og drykkir