Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.1. 2013 Fjármagnið skapar ekki velgengni, heldurfrelsið til að afla þess,“ sagði Nelson Man-dela svo skynsamlega og minnti á mikilvægi atvinnufrelsis fyrir samfélagið allt. Undanfarið hef- ur meira heyrst af ábendingum um hættur þessa sama frelsis en áminningum um að án þess getum við síður vænst velgengni, líkt og baráttufólk fyrir frelsi um allan heim hefur lengi bent á. Frelsi, og þá sérstaklega atvinnufrelsi, á undir högg að sækja. Skýringuna má finna í þeim efna- hagslegu breytingum sem heimsbyggðin öll hefur upplifað og hefur víða skapað vantraust á ýmsu því sem áður var talið traustsins vert. En skýringin er líka sú að þeir sem amast við of miklu frelsi hafa mjög ákveðið tengt það helstu óförum liðinna ára og notað stöðuna til að afsaka látlausar skatta- hækkanir og aðrar hindranir í atvinnulífinu. Á sama tíma höfum við sem viljum vernda frelsið hik- að um of í baráttunni – í stað þess að benda á að lausnin sé áfram frelsi og lærdómurinn sá að ábyrgð einstaklingsins á því frelsi verði skýrari. En óháð ólíkum áminningum eða ábendingum um mikilvægi og kosti þess að einstaklingar geti aflað sér tekna, lífsgæða og velgengni – tala stað- reyndir um atvinnufrelsi sínu máli. Á þær er mik- ilvægt að minna þegar við ræðum hvert við stefnum sem þjóð. Í alþjóðlegri mælingu á atvinnufrelsi í flestum löndum heims sem tekur til áranna 1990-2010 (Economic Freedom of the World: 2012 Annual Report) er þessu haldið vel til haga. Þar kemur skýrt fram að til að örva hagvöxt, minnka fátækt og bæta lífskjör almennt er ekkert farsælla en einmitt það að auka atvinnufrelsi. Þannig er hagvöxtur landa með mest atvinnu- frelsi að jafnaði um 3,5% en í þeim löndum sem bjóða minnst atvinnufrelsi mælist hagvöxtur að meðaltali um 1,5%. Sami sláandi munurinn er á þessum löndum þegar skoðað er hlutfall þeirra sem þar búa undir fátæktarmörkum. Þar sem atvinnu- frelsi er mest eru innan við 3% íbúa sem að með- altali búa við slík skilyrði en þar sem atvinnufrelsi er minnst eru um 40% skilgreind undir þeim mörk- um. Með sama hætti eru almenn lífskjör flestra sem búa í löndum þar sem atvinnufrelsi er mikið, margfalt betri en í þeim löndum sem annað hvort hafa hafnað frelsinu eða sett því verulegar hömlur. Það er mikið áhyggjuefni að Ísland er, sam- kvæmt ofangreindum mælingum, ekki lengur í hópi þeirra landa sem bjóða mikið atvinnufrelsi. Af þeim 144 löndum sem mæld voru er Ísland nú nr. 65 á listanum og hefur þannig á undanförnum ár- um dregist langt aftur úr þeim löndum sem við helst berum okkur saman við og langt aftur úr ná- grannalöndum okkar. Til samanburðar er Finn- land í 9. sæti, Danmörk í 16. sæti og Noregur í því 25. Fyrir metnaðarfulla þjóð getur sæti 65 varla tal- ist viðunandi á nokkrum lista og síst af öllu í sam- anburði sem svo mikil áhrif hefur á atvinnulíf og al- menning. Afturförin, höftin og skattahækkanirnar hafa komið í veg fyrir tækifæri, framfarir og lífs- gæði. Því þarf að breyta og það gerum við aðeins með aukinni trú á frelsið og fólkið sjálft. Erum við sátt við 65. sætið? * Það er mikið áhyggju-efni að Ísland sé ekki lengur í hópi þeirra landa sem bjóða mikið atvinnufrelsi. ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM Hanna Birna Kristjánsdóttir hanna.birna.kristjansdottir@reykjavik.is Áramótaskaupið Hið ákaflega ókarnivalíska Áramóta- skaup þar sem háði og árásum var beint að stjórnarandstöðunni og andstæðingum rík- isstjórnarinnar en valdhöfum hlíft hefur vakið misjöfn viðbrögð á netinu. Hafa ýmsir sér- fræðingar verið fengnir til að greina skaupið en sá fjölmiðill sem er öfl- ugastur, fésbókin, er með marga góða greinendur líka. Ólafur Teit- ur Guðnason greinir skaupið í löngu máli og hversvegna það hafi verið lélegt og lýkur þeim orðum með: „Verst var þó almennt húm- orsleysi og ófrumlegheit ... að mínu mati sum sé.“ En Svanur Már Snorrason er ekki sammála og lækar við grein í fréttunum sem segir frá því að Bubbi Morthens hafi verið ánægður með skaupið. Svanur segir líka í sta- tus hjá sér: „Snilldarskaup – gróft og gott og fokking Sjallarnir fengu á baukinn sem og Grísinn (líka hinir, en tók bara ekki eins eftir því). Svona á að gera þetta ...“ Einelti á netinu Þórlaug Ágústsdóttir lenti í því að einhver fótósjoppaði mynd af henni þannig að það var einsog hún hefði verið lamin. Hún hefur stofn- að hóp á fésbókinni þar sem hana langar til að stilla saman fólk í bar- áttu gegn svona framferði. „Stjórn- mál dagsins eru rekin „issue based“ og að stórum hluta í gegnum Int- ernetið til að ná eyrum þeirra sem þurfa/eiga að hlusta. Eftir þann DÁSAMLEGA stuðning sem ég hef fengið eftir að hafa verið „barin og nauðgað“ ;) á Internetinu langar mig að biðja ykkur að eyða smá stund – eins lengi og þið nennið og hafið gaman af því – í að koma málinu inn í alþjóðaumræðuna. Þetta verður dúndurskemmtilegt!“ AF NETINU Nú stefnir allt í að ástralski kvikmyndaleikarinn Chris Hemsworth taki völdin í kvikmyndinni Fifty Shades of Grey sem gerð er eftir sam- nefndri bók. Hemsworth er 29 ára og best þekkt- ur fyrir hlutverk sitt sem Þór í kvikmyndinni Þór. Hann er að minnsta kosti í uppáhaldi hjá aðdáendum erótísku skáldsögunnar hvað varðar hlutverk Christians Greys og hefur þar betur gegn Robert Pattinson, Channing Tatum, Ryan Gosling og Alexander Skarsgård. Hann náði at- hygli framleiðendanna eftir frammistöðu sína í væntanlegri mynd sem ber nafnið Rush en þar leikur hann Formúlu-eitt-kappann James Hunt. Í myndinni eru margar æsilegar nektarsenur og þykir Hemsworth hafa staðið sig sérlega vel. Hemsworth kom til Íslands í október til að taka upp atriði í framhaldsmynd um þrumuguð- inn. Myndin heitir Thor: The Dark World og verður frumsýnd í nóvember á þessu ári. Chris Hemsworth er hávaxinn Ástrali. AFP Greyið Hemsworth Fyrirsætan og læknaneminn Elmar Johnson hefur átt mikilli velgengni að fagna síðustu ár- in. Auk þess sem hann hefur verið á samningi hjá Eskimo vakti það mikla athygli þegar hann skrifaði undir samning við eina stærstu fyr- irsætuskrifstofu heims; umboðsskrifstofuna Next. Elmar virðist eiga auðvelt með að bæta járn- um í eldinn en nýverið stofnaði hann ferðaþjón- ustufyrirtækið Guide to Iceland sem sérhæfir sig í að þjónusta erlenda ferðamenn. Vefsíðan guidetoiceland.com er ein allsherjar upplýs- ingaveita um allt er tengist skipulögðum ferð- um um Ísland, besta verðið hverju sinni og hvaðeina sem vert er að sjá og skoða nánar á landinu. Elmar er á fimmta ári í læknisfræði. Fyrirsæta í ferða- þjónustu Elmar Johnson sýnir fatnað Guðmundar Jör- undssonar sem hann hannar undir merkinu JÖR.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.