Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Blaðsíða 15
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Með tvö
rafskaut í
heilanum
ÓLÍNA SVEINSDÓTTIR GREINDIST MEÐ PARK-
INSON SJÚKDÓMINN AÐEINS 48 ÁRA GÖMUL.
HENNI FANNST GREININGIN Í FYRSTU VERA
DAUÐADÓMUR EN EFTIR AÐGERÐ Á HEILA ÞAR
SEM RAFSKAUT VORU GRÆDD Í HANA HEFUR
HÚN VERIÐ LAUS VIÐ LYF OG LÍFSGÆÐIN AUKIST.
Unnur Hrefna Jóhannsdóttir uhj@simnet.is
6.1. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Parkinsonsveiki er hægfara hnignun í þeim hluta miðtaugakerfisins,
sem stýrir og samhæfir líkamshreyfingar. Einkenni sjúkdómsins koma
fram vegna skorts á boðefninu dópamíni, sem heilinn framleiðir. Fram-
leiðsla dópamíns minnkar vegna frumudauða í svonefndum sortu-
kjarna í miðheila. Þegar einkennin koma fram hefur sjúklingurinn misst
80- 90 prósent dópamínfrumnanna. Áætlað er að parkinsonssjúklingar
á Íslandi séu um 600. Algengast er að sjúkdómseinkenni komi fram hjá
fólki á aldrinum 50-70 ára og talið er að 1% þeirra sem eru 65 ára og
eldri hafi sjúkdóminn. Sjúkdómurinn greinist einnig hjá yngra fólki, og
eru dæmi hér á landi um fólk allt niður í þrítugt.
Helstu einkenni veikinnar eru skjálfti, hægar hreyfingar og vöðva-
stirðleiki. Önnur einkenni eru m.a. stífni, álút líkamsstaða, tilhneiging
til að festast í ákveðinni líkamsstöðu, truflun á jafnvægi og tal-
örðugleikar. Önnur einkenni geta komið fram síðar. Í fyrstu er algeng-
ast að einkennin komi fram í annarri líkamshliðinni. Einkennin geta ver-
ið mismunandi milli einstaklinga en einnig frá degi til dags eða frá
einum tíma til annars hjá sama einstaklingi. Sjúkdómseinkenni versna
við allt álag og streitu, og því er æskilegt að draga úr slíkum áhrifum,
leiðrétta svefn, depurð og kvíða, svo og önnur einkenni, sem geta haft
áhrif á almenna vellíðan.
Greining sjúkdómsins byggist aðallega á mati sérfræðings þar sem
ekki hefur tekist að þróa rannsóknaraðferðir til þess að greina sjúk-
dóminn t.d. í blóði eða öðrum lífssýnum. Rannsóknir geta aftur á móti
útilokað ýmsa aðra sjúkdóma. Ákveðin gerð heilasneiðmynda getur þó
gefið vísbendingar um greininguna við sjúkdómsbyrjun og í vafa-
tilfellum. Góð langtímalyfjasvörun er talin staðfesta greininguna. Fram-
gangur sjúkdómsins er mishraður en fyrstu árin leiðréttir lyfjameðferð
sjúkdómseinkennin að mestu. Þegar frá líður koma oft fram frekari
einkenni svo sem ónóg lyfjasvörun og meðferðarháðar aukahreyfingar.
Lyfjameðferð við parkinsonsveiki byggist aðallega á tveim flokkum
lyfja, hinum svonefndu dópamínsamherjum, þ.e. efni sem breytist í
dópamín í heila, og svo dópamínörvum, sem örva dópamínviðtöku
heilans. Sjúkraþjálfun getur verið mjög gagnleg til þess að viðhalda
góðri hreyfifærni. Raddþjálfun er einnig mikilvægur þáttur. Á síðustu
árum hefur aðgerð á heila, þar sem rafskauti er komið fyrir til að örva
þær frumur sem enn eru starfhæfar, gefið góða raun. Möguleikar park-
insonssjúklings til þess að nýta sér þau lífsgæði, sem í boði eru, aukast
ár frá ári. Heimild: www.parkinson.is
ORSAKIR OG EINKENNI PARKINSON
Fossaleyni 2, 112 Reykjavík, sími 586 1000
husgogn.is
Heill heimur
af ævintýrum
Iðnaðarvélar
fyrir fagmenn
Síðumúla 11, 108 Reykjavík,
sími 568 6899, vfs@vfs.is
www.vfs.is
Sjálfdekkjandi
hjálmur
Styrkleiki: 9-10 Din
Verð kr. 16.900.-
Telwin Telmig 180 turbo 1
fasa MIG/MAG Þráðsuðuvél
Einföld og sterkbyggð, jarðkapall
og Mig byssa fylgir.
Verð kr. 125.000.-
Gold G3
er koparhúðaður gegnheill alhliða (SG2)G3
MIG/MAG suðuvír fyrir suðu í lág og
óblönduðu stáli með togþol
allt að 550N/mm 2
15 kg rúlla 0,8 – 1,0 – 1,2 kr. 6.900.-
5 kg rúlla kr. 3.900.-
1 kg rúlla kr. 1.200.-