Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Side 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Side 15
Morgunblaðið/Styrmir Kári Með tvö rafskaut í heilanum ÓLÍNA SVEINSDÓTTIR GREINDIST MEÐ PARK- INSON SJÚKDÓMINN AÐEINS 48 ÁRA GÖMUL. HENNI FANNST GREININGIN Í FYRSTU VERA DAUÐADÓMUR EN EFTIR AÐGERÐ Á HEILA ÞAR SEM RAFSKAUT VORU GRÆDD Í HANA HEFUR HÚN VERIÐ LAUS VIÐ LYF OG LÍFSGÆÐIN AUKIST. Unnur Hrefna Jóhannsdóttir uhj@simnet.is 6.1. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Parkinsonsveiki er hægfara hnignun í þeim hluta miðtaugakerfisins, sem stýrir og samhæfir líkamshreyfingar. Einkenni sjúkdómsins koma fram vegna skorts á boðefninu dópamíni, sem heilinn framleiðir. Fram- leiðsla dópamíns minnkar vegna frumudauða í svonefndum sortu- kjarna í miðheila. Þegar einkennin koma fram hefur sjúklingurinn misst 80- 90 prósent dópamínfrumnanna. Áætlað er að parkinsonssjúklingar á Íslandi séu um 600. Algengast er að sjúkdómseinkenni komi fram hjá fólki á aldrinum 50-70 ára og talið er að 1% þeirra sem eru 65 ára og eldri hafi sjúkdóminn. Sjúkdómurinn greinist einnig hjá yngra fólki, og eru dæmi hér á landi um fólk allt niður í þrítugt. Helstu einkenni veikinnar eru skjálfti, hægar hreyfingar og vöðva- stirðleiki. Önnur einkenni eru m.a. stífni, álút líkamsstaða, tilhneiging til að festast í ákveðinni líkamsstöðu, truflun á jafnvægi og tal- örðugleikar. Önnur einkenni geta komið fram síðar. Í fyrstu er algeng- ast að einkennin komi fram í annarri líkamshliðinni. Einkennin geta ver- ið mismunandi milli einstaklinga en einnig frá degi til dags eða frá einum tíma til annars hjá sama einstaklingi. Sjúkdómseinkenni versna við allt álag og streitu, og því er æskilegt að draga úr slíkum áhrifum, leiðrétta svefn, depurð og kvíða, svo og önnur einkenni, sem geta haft áhrif á almenna vellíðan. Greining sjúkdómsins byggist aðallega á mati sérfræðings þar sem ekki hefur tekist að þróa rannsóknaraðferðir til þess að greina sjúk- dóminn t.d. í blóði eða öðrum lífssýnum. Rannsóknir geta aftur á móti útilokað ýmsa aðra sjúkdóma. Ákveðin gerð heilasneiðmynda getur þó gefið vísbendingar um greininguna við sjúkdómsbyrjun og í vafa- tilfellum. Góð langtímalyfjasvörun er talin staðfesta greininguna. Fram- gangur sjúkdómsins er mishraður en fyrstu árin leiðréttir lyfjameðferð sjúkdómseinkennin að mestu. Þegar frá líður koma oft fram frekari einkenni svo sem ónóg lyfjasvörun og meðferðarháðar aukahreyfingar. Lyfjameðferð við parkinsonsveiki byggist aðallega á tveim flokkum lyfja, hinum svonefndu dópamínsamherjum, þ.e. efni sem breytist í dópamín í heila, og svo dópamínörvum, sem örva dópamínviðtöku heilans. Sjúkraþjálfun getur verið mjög gagnleg til þess að viðhalda góðri hreyfifærni. Raddþjálfun er einnig mikilvægur þáttur. Á síðustu árum hefur aðgerð á heila, þar sem rafskauti er komið fyrir til að örva þær frumur sem enn eru starfhæfar, gefið góða raun. Möguleikar park- insonssjúklings til þess að nýta sér þau lífsgæði, sem í boði eru, aukast ár frá ári. Heimild: www.parkinson.is ORSAKIR OG EINKENNI PARKINSON Fossaleyni 2, 112 Reykjavík, sími 586 1000 husgogn.is Heill heimur af ævintýrum Iðnaðarvélar fyrir fagmenn Síðumúla 11, 108 Reykjavík, sími 568 6899, vfs@vfs.is www.vfs.is Sjálfdekkjandi hjálmur Styrkleiki: 9-10 Din Verð kr. 16.900.- Telwin Telmig 180 turbo 1 fasa MIG/MAG Þráðsuðuvél Einföld og sterkbyggð, jarðkapall og Mig byssa fylgir. Verð kr. 125.000.- Gold G3 er koparhúðaður gegnheill alhliða (SG2)G3 MIG/MAG suðuvír fyrir suðu í lág og óblönduðu stáli með togþol allt að 550N/mm 2 15 kg rúlla 0,8 – 1,0 – 1,2 kr. 6.900.- 5 kg rúlla kr. 3.900.- 1 kg rúlla kr. 1.200.-

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.