Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Blaðsíða 16
*Í hinni þekktu háskólaborg Cambridge á Englandi er hægt að versla og gera vel við sig í mat »18Ferðalög og flakk
Kæru ættingjar og vinir!
Lífið heldur áfram að leika við mig í Svíaríki. Í lok
2011 kynntist ég besta Norðmanninum og tók svo stórt
skref í byrjun sumars þegar ég flutti inn til hans.
Ákvörðun sem ég mun seint sjá eftir.
Hef einnig haldið áfram að sinna ferðafíkninni og
skoðað heiminn í ár.
Eftir frábært 2012 getur 2013 bara orðið betra. Eins
og stendur er hér rok, blautt veður og hitastigið um það
bil fimm gráður.
Kær kveðja,
Anna Dóra Jónasdóttir og fjölskylda
Anna Dóra og kærasti hennar, Arnstein Njåstad. Anna Dóra starfar sem
svæfingahjúkrunarfræðingur í Karlskrona í Svíþjóð.
Fjölskyldubíltúr. Meðferðis eru
dætur Njåstad; Hilde og Tove.
Fann ástina úti
Anna hefur búið í Svíþjóð í um 10 ár
en bjó á Íslandi fram að því.
KVEÐJA FRÁ
SVÍÞJÓÐ
ÓTELJANDI SKEMMTILEGIR FERÐAMÖGULEIKAR
Edrú fjalla-
ferðir og
villur á Balí
„ÖÐRUVÍSI“ FERÐAMÖGULEIKAR ERU Í BOÐI
HJÁ VELFLESTUM ÍSLENSKUM FERÐASKRIFSTOFUM
Í ÁR. SUNNUDAGSBLAÐ MORGUNBLAÐSINS
LEIT YFIR NOKKRA SPENNANDI.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
AÐDÁENDUR MAMMA MÍA
kvikmyndarinnar ættu að forvitnast
frekar um spennandi ferð sem
Bændaferðir skipuleggja í maí. Förinni
er heitið á þær grísku slóðir sem
kvikmyndin var tekin upp auk þess
sem siglt er til eyjanna Santoríní og
Skopelos. Í rúmar tvær vikur er
ferðast milli fallegra sveitaþorpa,
fornminjar skoðaðar ferðast með
gamalli og sjarmerandi lest. Mamma
Mía var kvikmynduð að miklu leyti á
ströndinni við bæinn Damouchari
þar sem dvalið verður um tíma.
EDRÚ Á FJÖLLUM í Oberstdorf
er yfirskrift ferðar sem er nýjung hjá
Úrval-Útsýn. Gönguferðir um þetta
svæði í Ölpunum, á landamærum
Þýskalands og Austurríkis, hafa áður
verið skipulagðar á vegum ferðaskrif-
stofunnar en nýbreytnin er að nú er
ein ferð farin í samstarfi við SÁÁ í
ágúst. Ferðin er hugsuð fyrir göngu-
garpa sem vilja síður vera í félagsskap
þar sem vasapelinn er dreginn upp.
Ekki er þó nauðsynlegt að vera í SÁÁ
til að fara í ferðina heldur er skilyrðið
einungis að ferðast edrú.
FARARSTJÓRAR skipta oft
ekki minna máli en ferðin sjálf
og það getur orðið forvitnilegt
að ferðast með söngvaranum
og lífskúnstnernum Sverri Guð-
jónssyni um London í þriggja
daga ferð Icelandair í maí.
Sverrir bjó lengi í London og
hann hefur talsvert aðra sýn og
reynslu af borginni en hinn
hefðbundni ferðamaður. Hann
lofar því að sýna „leyndardóma
Lundúnaborgar“.
SKEMMTILEGUR KOKTEILL
er á dagskrá hjá Vitaferðum í mars.
Förinni er heitið til Nýja-Sjálands og
Dubai. Flogið er til Dubai í gegnum
London en í Dubai er gist eina nótt.
Daginn eftir er haldið áfram til Nýja-
Sjálands með millilendingu í Ástralíu.
Ferðastjórinn er óvenjufróður um
land og þjóð og ferðalangar munu
kynnast öðruvísi hlið en hinn almenni
túristi. Á heimleið er svo aftur dvalið
í Dubai, en mun lengur en í fyrra
skiptið, eða í þrjár nætur.
SKRÚÐGARÐUR Atlandshafsins
eða eyjan Madeira, er áfangastaður
ferðaskrifstofunnar Heimsferða í ár.
Eyjan er fyrir utan norðvesturströnd
Afríku og einkennist af mik-
ilfenglegum fjöllum og, eins og upp-
nefnið gefur til kynna, ægifögrum
gróðri, ávöxtum og vínekrum. Blóm-
in eru mörg afar sjaldgæf. Þá má víð-
ast hvar á eynni finna litla hlýlega bæi
eins og úr bíómyndum.
H
efðbundnar sólarlanda- og borgarferðir standa alltaf
fyrir sínu en ævintýragjarnir ferðalangar ættu að líta
lengra en nef þeirra nær. Nautnaseggir geta leigt sér
glæsihýsi með þjónum og eldabuskum á Balí, þeir sem
kjósa líf án áfengis geta farið í edrú fjallaferðir og svo má skella
sér á grískar slóðir Meryl Streep í Mamma Mía.
ORIENTAL ferðaskrifstofan hefur
undanfarin ár boðið Íslendingum upp
á ótal möguleika til Asíuferða. Eitt af
því skemmtilegra sem ferðaskrif-
stofan getur verið innan handar með
er að leigja einkavillur sem eru af-
viknar, með sundlaug og öllu til og
sérstaklega glæsilegar. Húsin eru til
dæmis í Hua Hin í Taílandi og á Balí
en húsunum fylgir yfirleitt þjónusta
við þrif og morgunverður auk þess
sem má oft splæsa í barnfóstru, elda-
busku og einkabílstjóra. Miðað við
þennan flotta pakka er verðlagið afar
hagstætt.