Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.1. 2013
MÆTTU Í RÆKTINA
Fyrir þau ykkar sem eruð staðráðin í að mæta reglulega í ræktina á nýju ári
gæti Gympact verið hvatningin sem á þarf að halda. Forritið virkar þannig að
notandinn gerir samning við sjálfan sig um að mæta ákveðið oft í viku í ræktina
og ákveður hve háa upphæð hann er tilbúinn að borga í sekt fyrir að mæta ekki.
Þegar notandi mætir í ræktina stimplar hann sig inn í gegnum forritið. Ef notand-
inn stendur ekki við að mæta á tilskildum dögum greiðir hann sekt fyrir hvern
dag sem sleppt er úr. Sektarfé allra notenda er svo safnað saman í pott sem er
skipt vikulega á milli þeirra notenda sem mæta samkvæmt samningnum. Þannig
hefurðu beinan fjárhagslegan ávinning af því að mæta í ræktina. Það er rétt að
taka fram að hægt er að segja upp samningnum hvenær sem er, eða breyta
upphæð og æfingafjölda eftir þörfum. Fitocracy er annað sniðugt forrit sem
tengir þig við samfélag fólks sem hefur svipuð áhugamál og markmið með æf-
ingum sínum og þú. Hægt er að tengjast samfélagi ólíkra æfingahópa og ræða
um æfingar og fá stuðning frá öðrum notendum.
E
ins og oft vill verða um góðar fyrirætlanir, þá getur reynst erfitt að fylgja
slíkum heitum eftir. Fólk fer gjarnan vel af stað, en svo dvínar áhuginn þegar
fram í sækir og það getur verið erfitt að finna innblásturinn þegar komið er
fram á vorið. En örvæntið ekki, því nú er hægt að nota snjallsímann til
þess að bæði minna á og hvetja til dáða þegar verst gengur. Hér eru nokkur
ókeypis símaforrit sem hjálpa manni að standa við áramótaheitið.
ÞAÐ ERU MARGIR SEM NÝTA SÉR TÍMAMÓT Á BORÐ VIÐ ÞAU SEM NÚ HAFA UM
GARÐ GENGIÐ TIL AÐ STRENGJA HEIT UM NÝTT LÍFERNI OG BETRI DAGA.
Sveinn Birkir Björnssonsveinnbirkir@gmail.com
Stattu við áramótaheitið
með aðstoð símans
NÁÐU STJÓRN Á FJÁRMÁLUNUM
Meniga er íslenskt forrit sem hjálpar þér að ná stjórn á fjármál-
unum. Forritið tengist bankareikningum heimilisins og veitir góða
yfirsýn yfir fjárhagsstöðuna hverju sinni. Það má með auðveldum
hætti greina í hvað peningunum er varið með skýrum myndrænum
hætti. Hægt er að setja viðmið fyrir hve miklu skal varið í ákveðna
útgjaldaliði og fá áminningar þegar þau mörk nálgast. Þá má fá hag-
nýt sparnaðarráð og sjá hvernig eyðslumynstur þitt er miðað við
aðra notendur Meniga. Ef áramótaheitið er að ná betri stjórn á
fjármálunum er Meniga ágætt fyrsta skref.
Græjur og tækni
ilatriði finnst mér, og öllum þeim sem ég hef leyft að prófa vélina,
að skjárinn er snertiskjár, enda eykur það notagildi vélarinnar um-
talsvert – prófið bara!
Þegar við bætist á að skjánum eru sérstakar lamir sem gera
kleift að leggja hann aftur 360 gráður, er
maður skyndilega kominn með spjald-
tölvu í hendurnar – geri aðrir betur.
(Lamirnar eru hæfilega stífar til að
hægt sé að stilla vélinni upp til að
mynda til að horfa á myndskeið.)
Rétt er að leggja áherslu á að
Yoga 13 er fyrst og fremst fram-
úrskarandi fartölva, eða Ultrabook,
ef vill. Lyklaborðið á henni er gott
og vélin hin sprækasta, ekki síst
fyrir tilstilli SSD-disksins. Sem
spjaldtölva er hún óneitanlega
þung, hálft annað kíló, tæpu kílói
þyngri en iPad svo dæmi sé tekið,
en hún er líka stór, skjárinn mun stærri en á
iPadinum eða sambærilegum spjaldtölvum. Svo er það óneitanlega
talsverður kostur að á henni er hægt að keyra hvaða Windows-forrit
sem manni dettur í hug.
Fátt hefur haft eins mikil áhrif á tæknilegt umhverfi okkar áseinni árum og snertivæðing farsíma og spjaldtölva. Nú er röðinkomin að fartölvunum og skammt er í það að flestar ef ekki
allar fartölvur verði með snertiskjá, ekki síst ef þær keyra Windows
8, sem sérsniðið er fyrir snertiskjái. Undir lok síðasta árs
komu á markað allmargar slík-
ar tölvur, stundum sem sam-
krull af spjaldtölvu og far-
tölvu, jafnvel svo að
lyklaborði væri smellt á vél-
ina, eins og Microsoft Sur-
face. Nokkrar vélar hef ég
séð þar sem hægt er að
breyta fartölvunni í
spjaldtölvu, en enga
eins vel heppnaða og
þá vél sem hér er tek-
in til skoðunar, Lenovo IdeaPad Yoga 13.
Yoga 13 er í flokki Ultranotebook, en svo kalla menn
tölvur sem nota sparneytna örgjörva, eru örþunnar og með svoköll-
uðum SSD-disk. Vélin er og einstaklega nett, þunn og meðfærileg,
reyndar framúrskarandi hönnun að öllu leyti. Skjárinn er hreint af-
bragð sem slíkur, 13.3" á 16:9 sniði og upplausnin 1600x900. Lyk-
INNLIT Í FRAMTÍÐINA
NÝ FARTÖLVA FRÁ LENOVO, IDEAPAD YOGA 13, SAMEINAR FISLÉTTA OG GLÆSILEGA FARTÖLVU
OG SPJALDTÖLVU Í YFIRSTÆRÐ – SVONA VERÐA ALLAR FARTÖLVUR FRAMTÍÐARINNAR.
Græja
vikunnar
* SSD-diskar eða -drif sækja ísig veðrið en eru í raun ekki
diskar eða drif, heldur safn minn-
isrása sem kallaðar eru svo þar
sem þær koma í staðinn fyrir
harðan disk í tölvum. Slíkir
„diskar“ eyða litlu rafmagni, þola
högg og hnjask vel og gríðarlega
hraðvirkir. Diskurinn í Yoga 13 er
128 GB.
* Á vélinni eru tvö USB-tengi,eitt USB 2.0 og hitt USB 3.0. Það
er líka á henni HDMI tengi, sam-
þætt tengi fyrir hljóðnema og
heyrnartól og kortalesari (SD/
MMC). Lenovo-menn lofa átta
tíma endingu á rafhlöðu, en ég
náði ekki að sanna það eða af-
sanna.
ÁRNI
MATTHÍASSON
* Yoga 13 er með þrettántommu skjá, en það er líka til lítil
systir, Yoga 10, sem er með 10"
skjá. Ég mæli þó síður með henni
enda keyrir hún Windows RT og
þó Office-pakkinn fylgi, þá er lítið
framboð af hugbúnaði fyrir Wind-
ows RT sem stendur.
SKAPAÐU NÝJAR VENJUR
Einfaldasta forritið sem hægt er að nýta sér er þó mögulega
Way of Life sem gerir þér kleift að merkja með einföldum
hætti hvort þú hefur staðið við markmið þín þann daginn.
Forritið býður þér svo upp á ýmiss konar myndræna fram-
setningu á því hvernig þér gengur að skapa þér nýjar venjur.
Stundum jafnast ekkert á við gamla góða dagatalið, jafnvel
þegar það er komið í snjallsíma.